Ítalski boltinn

Fréttamynd

Stórleikur í ítalska boltanum

Efstu liðin í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, AC Milan og Juventus, mætast í deildinni í dag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 13.

Sport
Fréttamynd

Juventus vann Milan

Juventus sigraði AC Milan fyrir framan 68 þúsund áhorfendur á San Siro í dag með einu marki gegn engu. Það var Frakkinn David Trezeguet sem skoraði sigurmarið á tuttugustu mínútu. Juve er þá komið með þriggja stiga forristu á Milan þegar þrjár umferðir eru eftir.

Sport
Fréttamynd

Mourinho vill Crespo aftur

Framkvæmdastjóri Cheslea, Portúgalinn Jose Mourinho, hefur sagt að hann vilji fá Hernan Crespo aftur á Stamford Bridge næsta tímabil. Þessi argentínski sóknarmaður er sem stendur á árs lánssamning hjá AC Milan eftir að hann náði sér ekki á strik hjá Chelsea í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Úrslitaleikur á Ítalíu

Á sunnudag fer fram einn af leikjum knattspyrnutímabilsins í Evrópu þegar AC Milan tekur á móti Juventus. Þegar fjórar umferðir eru eftir af leiktíðinni eru liðin eru jöfn að stigum á toppi ítölsku deildarinnar en ef annað hvort liðið nær að knýja fram sigur á það meistartitilinn vísan. AC Milan eru ríkjandi meistarar en Juventus er það lið sem oftast hefur hampað ítalska titlinum.

Sport
Fréttamynd

5 leikja bannið stendur hjá Totti

Aganefnd ítalska knattspyrnusmbandsins hefur synjað áfrýjun Francesco Totti gegn 5 leikja banni sem sóknarmaðurinn skapbráði var úrskurðarður í á dögunum. Ítalski landsliðsfyrirliðinn var rekinn af leikvelli í annað sinn á skömmum tíma eftir að hafa lent í ryskingum við Francesco Colonnese þegar Roma mætti Siena á dögunum.

Sport
Fréttamynd

AC Milan með þriggja stiga forskot

AC Milan náði í gær þriggja stiga forskoti í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með góðum sigri á Fiorentina, 2-1. Það var Andryi Shevchenko sem skoraði bæði mörk Milan sem er með 76 stig en Juventus getur náð Mílanónliðinu að stigum í dag sigri það Bologna í leik sem nú stendur yfir og er sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Landsliðsfyrirliði í læknisleik

Einari Logi Vignisson skrifar alltaf um boltann í suður-Evrópu í Fréttablaðinu á sunnudögum. Að þessi fjallar hann um dópið á Ítalíu sem er leikmönnum enn hættulegri en samkvæmisdópið.

Sport
Fréttamynd

Juventus ekki svipt titlunum

Juventus verður ekki svipt titlunum sem liðið vann á síðasta áratug, þrátt fyrir að læknir liðsins hafi verið fundinn sekur um að láta leikmenn nota lyfjavítamínskammta. Þetta er niðurstaða alþjóðlegs íþróttadómstóls.

Sport
Fréttamynd

Er Totti á leið til Milan?

Silvio Berlusconi gaf í dag vísbendingu þess efnis að AC Milan muni reyna að kaupa Francesco Totti, en hann svaraði spurningum blaðamanna með pólitískum stíl, brosti út að eyrum og sagði: <em>,,Ég segi ekkert á þessari stundu."</em>

Sport
Fréttamynd

Milan náði toppsætinu

AC Milan náði fyrsta sætinu í ítölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi með 3-0 sigri á Parma. Brasilíumennirnir Kaka og Cafu og Daninn John Dahl Tomasson skoruðu mörkin.

Sport
Fréttamynd

Áfrýja banni Zlatans

Ítalska knattspyrnufélagið Juventus ætlar að áfrýja úrskurði aganefndar ítalska knattspyrnusambandsins sem dæmdi sænska sóknarmanninn hjá Juventus, Zlatan Ibrahimovic, í þriggja leikja bann.

Sport
Fréttamynd

Totti fær 5 leikja bann - Zlatan 3

Aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins dæmdi í gær fyrirliða Roma, Francesco Totti, í fimm leikja bann og Svíann Zlatan Ibrahimovic hjá Juventus í þriggja leikja bann.

Sport
Fréttamynd

Inter yfir gegn Juventus

Inter Milan er yfir, 0-1, á útivelli gegn toppliði Juventus í stórleik kvöldsins í ítölsku 1. deildinni í knattpsyrnu en heil umferð er leikin þar í kvöld. Vinni Inter geta erkifjendur þeirra í AC Milan smyglað sér á topp deildarinnar með sigri á Chievo en staðan þar er 0-0 í hálfleik. Leikur Juventus og Inter er sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Juve - Inter á Sýn í kvöld

Heil umferð er í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Stórleikur kvöldsins er viðureign toppliðs Juventus og Internationale sem er í þriðja sæti deildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan 18.30. AC Milan, sem er í 2. sæti, tekur á móti Chievo.

