Þýski boltinn Forysta Bayern aðeins eitt stig Bayern Munchen þurfti í dag að sætta sig við 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Schalke í toppleiknum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þrumufleygur Iva Rakitic á 36. mínútu sló þögn á 66,000 áhorfendur á Alianz Arena, en Miroslav Klose jafnaði metin fyrir heimamenn níu mínutum eftir hlé. Fótbolti 15.9.2007 17:44 Klose skoraði bæði í sigri á Wales Tvö mörk frá Miroslav Klose færðu Þýskalandi 2-0 sigur yfir Wales í D-riðlinum. Þessi sóknarmaður Bayern München skoraði fyrra mark sitt eftir aðeins fimm mínútna leik og bætti síðan öðru við með skalla í þeim síðari. Fótbolti 8.9.2007 22:42 Jose Sosa úr leik hjá Bayern Argentínski landsliðsmaðurinn Jose Sosa getur ekki leikið með Bayern Munchen næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að hafa farið í aðgerð á ökkla. Sosa var keyptur til Bayern fyrir stórfé frá Estudiantes í sumar. Miðjumaðurinn efnilegi hafði reyndar aðeins komið við sögu í tveimur leikjum liðsins til þessa. Fótbolti 6.9.2007 15:08 Gunnar Heiðar á leiðinni til Våleranga Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þessa stundina á leiðinni til Noregs þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá úrvalsdeildarliðinu Våleranga í fyrramálið. Ef Gunnar Heiðar stenst skoðunina mun hann skrifa undir tíu mánaða lánssamning við félagið, eða til lok júní. Þetta staðfestir Ólafur Garðarson, umboðsmaður leikmannsins, í samtali við Vísi í dag. Fótbolti 28.8.2007 18:25 Schalke jafnaði í lokin Tveir leikir voru í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Alexander Meier skoraði eina markið í leik Eintracht Frankfurt og Hansa Rostock þar sem heimamenn hrósuðu sigri. Þá gerðu Wolfsburg og Schalke 1-1 jafntefli þar sem Schalke jafnaði á 86. mínútu. Fótbolti 26.8.2007 17:29 Þriðji sigur Bayern í röð Bayern München fer vel af stað í þýsku Bundesligunni en liðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína. Liðið lagði Hannover að velli 3-0 í dag en mörkin skoruðu Luca Toni, Mark van Bommel og Hamit Altintop. Fótbolti 25.8.2007 16:08 Santa Cruz vill fara frá Bayern Munchen Paragvæski framherjinn Roque Santa Cruz, er ákveðinn í að komast frá Bayern Munchen, en hann er sagður vera ofarlega á óskalista Manchester City og Blackburn. Framherjinn hefur átt erfitt hjá félaginu upp á síðkastið og er aftarlega í goggunarröðinni hjá Uli Hoeness, framkvæmdastjóra Bayern. Fótbolti 23.7.2007 14:29 Hitzfeld ánægður með nýju leikmennina Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segist ekki geta beðið eftir að leiktíðin hefjist í Þýskalandi eftir að félagið pungaði út 70 milljónum evra til leikmannakaupa í sumar. Hann segir nýju leikmennina ekki aðeins smellpassa inn í liðið á vellinum heldur séu þeir allir góðir drengir. Fótbolti 17.7.2007 16:55 Makaay farinn til Feyenoord Framherjinn Roy Makaay er farinn frá Bayern Munchen í Þýskalandi og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Feyenoord í heimalandi sínu. Bayern keypti Makaay fyrir metfé, 18,75 milljónir evra, árið 2003. Hann var ekki inni í framtíðarplönum þýska félagsins fyrir næstu leiktíð og snýr nú aftur til félagsins sem hann lék með í heimalandinu fyrir áratug. Fótbolti 28.6.2007 14:24 Makaay vildi ekki fara til Bremen Nú er ljóst að hollenski framherjinn Roy Makaay mun fara frá Bayern Munchen eftir