Ítalski boltinn Fleiri hneykslismál í uppsiglingu? Fréttir á Ítalíu herma að þar í landi sé að hefjast ítarlega rannsókn í knattspyrnuheiminum eftir að grunur vaknaði um að úrslitum leikja í A-deildinni þar í landi hafi verið hagrætt með mútum. Forráðamenn Lazio, Juventus og Fiorentina liggja undir grun, auk þess sem HM dómarinn Massimo De Santis er sagður liggja undir grun. Sport 12.5.2006 15:23 Inter bikarmeistari annað árið í röð Inter Milan varð í kvöld bikarmeistari á Ítalíu annað árið í röð eftir að liðið lagði Roma 3-1 á heimavelli sínum í síðari leik liðanna og því samanlagt 4-2. Esteban Cambiasso, Julio Cruz og Obafemi Martins skoruðu mörk heimamanna í kvöld, en Shabani Nonda minnkaði muninn fyrir Rómverja. Sport 11.5.2006 21:06 Stjórn Juventus segir af sér Stjórn knattspyrnufélagsins Juventus sagði af sér á einu bretti í dag eftir að sannað þótti að stjórnarmenn félagsins hefðu með skipulögðum hætti haft áhrif á það hvaða dómarar dæmdu leiki liðsins í gegn um tíðina. Sönnunargögn eins og upptökur af símtölum voru lögð fram í málinu og því gátu stjórnarmenn ekki annað en sagt af sér. Sport 11.5.2006 19:00 Titilbaráttan enn opin á Ítalíu Juventus náði ekki að tryggja sér Ítalíumeistaratitilinn í knattspyrnu í dag þrátt fyrir 2-1 sigur á Palermo í næst síðustu umferð deildarinnar þar í landi. Á sama tíma unnu helstu keppinautar þeirra í AC Mila sem er í öðru sæti, 2-3 útisigur á Parma en þrjú stig skilja liðin fyrir lokaumferðina. Sport 7.5.2006 15:30 Juventus getur tryggt sér titilinn í dag Juventus getur tryggt sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu annað árið í röð í dag, sunnudag, þegar meistararnir taka á móti Palermo á heimavelli sínum, Delle Alpi. Til að svo verði þarf Juve að vinna sigur og AC Milan að mistakast að vinna sigur gegn Parma á útivelli en þrjú stig skilja toppliðin tvö að þegar tveimur umferðum er ólokið. Sport 6.5.2006 17:46 Forskot Juventus einungis þrjú stig Juventus gerði 1-1 jafntefli við Lazio á heimavelli sínum í dag á meðan AC-Milan sigraði Messina 3-1 á útivelli. Forskot Juventus er því komið niður í 3 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en Juventus hefur mistekist að sigra í fimm deildarleikjum í röð. Sport 22.4.2006 14:06 Roma mætir Inter í úrslitum Roma tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum ítölsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði Palermo 1-0 á heimavelli sínum. Það var gamla kempan Damiano Tommasi sem skoraði sigurmark Rómverja á 30. mínútu. Roma tapaði fyrri leiknum 2-1 en kemst áfram á marki skoruðu á útivelli. Liðið mætir Inter Milan í úrslitum keppninnar. Sport 12.4.2006 21:38 Fordæmir árásir á leikmenn Inter Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan segir að stuðningsmenn liðanna í ítölsku deildinni verði að fara að hugsa sinn gang eftir að stuðningsmenn Inter Milan réðust að tveimur leikmönnum liðsins á dögunum eftir að þeim þótti gengi liðsins ekki viðunandi. Sport 11.4.2006 19:09 Inter í úrslitin Inter Milan komst í dag í úrslitaleikinn í ítalska bikarnum þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Udinese á útvielli og er því komið áfram samanlangt 3-2. Santiago Solari og David Pizarro skoruðu mörk Inter í leiknum, en liðið hefur titil að verja frá í fyrra. Inter mætir annað hvort Roma eða Palermo í úrslitunum, en þessi lið eigast við öðru sinni á morgun og þar hefur Palermo 2-1 forystu eftir fyrri leikinn. Sport 11.4.2006 19:21 Kaka skoraði þrennu Brasilíski leikstjórnandinn Kaká fór á kostum í dag þegar AC Milan tók Verona í kennslustund 4-1 í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu. Milan lenti undir 1-0 í leiknum, en varnarmaðurinn Nesta jafnaði leikinn og svo skoraði Kaká þrennu í síðari hálfleiknum, þar