Sport
Fréttamynd

Inter lagði Juve og Milan vann

Inter Milan vann óvæntan 0-1 útisigur á Juventus í stórleik Serie A í ítalska fótboltanum í kvöld og setti fyrir vikið toppbaráttuna í deildinni í háspennu. Julio Cruz skoraði sigurmarkið á 24. mínútu en á sama tíma náði AC Milan að jafna Juve að stigum með 1-0 sigri á Chievo þar sem Clarence Seedorf skoraði sigurmarkið.

Sport
Fréttamynd

Óvænt tap AC Milan í Serie A

Juventus læddi sér á topp ítölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag, Serie A, eftir 5-2 sigur á Lecce á meðan AC Milan missteig sig í toppbaráttunni og tapaði óvænt fyrir Siena, 2-1.

Sport
Fréttamynd

Sampdoria í fjórða sætið á Ítalíu

Á Ítalíu skaust Sampdoria upp í fjórða sætið eftir sigur á Palermo, 1-0, í gær. Franceso Flachi skoraði sigurmarki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Roma tapaði heima fyrir Reggina, 1-2, og Messina vann Udinese 1-0.

Sport
Fréttamynd

3-0 tap vegna fótboltabullna

Ítalska knattspyrnusambandið hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í áttina að hertri meðferð gegn knattspyrnubullum þar í landi í kjölfar ólátanna á leik AC Milan og Inter Milan á San Siro í gærkvöldi. Héðan í frá verður engin miskunn hjá Magnúsi hjá ítalska sambandinu sem hefur boðað róttækar aðgerðir.

Sport
Fréttamynd

Óvænt úrslit á Ítalíu

Óvænt úrslit urðu í ítalska boltanum í gærkvöld. AC Milan og Brescia skildu jöfn, 1-1. Rui Costa kom Milan yfir en Pierre Wome jafnaði metin fyrir Brescia fimm mínútum fyrir leikslok.

Sport
Fréttamynd

Crespo vill vera áfram hjá Milan

Argentínumaðurinn Hernan Crespo er staðráðinn í að vera áfram innan raða ítalska liðsins AC Milan en hann er í láni hjá félaginu frá Chelsea þangað til í sumar.

Sport
Fréttamynd

Buffon að framlengja

Juventus ætla að framlengja samning sinn við ítalska landsliðsmarkvörðinn Gianluigi Buffon til að fæla frá áhugasöm lið á borð við Real Madird, en spænsku risarnir hafa mikin áhuga á markverðinum snjalla og hafa þegar boðið 30 milljón evrur sem forráðamenn Juventus höfnuðu.

Sport
Fréttamynd

Crespo var nálægt því að hætta

Argentínski landsliðsmaðurinn Hernan Crespo viðurkenndi á dögunum að hann hefði verið nálægt því að leggja skónna á hilluna meðan á dvöl hans hjá Chelsea stóð.

Sport
Fréttamynd

Real minnkaði forskotið

Real Madrid minnkaði forskot Barcelona niður í ellefu stig í spænsku úrvalsdeildinni eftir sigur á Malaga, 1-0. Roberto Carlos skoraði sigurmarkið. Þá endurheimti AC Milan efsta sætið á Ítalíu eftir 2-0 útisigur á Roma.

Sport
Fréttamynd

Juventus áfram á sigurbraut

Juventus sigraði Reggina 1-0 með marki Alessandro Del Piero í fótboltanum á Ítalíu í gærkvöldi. Juventus hefur þriggja stiga forystu á AC Milan en Mílanómenn geta endurheimt forystuna takist þeim að sigra Roma í Rómaborg í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og hann verður sýndur beint á Sýn 2. Siena vann Lazio 1-0 í gærkvöldi. Króatinn Igor Tudor skoraði markið.

Sport
Fréttamynd

Maldini hjá Milan til 2007

Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, framlengdi í gær samning sinn við Mílanóliðið til loka júní 2007. Maldini er 36 ára en hann lék fyrsta leik sinn fyrir AC Milan í janúar 1985.

Sport
Fréttamynd

Cagliari áfram þrátt fyrir tap

Sampdoria vann Cagliari 3-2 í ítölsku bikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi en sigurinn dugði ekki því Cagliari vann fyrri leikinn 2-0 og mætir Inter Milan í undanúrslitum.

Sport
Fréttamynd

Udinese sló AC Milan út

Udinese sló AC Milan út í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í gærkvöldi. Udinese vann seinni leikinn 4-1 og báða leikina samanlagt 6-4. Þá komst Roma einnig í 8-liða úrslit á kostnað Fiorentina.

Sport
Fréttamynd

Enn eitt jafnteflið hjá Inter

Internationale gerði enn eitt jafnteflið í ítölsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Lazio og Inter gerðu jafntefli, 1-1. Antonio Filippini skoraði mark Lazio en Julio Crus fyrir Inter. Þá gerðu Lecce og Fiorentina jafntefli, 2-2. Leikur Chievo og Juventus verður sýndur á Sýn klukkan 20 í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Di Canio sektaður

Ítalski framherjinn Paulo di Canio, sem leikur með Lazio, var í dag sektaður af aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins fyrir að heilsa stuðningsmönnum Lazio með fasistakveðju í sigurleik liðsins gegn erkifjendunum í Roma fyrr í vetur.

Sport