að félagið festi kaup á Miroslav Klose frá Bremen. Makaay fellur fyrir vikið aftar í goggunarröðinni hjá liðinu og segir talsmaður Bayern honum frjálst að fara - þó aðeins fyrir rétt verð. Fótbolti 27.6.2007 16:00 Klose skrifar undir hjá Bayern Bayern Munchen sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að félagið hafi nú loks fest kaup á landsliðsmanninum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Klose var markakóngur á HM í Þýskalandi í fyrra og hefur lengi verið orðaður við Bayern. Klose hefur þegar undirritað samning við Bayern sem sagður er gilda til ársins 2011. Kaupverðið er um 12 milljónir ef marka má frétt Kicker um málið, en formlegt kaupverð var ekki gefið upp. Fótbolti 26.6.2007 13:29 Robert Kovac til Þýskalands á ný Króatíski varnarjaxlinn Robert Kovac hefur ákveðið að snúa aftur í þýsku úrvalsdeildina en í dag gekk hann frá samningi við Dortmund. Kovac lék með Juventus á síðustu leiktíð en var með lausa samninga þar í sumar. Hann hafði upprunalega ætlað að ganga í raðir Dinamo Zagreb í heimalandinu, en ákvað að fara til Þýskalands þar sem hann er öllum hnútum kunnugur eftir að hafa spilað með Leverkusen og Bayern á árum áður. Fótbolti 20.6.2007 20:30 Helmingur leikmanna notaði örvandi lyf Fyrrum knattspyrnuþjálfarinn Peter Neururer fullyrðir að allt að helmingur knattspyrnumanna í þýsku knattspyrnunni hafi notað örvandi lyf á árum áður. Neururer hefur þjálfað mörg lið í efstu deildum í Þýskalandi, þar á meðal Schalke og FC Köln. Fótbolti 13.6.2007 17:37 Makaay og Santa Cruz geta farið frá Bayern Framherjarnir Roque Santa Cruz og Roy Makaay gætu báðir verið á förum frá Bayern Munchen í Þýskalandi í sumar ef félagið nær að festa kaup á framherjanum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Bayern á ekki sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en forráðamenn félagsins láta það ekki stöðva sig í að kaupa leikmenn. Fótbolti 12.6.2007 00:34 Klose ætlar til Bayern Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen staðfesti endanlega í dag að hann ætlaði sér að ganga í raðir Bayern Munchen í sumar. Klose er 28 ára en á enn eitt ár eftir af samningi sínum við Bremen og það kemur til með að flækja málið nokkuð. "Ég hef ákveðið að spila fyrir Bayern á næstu leiktíð, en ég mun engu að síður leggja mig allan fram með Bremen ef ekkert verður af félagaskiptunum," sagði Klose. Fótbolti 7.6.2007 15:56 Ribery semur við Bayern Munchen Bayern Munchen festi í dag kaup á franska landsliðsmanninum Franck Ribery frá Marseille í Frakklandi fyrir 26 milljónir evra og hefur hann þegar undirritað fjögurra ára samning við þýska stórveldið. Því er svo haldið fram að fjórar milljónir evra muni bætast við kaupverðið ef Bayern nær að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Ribery sló í gegn með Frökkum á HM í fyrra og hefur verið mjög eftirsóttur - meðal annar af Arsenal. Hann er 24 ára gamall og á að baki 18 landsleiki. Fótbolti 7.6.2007 15:49 Ribery á leið til Bayern fyrir metfé Franski landsliðsmaðurinn, Franck Ribery, er á leið til Bayern Munchen fyrir metfé. Talið er að Ribery skrifi undir samning við félagið á fimmtudaginn. Kaupverðið er talið vera um 17 milljónir punda. Fótbolti 6.6.2007 14:23 Magath tekur við Wofsburg Felix Magath hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri þýska úrvalsdeildarfélagsins Wofsburg. Auk þess að