af eitt mark úr vítaspyrnu. Milan er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar á eftir Juventus og eru tveimur stigum á undan grönnum sínum í Inter sem eru í þriðja sætinu. Sport 9.4.2006 17:20 Ancelotti framlengir við Milan Carlo Ancelotti hefur framlengt núgildandi samning sinn við AC Milan um eitt ár og verður því við stjórn hjá félaginu til ársins 2008. Ancelotti er á sínu fimmta ári með AC Milan, en hann hafði verið orðaður við stjórastöðuna hjá Real Madrid síðustu daga. Sport 21.3.2006 16:42 Hefur augastað á Henry og Nistelrooy Massimo Moratti, eigandi Inter Milan á Ítalíu, hefur augastað á þeim Thierry Henry hjá Arsenal og Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United í leit sinni að framherja fyrir næstu leiktíð. Hann gerir sér þó litlar vonir um að krækja í Henry og segir Nistelrooy vera raunhæfara markmið fyrir félag sitt. Sport 21.3.2006 14:37 Udinese átti ekki séns í AC Milan Andriy Shevchenko skoraði 18. markið sitt í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að skora tvö mörk þegar AC Milan tók Udinese í kennslustund með 4-0 útisigri. Inter Milan er tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum eftir 3-1 sigur á Lazio í dag þar sem Alvaro Recoba skoraði tvívegis. Sport 19.3.2006 16:52 Trezeguet með tvö mörk fyrir Juventus David Trezeguet skoraði tvívegis fyrir Juventus í kvöld þegar liðið sigraði Livorno 1-3 á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Alessandro Del Piero gulltryggði sigur Juve á lokasekúndum leiksins eftir að Trezeguet hafði komið gestunum tvisvar yfir í leiknum. Í hinum leik kvöldsins á Ítalíu vann Cagliari 1-2 útisigur á botnliði Treviso. Sport 18.3.2006 21:50 Albertini lék kveðjuleik sinn í gær Ítalski miðjumaðurinn Demetrio Albertini reimaði á sig fótboltaskóna í síðasta sinn á San Siro í Mílanó í gærkvöld þegar spilaður var sérstakur kveðjuleikur honum til heiðurs. Margir af frægustu leikmönnum Milan í gegn um árin tóku þátt í leiknum og sýndu Albertini virðingu sína. Sport 16.3.2006 15:49 Lögregla biður stuðningsmenn að róa sig Löglregluyfirvöld í Róm hafa biðlað til stuðningsmanna Roma og Middlesbrough að sýna stillingu í kvöld þegar liðin mætast í Evrópukeppni félagsliða, en fyrr í dag slösuðust þrettán enskir stuðningsmenn í árás öfgasinnaðra stuðningsmanna sem kenna sig við lið Roma. Þrír stuðningsmenn voru stungnir og liggja á sjúkrahúsi. Sport 15.3.2006 18:35 Englendingar stungnir í átökum í Róm Þrír stuðningsmenn enska liðsins Middlesbrough vor stungnir í gær og fleiri eru á sjúkrahúsi eftir að fótboltabullur sem kalla sig "Ultras" og kenna sig við lið Roma í höfuðborginni, réðust að fólkinu þar sem það sat við drykkju í gærkvöld. Ensku áhorfendurnir munu hafa verið hið prúðasta fólk og var margt þeirra með börn sín meðferðis. Roma og Middlesbrough mætast í Evrópukeppninni í kvöld. Sport 15.3.2006 14:17 Juventus í þægilegri stöðu Meistarar Juventus hafa þægilegt 10 stiga forskot á toppi ítölsku deildarinnar eftir markalaust stórmeistarajafntefli við AC Milan á heimavelli sínum í kvöld í leik sem olli nokkrum vonbrigðum. Gennaro Gattuso var vikið af leikvelli um miðjan síðari hálfleikinn, en heimamenn gerðu sér jafnteflið að góðu og fátt bendir til annars en að þeir verji titil sinn á Ítalíu. Leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn. Sport 12.3.2006 21:36 Juventus - AC Milan í beinni á Sýn í kvöld Leikur ársins í ítalska boltanum verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld þegar meistarar Juventus taka á móti erkifjendum sínum í AC Milan á Delle Alpi. Útsending hefst klukkan 19:20, en þá verður viðureign Osasuna og Barcelona í spænska boltanum í beinni útsendingu á Sýn Extra og hefst útsending þar klukkan 19:55. Sport 12.3.2006 