þjálfa liðið verður honum gert að sjá alfarið um leikmannamál hjá félaginu. Hann hefur skrifað undir samning til ársins 2010, en hann stýrði áður Bayern Munchen og gerði liðið að tvöföldum meisturum tvö ár í röð. Fótbolti 31.5.2007 17:56 Diego leikmaður ársins í Þýskalandi Brasilíski miðjumaðurinn Diego hjá Werder Bremen var í dag kjörinn leikmaður ársins í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en það voru leikmennirni sjálfir sem stóðu að valinu. Diego gekk í raðir Bremen frá Porto fyrir 6 milljónir evra fyrir síðasta tímabil og fékk ríflega 50% atkvæða í kjörinu. Markvörðurinn ungi Manuel Neuer hjá Schalke var kjörinn besti markvörðurinn. Fótbolti 29.5.2007 16:36 Toni fer til Bayern Ítalski landsliðsframherjinn Luca Toni hjá Fiorentina mun ganga í raðir Bayern Munchen í Þýskalandi í sumar. Þetta staðfesti forseti ítalska félagsins í dag. Toni stóð til boða að ganga til liðs við bæði stórliðin í Mílanó, en hinn 30 markaskorari vildi heldur fara ti Þýskalands af virðingu við Fiorentina. Talið er að verðmiðinn á kappanum verði í kring um 8 milljónir punda. Fótbolti 29.5.2007 14:44 Nurnberg þýskur meistari Nurnberg tryggði sér í gær dramatískan sigur í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði nýkrýnda deildarmeistara Stuttgart 3-2 í framlengdum úrslitaleik á Ólympíuleikvangnum. Stuttgart spilaði með 10 menn frá 31. mínútu þegar markaskoraranum Cacau var vísað af velli fyrir að kýla andstæðing sinn. Fótbolti 27.5.2007 04:55 Segir Stuttgart eiga titilinn skilinn Armin Veh, þjálfari nýkrýndra Þýskalandsmeistara Stuttgart, segir fráleitt að halda því fram að lið hans eigi titilinn ekki skilið. Leikmenn og forráðamenn Schalke létu hafa eftir sér eftir lokaumferðina í gær að lið sem væri á toppnum í þrjár vikur af 34 vikna tímabili ætti ekki skilið að standa uppi sigurvegari. Schalke var á toppi deildarinnar í 15 vikur í vetur. Fótbolti 20.5.2007 14:24 Stuttgart meistari í Þýskalandi Stuttgart varð í dag meistari í þýsku knattspyrnunni en þá sigraði liðið Energie Cottbus, 2:1, á heimavelli í lokaumferð deildarinnar. Stuttgart nægði að fá eitt stig fyrir leikinn til að tryggja sér meistaratitilinn en eftir slæma byrjun í dag, þar sem Cottbus náði forystu eftir 19. mínútna leik, náðu heimamenn að svara með tveimur mörkum. Fótbolti 19.5.2007 16:54 Hildebrand dreymir um tvöfaldan sigur Timo Hildebrand, markvörður og fyrirliði Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni, býst við að spila sínar erfiðustu 90 mínútur á ferlinum gegn Energie Cottbus í lokaumferð deildarinnar í dag. Stuttgart nægir jafntefli til að tryggja sér þýska titilinn og segir Hildebrand það vera árangur sem engum hefði órað fyrir í upphafi tímabilsins. Fótbolti 19.5.2007 13:05 Hitzfelt ætlar að hætta á næsta ári Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, hefur gefið það út að hann ætli að hætta að eftir næsta keppnistímabil. Hitzfeld tók við liðinu eftir að Felix Magath var rekinn í febrúar en hann vill að yngri maður taki við starfi sínu eftir það. Fótbolti 17.5.2007 15:52 Kahn: Leikmenn skorti hungur Oliver Kahn, fyrirliði Bayern Munchen, segir að leikmenn liðsins hafi skort hungur í vetur og segir það ástæðu þess að liðið á ekki möguleika á að enda ofar en í fjórða sæti deildarinnar. Fótbolti 16.5.2007 17:04 Frings hafnaði Juventus Þýski landsliðsmaðurinn Torsten Frings hefur