18:15 Fiorentina upp fyrir Roma Fiorentina endurheimti 4. sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið vann 2-1 sigur á Siena. Hinn ungi sóknarmaður Giampaolo Pazzini skoraði sigurmarkið í viðbótartíma og lyfti liði sínu upp fyrir Roma sem á leik til góða gegn Inter síðar í kvöld. Sport 5.3.2006 17:17 Milan og Juve unnu sína leiki Juventus vann Sampdoria 1-0 í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Pavel Nedved skoraði eina mark leiksins á 69. mínútu. AC Milan vann Empoli 3-0 þar sem Filippo Inzahgi skoraði tvö markanna og Andrei Schevshenko eitt. Juventus er á toppi deildarinnar og hefur 10 stiga forystu á AC Milan. Í kvöld mætast Roma og Inter en leikurinn verður sýndur á Sýn extra klukkan 19:30. Sport 5.3.2006 14:01 Roma sló metið Lið Roma í ítölsku A-deildinni setti í gær met í deildinni þegar það vann 11. leikinn í röð. Ekki skemmdi fyrir að sigurinn kom einmitt gegn grönnum þeirra og erkifjendum í Lazio. Það voru Rodrigo Taddei og Alberto Aquilani sem skoruðu mörk Roma í 2-0 sigri liðsins, sem var án fyrirliða síns Francesko Totti sem er meiddur. Sport 27.2.2006 16:03 Rómarslagurinn í beinni í kvöld Hinir fornu fjendur í Rómarborg Lazio og Roma eigast við í ítölsku A-deildinni í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:50. Það er jafnan heitt í kolunum þegar þessi lið mætast og til dæmis var allt á suðupunkti þegar liðin mættust síðast í deildinni. Sport 26.2.2006 10:10 Frá keppni í tvo mánuði Ítalski sóknarmaðurinn Fransesco Totti verður frá keppni í um tvo mánuði eftir meiðsli sem hann hlaut í leiknum gegn Empoli í kvöld en Roma vann leikinn 1-0. Sport 20.2.2006 01:16 Juventus að stinga af Meistarar Juventus tóku stórt skref í titilvörn sinni í ítölsku A-deildinni í kvöld þegar liðið lagði Inter Milan á útivelli 2-1 í stórleik helgarinnar sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn Extra. Zlatan Ibrahimovic kom Juve yfir í leiknum, en eftir að Walter Samuel jafnaði leikinn í síðari hálfleiknum, skoraði Alessandro del Piero sigurmark Tórínóliðsins fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 12.2.2006 21:49 Mancini horfir á annað sætið Roberto Mancini, þjálfari Inter, segist í dag vera meira að einbeita sér að því að ná öðru sætinu í A-deildinni en að steypa Juventus af stalli á toppnum. Juventus og Inter mætast einmitt í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:25. Sport 12.2.2006 16:10 Udinese rekur þjálfarann Ítalska A-deildarliðið Udinese rak í dag þjálfara sinn Serse Cosmi, en hann er níundi þjálfarinn í deildinni sem fær að taka pokann sinn í vetur. Við starfi hans tekur Loris Dominissini, sem áður stýrði liði smáliði Como og hóf það úr neðri deildunum á Ítalíu og upp í A-deildina fyrir nokkrum árum. Sport 10.2.2006 18:18 Fiorentina - Inter í beinni á Sýn Extra Viðureign Fiorentina og Inter Milan verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:35 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur klukkan 22:05 á Sýn síðar um kvöldið, eða þegar leik Chelsea og Everton í enska bikarnum er lokið. Sport 8.2.2006 18:37 Sjöundi sigur Roma í röð Roma vann í gærkvöldi 7. leik sinn í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Parma 3-0. Í dag klukkan 14 verður leikur Chievo og Inter sýndur beint á Sýn. Aðrir leikir á Ítalíu í dag verða; Sport 5.2.2006 13:17 Juventus heldur sínu striki Juventus heldur sínu striki á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 3-1 sigur á Ascoli á útivelli í dag. Franski sóknarmaðurinn David Trezeguet skoraði þrennu í leiknum. AC Milan náði aðeins jafntefli gegn Sampdoria í gærkvöldi, en grannar þeirra í Inter geta minnkað forskot Juve með sigri á Lecce í kvöld. Sport 29.1.2006 19:11 « ‹ 189 190 191 192 193 194 195 196 197 … 198 ›
Fleiri hneykslismál í uppsiglingu? Fréttir á Ítalíu herma að þar í landi sé að hefjast ítarlega rannsókn í knattspyrnuheiminum eftir að grunur vaknaði um að úrslitum leikja í A-deildinni þar í landi hafi verið hagrætt með mútum. Forráðamenn Lazio, Juventus og Fiorentina liggja undir grun, auk þess sem HM dómarinn Massimo De Santis er sagður liggja undir grun. Sport 12.5.2006 15:23
Inter bikarmeistari annað árið í röð Inter Milan varð í kvöld bikarmeistari á Ítalíu annað árið í röð eftir að liðið lagði Roma 3-1 á heimavelli sínum í síðari leik liðanna og því samanlagt 4-2. Esteban Cambiasso, Julio Cruz og Obafemi Martins skoruðu mörk heimamanna í kvöld, en Shabani Nonda minnkaði muninn fyrir Rómverja. Sport 11.5.2006 21:06
Stjórn Juventus segir af sér Stjórn knattspyrnufélagsins Juventus sagði af sér á einu bretti í dag eftir að sannað þótti að stjórnarmenn félagsins hefðu með skipulögðum hætti haft áhrif á það hvaða dómarar dæmdu leiki liðsins í gegn um tíðina. Sönnunargögn eins og upptökur af símtölum voru lögð fram í málinu og því gátu stjórnarmenn ekki annað en sagt af sér. Sport 11.5.2006 19:00
Titilbaráttan enn opin á Ítalíu Juventus náði ekki að tryggja sér Ítalíumeistaratitilinn í knattspyrnu í dag þrátt fyrir 2-1 sigur á Palermo í næst síðustu umferð deildarinnar þar í landi. Á sama tíma unnu helstu keppinautar þeirra í AC Mila sem er í öðru sæti, 2-3 útisigur á Parma en þrjú stig skilja liðin fyrir lokaumferðina. Sport 7.5.2006 15:30
Juventus getur tryggt sér titilinn í dag Juventus getur tryggt sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu annað árið í röð í dag, sunnudag, þegar meistararnir taka á móti Palermo á heimavelli sínum, Delle Alpi. Til að svo verði þarf Juve að vinna sigur og AC Milan að mistakast að vinna sigur gegn Parma á útivelli en þrjú stig skilja toppliðin tvö að þegar tveimur umferðum er ólokið. Sport 6.5.2006 17:46
Forskot Juventus einungis þrjú stig Juventus gerði 1-1 jafntefli við Lazio á heimavelli sínum í dag á meðan AC-Milan sigraði Messina 3-1 á útivelli. Forskot Juventus er því komið niður í 3 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en Juventus hefur mistekist að sigra í fimm deildarleikjum í röð. Sport 22.4.2006 14:06
Roma mætir Inter í úrslitum Roma tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum ítölsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði Palermo 1-0 á heimavelli sínum. Það var gamla kempan Damiano Tommasi sem skoraði sigurmark Rómverja á 30. mínútu. Roma tapaði fyrri leiknum 2-1 en kemst áfram á marki skoruðu á útivelli. Liðið mætir Inter Milan í úrslitum keppninnar. Sport 12.4.2006 21:38
Fordæmir árásir á leikmenn Inter Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan segir að stuðningsmenn liðanna í ítölsku deildinni verði að fara að hugsa sinn gang eftir að stuðningsmenn Inter Milan réðust að tveimur leikmönnum liðsins á dögunum eftir að þeim þótti gengi liðsins ekki viðunandi. Sport 11.4.2006 19:09
Inter í úrslitin Inter Milan komst í dag í úrslitaleikinn í ítalska bikarnum þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Udinese á útvielli og er því komið áfram samanlangt 3-2. Santiago Solari og David Pizarro skoruðu mörk Inter í leiknum, en liðið hefur titil að verja frá í fyrra. Inter mætir annað hvort Roma eða Palermo í úrslitunum, en þessi lið eigast við öðru sinni á morgun og þar hefur Palermo 2-1 forystu eftir fyrri leikinn. Sport 11.4.2006 19:21
Kaka skoraði þrennu Brasilíski leikstjórnandinn Kaká fór á kostum í dag þegar AC Milan tók Verona í kennslustund 4-1 í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu. Milan lenti undir 1-0 í leiknum, en varnarmaðurinn Nesta jafnaði leikinn og svo skoraði Kaká þrennu í síðari hálfleiknum, þar af eitt mark úr vítaspyrnu. Milan er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar á eftir Juventus og eru tveimur stigum á undan grönnum sínum í Inter sem eru í þriðja sætinu. Sport 9.4.2006 17:20