framlengt samning sinn við Werder Bremen í Þýskalandi og því verður ekkert af fyrirhugaðri för hans til ítalska liðsins Juventus eins og til stóð. "Ég fékk fínt tilboð frá Juventus en hjartað sagði mér að vera áfram hjá Bremen," sagði Frings sem er nú samningsbundinn félaginu til 2011. Fótbolti 10.5.2007 15:02 Schalke heldur toppsætinu Schalke hefur enn eins stigs forystu á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann 1-0 sigur á Nurnberg í dag. Stuttgart er í öðru sæti eftir 2-0 sigur á Mainz. Bayern verður líklega að gera sér sæti í UEFA keppninni að góðu eftir 1-1 jafntefli við botnlið Gladbach. Bremen er fimm stigum á eftir Schalke og á enn möguleika á titlinum ef það leggur Hertha á morgun. Fótbolti 5.5.2007 18:46 Gunnar Heiðar að fá samkeppni? Þýska úrvalsdeildarfélagið Hannover er nú sagt vera langt komið með að semja við Birmingham á Englandi um kaup á finnska framherjanum Mikael Forssell fyrir um eina milljón punda. Forssell á eitt ár eftir af samningi sínum við Birmingham, en hann er fæddur í Þýskalandi og hefur reynslu af því að spila þar í landi. Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover. Fótbolti 3.5.2007 13:21 Klose fer ekki til Bayern Forráðamenn Werder Bremen í Þýskalandi hafa nú ítrekað að framherjinn Miroslav Klose muni ekki fara til Bayern Munchen í sumar eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum þar í landi. Bayern á yfir höfði sér refsingu eftir að félagið átti ólöglegan fund með landsliðsmanninum á dögunum. "Klose fer ekki til annars liðs í Þýskalandi í sumar," sagði talsmaður Bremen. Klose á eitt ár eftir af samningi sínum. Fótbolti 2.5.2007 15:31 « ‹ 105 106 107 108 109 110 111 112 113 … 116 ›
Forysta Bayern aðeins eitt stig Bayern Munchen þurfti í dag að sætta sig við 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Schalke í toppleiknum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þrumufleygur Iva Rakitic á 36. mínútu sló þögn á 66,000 áhorfendur á Alianz Arena, en Miroslav Klose jafnaði metin fyrir heimamenn níu mínutum eftir hlé. Fótbolti 15.9.2007 17:44
Klose skoraði bæði í sigri á Wales Tvö mörk frá Miroslav Klose færðu Þýskalandi 2-0 sigur yfir Wales í D-riðlinum. Þessi sóknarmaður Bayern München skoraði fyrra mark sitt eftir aðeins fimm mínútna leik og bætti síðan öðru við með skalla í þeim síðari. Fótbolti 8.9.2007 22:42
Jose Sosa úr leik hjá Bayern Argentínski landsliðsmaðurinn Jose Sosa getur ekki leikið með Bayern Munchen næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að hafa farið í aðgerð á ökkla. Sosa var keyptur til Bayern fyrir stórfé frá Estudiantes í sumar. Miðjumaðurinn efnilegi hafði reyndar aðeins komið við sögu í tveimur leikjum liðsins til þessa. Fótbolti 6.9.2007 15:08
Gunnar Heiðar á leiðinni til Våleranga Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er þessa stundina á leiðinni til Noregs þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá úrvalsdeildarliðinu Våleranga í fyrramálið. Ef Gunnar Heiðar stenst skoðunina mun hann skrifa undir tíu mánaða lánssamning við félagið, eða til lok júní. Þetta staðfestir Ólafur Garðarson, umboðsmaður leikmannsins, í samtali við Vísi í dag. Fótbolti 28.8.2007 18:25
Schalke jafnaði í lokin Tveir leikir voru í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Alexander Meier skoraði eina markið í leik Eintracht Frankfurt og Hansa Rostock þar sem heimamenn hrósuðu sigri. Þá gerðu Wolfsburg og Schalke 1-1 jafntefli þar sem Schalke jafnaði á 86. mínútu. Fótbolti 26.8.2007 17:29
Þriðji sigur Bayern í röð Bayern München fer vel af stað í þýsku Bundesligunni en liðið hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína. Liðið lagði Hannover að velli 3-0 í dag en mörkin skoruðu Luca Toni, Mark van Bommel og Hamit Altintop. Fótbolti 25.8.2007 16:08
Santa Cruz vill fara frá Bayern Munchen Paragvæski framherjinn Roque Santa Cruz, er ákveðinn í að komast frá Bayern Munchen, en hann er sagður vera ofarlega á óskalista Manchester City og Blackburn. Framherjinn hefur átt erfitt hjá félaginu upp á síðkastið og er aftarlega í goggunarröðinni hjá Uli Hoeness, framkvæmdastjóra Bayern. Fótbolti 23.7.2007 14:29
Hitzfeld ánægður með nýju leikmennina Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segist ekki geta beðið eftir að leiktíðin hefjist í Þýskalandi eftir að félagið pungaði út 70 milljónum evra til leikmannakaupa í sumar. Hann segir nýju leikmennina ekki aðeins smellpassa inn í liðið á vellinum heldur séu þeir allir góðir drengir. Fótbolti 17.7.2007 16:55
Makaay farinn til Feyenoord Framherjinn Roy Makaay er farinn frá Bayern Munchen í Þýskalandi og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Feyenoord í heimalandi sínu. Bayern keypti Makaay fyrir metfé, 18,75 milljónir evra, árið 2003. Hann var ekki inni í framtíðarplönum þýska félagsins fyrir næstu leiktíð og snýr nú aftur til félagsins sem hann lék með í heimalandinu fyrir áratug. Fótbolti 28.6.2007 14:24
Makaay vildi ekki fara til Bremen Nú er ljóst að hollenski framherjinn Roy Makaay mun fara frá Bayern Munchen eftir að félagið festi kaup á Miroslav Klose frá Bremen. Makaay fellur fyrir vikið aftar í goggunarröðinni hjá liðinu og segir talsmaður Bayern honum frjálst að fara - þó aðeins fyrir rétt verð. Fótbolti 27.6.2007 16:00
Klose skrifar undir hjá Bayern Bayern Munchen sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að félagið hafi nú loks fest kaup á landsliðsmanninum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Klose var markakóngur á HM í Þýskalandi í fyrra og hefur lengi verið orðaður við Bayern. Klose hefur þegar undirritað samning við Bayern sem sagður er gilda til ársins 2011. Kaupverðið er um 12 milljónir ef marka má frétt Kicker um málið, en formlegt kaupverð var ekki gefið upp. Fótbolti 26.6.2007 13:29
Robert Kovac til Þýskalands á ný Króatíski varnarjaxlinn Robert Kovac hefur ákveðið að snúa aftur í þýsku úrvalsdeildina en í dag gekk hann frá samningi við Dortmund. Kovac lék með Juventus á síðustu leiktíð en var með lausa samninga þar í sumar. Hann hafði upprunalega ætlað að ganga í raðir Dinamo Zagreb í heimalandinu, en ákvað að fara til Þýskalands þar sem hann er öllum hnútum kunnugur eftir að hafa spilað með Leverkusen og Bayern á árum áður. Fótbolti 20.6.2007 20:30
Helmingur leikmanna notaði örvandi lyf Fyrrum knattspyrnuþjálfarinn Peter Neururer fullyrðir að allt að helmingur knattspyrnumanna í þýsku knattspyrnunni hafi notað örvandi lyf á árum áður. Neururer hefur þjálfað mörg lið í efstu deildum í Þýskalandi, þar á meðal Schalke og FC Köln. Fótbolti 13.6.2007 17:37