Ancelotti framlengir við Milan Carlo Ancelotti hefur framlengt núgildandi samning sinn við AC Milan um eitt ár og verður því við stjórn hjá félaginu til ársins 2008. Ancelotti er á sínu fimmta ári með AC Milan, en hann hafði verið orðaður við stjórastöðuna hjá Real Madrid síðustu daga. Sport 21.3.2006 16:42
Hefur augastað á Henry og Nistelrooy Massimo Moratti, eigandi Inter Milan á Ítalíu, hefur augastað á þeim Thierry Henry hjá Arsenal og Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United í leit sinni að framherja fyrir næstu leiktíð. Hann gerir sér þó litlar vonir um að krækja í Henry og segir Nistelrooy vera raunhæfara markmið fyrir félag sitt. Sport 21.3.2006 14:37
Udinese átti ekki séns í AC Milan Andriy Shevchenko skoraði 18. markið sitt í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að skora tvö mörk þegar AC Milan tók Udinese í kennslustund með 4-0 útisigri. Inter Milan er tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum eftir 3-1 sigur á Lazio í dag þar sem Alvaro Recoba skoraði tvívegis. Sport 19.3.2006 16:52
Trezeguet með tvö mörk fyrir Juventus David Trezeguet skoraði tvívegis fyrir Juventus í kvöld þegar liðið sigraði Livorno 1-3 á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Alessandro Del Piero gulltryggði sigur Juve á lokasekúndum leiksins eftir að Trezeguet hafði komið gestunum tvisvar yfir í leiknum. Í hinum leik kvöldsins á Ítalíu vann Cagliari 1-2 útisigur á botnliði Treviso. Sport 18.3.2006 21:50
Albertini lék kveðjuleik sinn í gær Ítalski miðjumaðurinn Demetrio Albertini reimaði á sig fótboltaskóna í síðasta sinn á San Siro í Mílanó í gærkvöld þegar spilaður var sérstakur kveðjuleikur honum til heiðurs. Margir af frægustu leikmönnum Milan í gegn um árin tóku þátt í leiknum og sýndu Albertini virðingu sína. Sport 16.3.2006 15:49
Lögregla biður stuðningsmenn að róa sig Löglregluyfirvöld í Róm hafa biðlað til stuðningsmanna Roma og Middlesbrough að sýna stillingu í kvöld þegar liðin mætast í Evrópukeppni félagsliða, en fyrr í dag slösuðust þrettán enskir stuðningsmenn í árás öfgasinnaðra stuðningsmanna sem kenna sig við lið Roma. Þrír stuðningsmenn voru stungnir og liggja á sjúkrahúsi. Sport 15.3.2006 18:35
Englendingar stungnir í átökum í Róm Þrír stuðningsmenn enska liðsins Middlesbrough vor stungnir í gær og fleiri eru á sjúkrahúsi eftir að fótboltabullur sem kalla sig "Ultras" og kenna sig við lið Roma í höfuðborginni, réðust að fólkinu þar sem það sat við drykkju í gærkvöld. Ensku áhorfendurnir munu hafa verið hið prúðasta fólk og var margt þeirra með börn sín meðferðis. Roma og Middlesbrough mætast í Evrópukeppninni í kvöld. Sport 15.3.2006 14:17
Juventus í þægilegri stöðu Meistarar Juventus hafa þægilegt 10 stiga forskot á toppi ítölsku deildarinnar eftir markalaust stórmeistarajafntefli við AC Milan á heimavelli sínum í kvöld í leik sem olli nokkrum vonbrigðum. Gennaro Gattuso var vikið af leikvelli um miðjan síðari hálfleikinn, en heimamenn gerðu sér jafnteflið að góðu og fátt bendir til annars en að þeir verji titil sinn á Ítalíu. Leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn. Sport 12.3.2006 21:36
Juventus - AC Milan í beinni á Sýn í kvöld Leikur ársins í ítalska boltanum verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld þegar meistarar Juventus taka á móti erkifjendum sínum í AC Milan á Delle Alpi. Útsending hefst klukkan 19:20, en þá verður viðureign Osasuna og Barcelona í spænska boltanum í beinni útsendingu á Sýn Extra og hefst útsending þar klukkan 19:55. Sport 12.3.2006 18:15