Makaay og Santa Cruz geta farið frá Bayern Framherjarnir Roque Santa Cruz og Roy Makaay gætu báðir verið á förum frá Bayern Munchen í Þýskalandi í sumar ef félagið nær að festa kaup á framherjanum Miroslav Klose frá Werder Bremen. Bayern á ekki sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en forráðamenn félagsins láta það ekki stöðva sig í að kaupa leikmenn. Fótbolti 12.6.2007 00:34
Klose ætlar til Bayern Þýski landsliðsframherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen staðfesti endanlega í dag að hann ætlaði sér að ganga í raðir Bayern Munchen í sumar. Klose er 28 ára en á enn eitt ár eftir af samningi sínum við Bremen og það kemur til með að flækja málið nokkuð. "Ég hef ákveðið að spila fyrir Bayern á næstu leiktíð, en ég mun engu að síður leggja mig allan fram með Bremen ef ekkert verður af félagaskiptunum," sagði Klose. Fótbolti 7.6.2007 15:56
Ribery semur við Bayern Munchen Bayern Munchen festi í dag kaup á franska landsliðsmanninum Franck Ribery frá Marseille í Frakklandi fyrir 26 milljónir evra og hefur hann þegar undirritað fjögurra ára samning við þýska stórveldið. Því er svo haldið fram að fjórar milljónir evra muni bætast við kaupverðið ef Bayern nær að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Ribery sló í gegn með Frökkum á HM í fyrra og hefur verið mjög eftirsóttur - meðal annar af Arsenal. Hann er 24 ára gamall og á að baki 18 landsleiki. Fótbolti 7.6.2007 15:49
Ribery á leið til Bayern fyrir metfé Franski landsliðsmaðurinn, Franck Ribery, er á leið til Bayern Munchen fyrir metfé. Talið er að Ribery skrifi undir samning við félagið á fimmtudaginn. Kaupverðið er talið vera um 17 milljónir punda. Fótbolti 6.6.2007 14:23
Magath tekur við Wofsburg Felix Magath hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri þýska úrvalsdeildarfélagsins Wofsburg. Auk þess að þjálfa liðið verður honum gert að sjá alfarið um leikmannamál hjá félaginu. Hann hefur skrifað undir samning til ársins 2010, en hann stýrði áður Bayern Munchen og gerði liðið að tvöföldum meisturum tvö ár í röð. Fótbolti 31.5.2007 17:56
Diego leikmaður ársins í Þýskalandi Brasilíski miðjumaðurinn Diego hjá Werder Bremen var í dag kjörinn leikmaður ársins í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en það voru leikmennirni sjálfir sem stóðu að valinu. Diego gekk í raðir Bremen frá Porto fyrir 6 milljónir evra fyrir síðasta tímabil og fékk ríflega 50% atkvæða í kjörinu. Markvörðurinn ungi Manuel Neuer hjá Schalke var kjörinn besti markvörðurinn. Fótbolti 29.5.2007 16:36
Toni fer til Bayern Ítalski landsliðsframherjinn Luca Toni hjá Fiorentina mun ganga í raðir Bayern Munchen í Þýskalandi í sumar. Þetta staðfesti forseti ítalska félagsins í dag. Toni stóð til boða að ganga til liðs við bæði stórliðin í Mílanó, en hinn 30 markaskorari vildi heldur fara ti Þýskalands af virðingu við Fiorentina. Talið er að verðmiðinn á kappanum verði í kring um 8 milljónir punda. Fótbolti 29.5.2007 14:44
Nurnberg þýskur meistari Nurnberg tryggði sér í gær dramatískan sigur í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þegar liðið lagði nýkrýnda deildarmeistara Stuttgart 3-2 í framlengdum úrslitaleik á Ólympíuleikvangnum. Stuttgart spilaði með 10 menn frá 31. mínútu þegar markaskoraranum Cacau var vísað af velli fyrir að kýla andstæðing sinn. Fótbolti 27.5.2007 04:55
Segir Stuttgart eiga titilinn skilinn Armin Veh, þjálfari nýkrýndra Þýskalandsmeistara Stuttgart, segir fráleitt að halda því fram að lið hans eigi titilinn ekki skilið. Leikmenn og forráðamenn Schalke létu hafa eftir sér eftir lokaumferðina í gær að lið sem væri á toppnum í þrjár vikur af 34 vikna tímabili ætti ekki skilið að standa uppi sigurvegari. Schalke var á toppi deildarinnar í 15 vikur í vetur. Fótbolti 20.5.2007 14:24
Stuttgart meistari í Þýskalandi Stuttgart varð í dag meistari í þýsku knattspyrnunni en þá sigraði liðið Energie Cottbus, 2:1, á heimavelli í lokaumferð deildarinnar. Stuttgart nægði að fá eitt stig fyrir leikinn til að tryggja sér meistaratitilinn en eftir slæma byrjun í dag, þar sem Cottbus náði forystu eftir 19. mínútna leik, náðu heimamenn að svara með tveimur mörkum. Fótbolti 19.5.2007 16:54
Hildebrand dreymir um tvöfaldan sigur Timo Hildebrand, markvörður og fyrirliði Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni, býst við að spila sínar erfiðustu 90 mínútur á ferlinum gegn Energie Cottbus í lokaumferð deildarinnar í dag. Stuttgart nægir jafntefli til að tryggja sér þýska titilinn og segir Hildebrand það vera árangur sem engum hefði órað fyrir í upphafi tímabilsins. Fótbolti 19.5.2007 13:05
Hitzfelt ætlar að hætta á næsta ári Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, hefur gefið það út að hann ætli að hætta að eftir næsta keppnistímabil. Hitzfeld tók við liðinu eftir að Felix Magath var rekinn í febrúar en hann vill að yngri maður taki við starfi sínu eftir það. Fótbolti 17.5.2007 15:52
Kahn: Leikmenn skorti hungur Oliver Kahn, fyrirliði Bayern Munchen, segir að leikmenn liðsins hafi skort hungur í vetur og segir það ástæðu þess að liðið á ekki möguleika á að enda ofar en í fjórða sæti deildarinnar. Fótbolti 16.5.2007 17:04
Frings hafnaði Juventus Þýski landsliðsmaðurinn Torsten Frings hefur framlengt samning sinn við Werder Bremen í Þýskalandi og því verður ekkert af fyrirhugaðri för hans til ítalska liðsins Juventus eins og til stóð. "Ég fékk fínt tilboð frá Juventus en hjartað sagði mér að vera áfram hjá Bremen," sagði Frings sem er nú samningsbundinn félaginu til 2011. Fótbolti 10.5.2007 15:02
Schalke heldur toppsætinu Schalke hefur enn eins stigs forystu á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann 1-0 sigur á Nurnberg í dag. Stuttgart er í öðru sæti eftir 2-0 sigur á Mainz. Bayern verður líklega að gera sér sæti í UEFA keppninni að góðu eftir 1-1 jafntefli við botnlið Gladbach. Bremen er fimm stigum á eftir Schalke og á enn möguleika á titlinum ef það leggur Hertha á morgun. Fótbolti 5.5.2007 18:46
Gunnar Heiðar að fá samkeppni? Þýska úrvalsdeildarfélagið Hannover er nú sagt vera langt komið með að semja við Birmingham á Englandi um kaup á finnska framherjanum Mikael Forssell fyrir um eina milljón punda. Forssell á eitt ár eftir af samningi sínum við Birmingham, en hann er fæddur í Þýskalandi og hefur reynslu af því að spila þar í landi. Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson leikur með Hannover. Fótbolti 3.5.2007 13:21
Klose fer ekki til Bayern Forráðamenn Werder Bremen í Þýskalandi hafa nú ítrekað að framherjinn Miroslav Klose muni ekki fara til Bayern Munchen í sumar eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum þar í landi. Bayern á yfir höfði sér refsingu eftir að félagið átti ólöglegan fund með landsliðsmanninum á dögunum. "Klose fer ekki til annars liðs í Þýskalandi í sumar," sagði talsmaður Bremen. Klose á eitt ár eftir af samningi sínum. Fótbolti 2.5.2007 15:31