Fiorentina upp fyrir Roma Fiorentina endurheimti 4. sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið vann 2-1 sigur á Siena. Hinn ungi sóknarmaður Giampaolo Pazzini skoraði sigurmarkið í viðbótartíma og lyfti liði sínu upp fyrir Roma sem á leik til góða gegn Inter síðar í kvöld. Sport 5.3.2006 17:17
Milan og Juve unnu sína leiki Juventus vann Sampdoria 1-0 í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Pavel Nedved skoraði eina mark leiksins á 69. mínútu. AC Milan vann Empoli 3-0 þar sem Filippo Inzahgi skoraði tvö markanna og Andrei Schevshenko eitt. Juventus er á toppi deildarinnar og hefur 10 stiga forystu á AC Milan. Í kvöld mætast Roma og Inter en leikurinn verður sýndur á Sýn extra klukkan 19:30. Sport 5.3.2006 14:01
Roma sló metið Lið Roma í ítölsku A-deildinni setti í gær met í deildinni þegar það vann 11. leikinn í röð. Ekki skemmdi fyrir að sigurinn kom einmitt gegn grönnum þeirra og erkifjendum í Lazio. Það voru Rodrigo Taddei og Alberto Aquilani sem skoruðu mörk Roma í 2-0 sigri liðsins, sem var án fyrirliða síns Francesko Totti sem er meiddur. Sport 27.2.2006 16:03
Rómarslagurinn í beinni í kvöld Hinir fornu fjendur í Rómarborg Lazio og Roma eigast við í ítölsku A-deildinni í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:50. Það er jafnan heitt í kolunum þegar þessi lið mætast og til dæmis var allt á suðupunkti þegar liðin mættust síðast í deildinni. Sport 26.2.2006 10:10
Frá keppni í tvo mánuði Ítalski sóknarmaðurinn Fransesco Totti verður frá keppni í um tvo mánuði eftir meiðsli sem hann hlaut í leiknum gegn Empoli í kvöld en Roma vann leikinn 1-0. Sport 20.2.2006 01:16
Juventus að stinga af Meistarar Juventus tóku stórt skref í titilvörn sinni í ítölsku A-deildinni í kvöld þegar liðið lagði Inter Milan á útivelli 2-1 í stórleik helgarinnar sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn Extra. Zlatan Ibrahimovic kom Juve yfir í leiknum, en eftir að Walter Samuel jafnaði leikinn í síðari hálfleiknum, skoraði Alessandro del Piero sigurmark Tórínóliðsins fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 12.2.2006 21:49
Mancini horfir á annað sætið Roberto Mancini, þjálfari Inter, segist í dag vera meira að einbeita sér að því að ná öðru sætinu í A-deildinni en að steypa Juventus af stalli á toppnum. Juventus og Inter mætast einmitt í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:25. Sport 12.2.2006 16:10
Udinese rekur þjálfarann Ítalska A-deildarliðið Udinese rak í dag þjálfara sinn Serse Cosmi, en hann er níundi þjálfarinn í deildinni sem fær að taka pokann sinn í vetur. Við starfi hans tekur Loris Dominissini, sem áður stýrði liði smáliði Como og hóf það úr neðri deildunum á Ítalíu og upp í A-deildina fyrir nokkrum árum. Sport 10.2.2006 18:18
Fiorentina - Inter í beinni á Sýn Extra Viðureign Fiorentina og Inter Milan verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:35 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur klukkan 22:05 á Sýn síðar um kvöldið, eða þegar leik Chelsea og Everton í enska bikarnum er lokið. Sport 8.2.2006 18:37
Sjöundi sigur Roma í röð Roma vann í gærkvöldi 7. leik sinn í röð í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Parma 3-0. Í dag klukkan 14 verður leikur Chievo og Inter sýndur beint á Sýn. Aðrir leikir á Ítalíu í dag verða; Sport 5.2.2006 13:17
Juventus heldur sínu striki Juventus heldur sínu striki á toppi ítölsku A-deildarinnar eftir 3-1 sigur á Ascoli á útivelli í dag. Franski sóknarmaðurinn David Trezeguet skoraði þrennu í leiknum. AC Milan náði aðeins jafntefli gegn Sampdoria í gærkvöldi, en grannar þeirra í Inter geta minnkað forskot Juve með sigri á Lecce í kvöld. Sport 29.1.2006 19:11
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið