Byssuskot Alecs Baldwin Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Kvikmyndin Rust með Alec Baldwin í aðalhlutverki verður brátt frumsýnd á kvikmyndahátíð í Póllandi. Myndin er þegar þekkt um allan heim þar sem kvikmyndatökustjóri myndarinnar Halyna Hutchins lést á setti árið 2021 þegar skot hljóp úr byssu leikarans. Bíó og sjónvarp 3.10.2024 10:22 „Þetta var augljóslega slys“ Tveir kviðdómendur í sakamáli bandaríska leikarans Alec Baldwin hafa nú stigið fram og rætt um málið. Þeir eru á því að það hafi verið augljóst frá upphafi að um slys hafi verið að ræða. Lífið 22.7.2024 16:02 Felldi tár þegar málinu var vísað frá Máli á hendur bandaríska leikaranum Alec Baldwin, þar sem hann var sakaður um manndráp af gáleysi, hefur verið vísað frá dómi. Réttarhöld í málinu hófust í vikunni en lauk í gærkvöldi þegar dómari komst að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið og lögreglan hefðu haldið aftur af sönnunargögnum. Erlent 13.7.2024 07:54 Réttarhöld hafin yfir Alec Baldwin Réttarhöld yfir leikaranum Alec Baldwin hófust í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í gær en hann er sakaður um manndráp af gáleysi. Hann á yfir höfði sér 18 mánaða fangelsi ef hann verður fundinn sekur. Erlent 11.7.2024 07:48 Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun Dómari við bandarískan dómstól hefur hafnað beiðni leikarans Alec Baldwin um að vísa frá ákæru um manndráp af gáleysi þegar Halyna Hutchins lést vegna voðaskots á tökustað myndarinnar Rust. Baldwin leikskýrði og lék í myndinni og hleypti skotinu af byssunni. Erlent 25.5.2024 11:56 Átján mánaða fangelsi vegna voðaskotsins Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed hefur verið dæmd til átján mánaða fangelsisvistar vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins. Hutchins lést þegar skot hljóp úr byssu Alecs Baldwin við upptökur á kvikmyndinni Rust árið 2021. Erlent 15.4.2024 18:49 Vopnavörðurinn fundin sek um manndráp af gáleysi Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed hefur verið fundin sek um manndráp af gáleysi vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins. Hutchins lést þegar skot hljóp úr byssu Alec Baldwin við upptökur á kvikmyndinni Rust árið 2021. Erlent 7.3.2024 06:13 Vopnavörðurinn sögð hafa verið óvandvirk Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed er sögð hafa verið óvandvirk á setti kvikmyndarinnar Rust. Hún sá um að hlaða byssu fyrir leikarann Alec Baldwin við tökur sem svo hleypti af henni með þeim afleiðingum að kvikmyndagerðarkonan Halyna Hutchins lést þann 21. október 2021. Bæði eru þau ákærð fyrir manndráp af gáleysi. Erlent 23.2.2024 08:14 Alec Baldwin aftur ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi í annað sinn vegna voðaskots sem reið af á tökustað kvikmyndarinnar Rust. Erlent 19.1.2024 20:14 Ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur Alec Baldwin Saksóknarar í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur leikaranum Alec Baldwin í tengslum við rannsókn á andláti kvikmyndatökukonunnar Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust í október 2021. Erlent 18.10.2023 08:27 Vopnavörðurinn sagður hafa verið með kókaín á setti Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana hafa afhent ónefndu vitni lítinn poka af kókaíni daginn sem Hutchins lést. Lífið 30.6.2023 21:18 Vopnavörðurinn sagður hafa verið þunnur Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana að öllum líkindum hafa verið þunna, þegar hún hlóð leikmyndabyssu með venjulegri byssukúlu. Lífið 14.6.2023 23:44 Fjölskylda þeirrar látnu stefnir Baldwin Aðstandendur Halynu Hutchins, tökustjóra kvikmyndarinnar Rust, ætla að stefna Alec Baldwin þrátt fyrir að saksóknarar hafi fellt niður ákæru á hendur honum vegna dauða hennar. Lögmaður fjölskyldunnar segir leikarann ekki geta komið sér undan ábyrgð. Erlent 22.4.2023 09:46 Baldwin laus allra mála Leikarinn Alec Baldwin verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halyna Hutchins til bana við tökur á myndinni Rust árið 2021. Erlent 20.4.2023 20:30 Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20 Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. Erlent 31.1.2023 21:46 Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að hann skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó í október 2021. Erlent 19.1.2023 16:28 Tökur hefjast að nýju eftir samkomulag við fjölskylduna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa komist að samkomulagi við dánarbú kvikmyndatökukonunnar Halynu Hutchins um að fjölskylda hennar falli frá málsókn vegna dauða hennar. Hluti samkomulagsins felur í sér að framleiðsla kvikmyndarinnar fer aftur af stað. Erlent 5.10.2022 14:59 FBI segir Baldwin hafa tekið í gikkinn Leikarinn Alec Baldwin, tók í gikk byssu á tökum kvikmyndarinnar Rust þegar Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó. Skotið hæfði einnig Joel Souza, leikstjóra en Baldwin hefur haldið því fram að hann hafi ekki tekið í gikkinn þegar skotið hljóp af. Erlent 14.8.2022 10:41 Birta myndefni frá tökustaðnum þar sem Hutchins var skotin til bana Lögregluyfirvöld í Nýju-Mexíkó birtu í gær myndefni sem stuðst er við í rannsókn á dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins í október í fyrra. Erlent 26.4.2022 11:15 Framleiðendur Rust sektaðir um rúmlega 17 milljónir króna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa verið sektaðir um tæplega 137 þúsund dali í tengslum við dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins í október í fyrra. Umhverfisdeild Nýju Mexíkó sagði framleiðendur hafa sýnt fram skeytingarleysi um hættur skotvopna á tökustað. Erlent 21.4.2022 00:04 Fjölskylda Hutchins segir Baldwin hafa banað henni af gáleysi Alec Baldwin skaut og drap kvikmyndatökukonuna Halynu Hutchins af gáleysi á tökustað kvikmyndarinnar Rust í fyrra. Þetta segir í kæru sem fjölskylda Hutchins hefur lagt fram gegn Baldwin. Erlent 16.2.2022 08:39 Lögregla fær loks síma Baldwin Lögreglayfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa nú loks fengið síma leikarans Alec Baldwin afhentan. Lögregla sagði í samtali við fjölmiðla fyrr í vikunni að leikarinn væri tregur til að afhenda símann en heimild lögreglu lá fyrir í desember. Erlent 15.1.2022 17:08 Lögregla fær heimild til að leggja hald á síma Baldwin Lögregluyfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa fengið heimild til að leggja hald á síma Alec Baldwin. Segja þau mögulegt að sönnunargögn er varða atvikið á tökustað kvikmyndarinnar Rust sé að finna á símanum. Erlent 17.12.2021 07:51 „Einhver ber ábyrgð en ég veit það er ekki ég“ „Einhver ber ábyrgð á því sem gerðist, ég veit ekki hver það er en ég veit það er ekki ég.“ Þetta sagði leikarinn Alec Baldwin í fyrsta viðtali sínu eftir að skaut hljóp úr byssu sem hann hélt á við tökur á kvikmyndinni Rust. Erlent 3.12.2021 10:24 „Ég tók ekki í gikkinn,“ segir niðurbrotinn Baldwin „Ég myndi aldrei beina byssu að einhverjum og taka í gikkinn. Aldrei,“ segir Alec Baldwin í samtali við George Stephanopoulus. Um er að ræða fyrsta viðtalið sem leikarinn veitir um atvik á tökustað myndarinnar Rust, þar sem tökustjórinn Halyna Hutchins lést eftir að hafa orðið fyrir skoti úr byssu sem Baldwin hélt á. Erlent 2.12.2021 08:01 Segir ekkert í handritinu hafa kallað eftir því að hleypt væri af byssunni Skrifta sem starfaði við tökur á kvikmyndinni Rust hefur höfðað mál á hendur leikaranum Alec Baldwin og öðrum aðstandendum myndarinnar en hún segir að atriðið sem verið var að mynda þegar byssuskot varð upptökustjóranum Halyna Hutchins að bana hafi ekki kallað á að Baldwin handléki byssuna eða hleypti af. Erlent 18.11.2021 07:11 Stefnir Alec Baldwin og fleiri vegna dauða Hutchins Rafvirki í tökuliði kvikmyndarinnar Rust hefur stefnt leikaranum Alec Baldwin og nokkrum til viðbótar í tökuliðinu vegna dauða kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins í síðasta mánuði. Erlent 11.11.2021 07:37 Vopnavörðurinn segir einhvern hafa sett skot í byssuna Vopnavörður kvikmyndarinnar Rust segir mögulegt að einhver hafi sett hefðbundið byssuskot í byssu sem notuð var við æfingar fyrir tökur. Leikarinn Alec Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana með byssunni. Erlent 4.11.2021 09:44 Baldwin rýfur þögnina um skotið sem banaði Halynu Hutchins Alec Baldwin tjáði sig við fjölmiðla um voðaskotið sem varð Halynu Hutchins að bana í fyrsta skipti í dag. Hann segir hana hafa verið vinkonu sína og að honum hafi verið bannað að ræða smáatriði málsins þar sem formleg rannsókn væri í gangi. Erlent 30.10.2021 22:48 « ‹ 1 2 ›
Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Kvikmyndin Rust með Alec Baldwin í aðalhlutverki verður brátt frumsýnd á kvikmyndahátíð í Póllandi. Myndin er þegar þekkt um allan heim þar sem kvikmyndatökustjóri myndarinnar Halyna Hutchins lést á setti árið 2021 þegar skot hljóp úr byssu leikarans. Bíó og sjónvarp 3.10.2024 10:22
„Þetta var augljóslega slys“ Tveir kviðdómendur í sakamáli bandaríska leikarans Alec Baldwin hafa nú stigið fram og rætt um málið. Þeir eru á því að það hafi verið augljóst frá upphafi að um slys hafi verið að ræða. Lífið 22.7.2024 16:02
Felldi tár þegar málinu var vísað frá Máli á hendur bandaríska leikaranum Alec Baldwin, þar sem hann var sakaður um manndráp af gáleysi, hefur verið vísað frá dómi. Réttarhöld í málinu hófust í vikunni en lauk í gærkvöldi þegar dómari komst að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið og lögreglan hefðu haldið aftur af sönnunargögnum. Erlent 13.7.2024 07:54
Réttarhöld hafin yfir Alec Baldwin Réttarhöld yfir leikaranum Alec Baldwin hófust í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í gær en hann er sakaður um manndráp af gáleysi. Hann á yfir höfði sér 18 mánaða fangelsi ef hann verður fundinn sekur. Erlent 11.7.2024 07:48
Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun Dómari við bandarískan dómstól hefur hafnað beiðni leikarans Alec Baldwin um að vísa frá ákæru um manndráp af gáleysi þegar Halyna Hutchins lést vegna voðaskots á tökustað myndarinnar Rust. Baldwin leikskýrði og lék í myndinni og hleypti skotinu af byssunni. Erlent 25.5.2024 11:56
Átján mánaða fangelsi vegna voðaskotsins Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed hefur verið dæmd til átján mánaða fangelsisvistar vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins. Hutchins lést þegar skot hljóp úr byssu Alecs Baldwin við upptökur á kvikmyndinni Rust árið 2021. Erlent 15.4.2024 18:49
Vopnavörðurinn fundin sek um manndráp af gáleysi Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed hefur verið fundin sek um manndráp af gáleysi vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins. Hutchins lést þegar skot hljóp úr byssu Alec Baldwin við upptökur á kvikmyndinni Rust árið 2021. Erlent 7.3.2024 06:13
Vopnavörðurinn sögð hafa verið óvandvirk Vopnavörðurinn Hannah Gutierrez-Reed er sögð hafa verið óvandvirk á setti kvikmyndarinnar Rust. Hún sá um að hlaða byssu fyrir leikarann Alec Baldwin við tökur sem svo hleypti af henni með þeim afleiðingum að kvikmyndagerðarkonan Halyna Hutchins lést þann 21. október 2021. Bæði eru þau ákærð fyrir manndráp af gáleysi. Erlent 23.2.2024 08:14
Alec Baldwin aftur ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi í annað sinn vegna voðaskots sem reið af á tökustað kvikmyndarinnar Rust. Erlent 19.1.2024 20:14
Ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur Alec Baldwin Saksóknarar í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum ætla sér að gefa út nýja ákæru á hendur leikaranum Alec Baldwin í tengslum við rannsókn á andláti kvikmyndatökukonunnar Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust í október 2021. Erlent 18.10.2023 08:27
Vopnavörðurinn sagður hafa verið með kókaín á setti Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana hafa afhent ónefndu vitni lítinn poka af kókaíni daginn sem Hutchins lést. Lífið 30.6.2023 21:18
Vopnavörðurinn sagður hafa verið þunnur Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana að öllum líkindum hafa verið þunna, þegar hún hlóð leikmyndabyssu með venjulegri byssukúlu. Lífið 14.6.2023 23:44
Fjölskylda þeirrar látnu stefnir Baldwin Aðstandendur Halynu Hutchins, tökustjóra kvikmyndarinnar Rust, ætla að stefna Alec Baldwin þrátt fyrir að saksóknarar hafi fellt niður ákæru á hendur honum vegna dauða hennar. Lögmaður fjölskyldunnar segir leikarann ekki geta komið sér undan ábyrgð. Erlent 22.4.2023 09:46
Baldwin laus allra mála Leikarinn Alec Baldwin verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halyna Hutchins til bana við tökur á myndinni Rust árið 2021. Erlent 20.4.2023 20:30
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20
Alec Baldwin ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Í ákærunni er Baldwin gefið að sök að hafa brotið fjölda laga er hann miðaði byssu í átt að kvikmyndatökustjóranum Halyna Hutchins við tökur á kvikmyndinni Rust. Skot úr byssunni hæfði Hutchins sem lét lífið. Erlent 31.1.2023 21:46
Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Leikarinn Alec Baldwin verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að hann skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana við tökur á kvikmyndinni Rust í Nýju Mexíkó í október 2021. Erlent 19.1.2023 16:28
Tökur hefjast að nýju eftir samkomulag við fjölskylduna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa komist að samkomulagi við dánarbú kvikmyndatökukonunnar Halynu Hutchins um að fjölskylda hennar falli frá málsókn vegna dauða hennar. Hluti samkomulagsins felur í sér að framleiðsla kvikmyndarinnar fer aftur af stað. Erlent 5.10.2022 14:59
FBI segir Baldwin hafa tekið í gikkinn Leikarinn Alec Baldwin, tók í gikk byssu á tökum kvikmyndarinnar Rust þegar Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó. Skotið hæfði einnig Joel Souza, leikstjóra en Baldwin hefur haldið því fram að hann hafi ekki tekið í gikkinn þegar skotið hljóp af. Erlent 14.8.2022 10:41
Birta myndefni frá tökustaðnum þar sem Hutchins var skotin til bana Lögregluyfirvöld í Nýju-Mexíkó birtu í gær myndefni sem stuðst er við í rannsókn á dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins í október í fyrra. Erlent 26.4.2022 11:15
Framleiðendur Rust sektaðir um rúmlega 17 milljónir króna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa verið sektaðir um tæplega 137 þúsund dali í tengslum við dauða kvikmyndatökustjórans Halyna Hutchins í október í fyrra. Umhverfisdeild Nýju Mexíkó sagði framleiðendur hafa sýnt fram skeytingarleysi um hættur skotvopna á tökustað. Erlent 21.4.2022 00:04
Fjölskylda Hutchins segir Baldwin hafa banað henni af gáleysi Alec Baldwin skaut og drap kvikmyndatökukonuna Halynu Hutchins af gáleysi á tökustað kvikmyndarinnar Rust í fyrra. Þetta segir í kæru sem fjölskylda Hutchins hefur lagt fram gegn Baldwin. Erlent 16.2.2022 08:39
Lögregla fær loks síma Baldwin Lögreglayfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa nú loks fengið síma leikarans Alec Baldwin afhentan. Lögregla sagði í samtali við fjölmiðla fyrr í vikunni að leikarinn væri tregur til að afhenda símann en heimild lögreglu lá fyrir í desember. Erlent 15.1.2022 17:08
Lögregla fær heimild til að leggja hald á síma Baldwin Lögregluyfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa fengið heimild til að leggja hald á síma Alec Baldwin. Segja þau mögulegt að sönnunargögn er varða atvikið á tökustað kvikmyndarinnar Rust sé að finna á símanum. Erlent 17.12.2021 07:51
„Einhver ber ábyrgð en ég veit það er ekki ég“ „Einhver ber ábyrgð á því sem gerðist, ég veit ekki hver það er en ég veit það er ekki ég.“ Þetta sagði leikarinn Alec Baldwin í fyrsta viðtali sínu eftir að skaut hljóp úr byssu sem hann hélt á við tökur á kvikmyndinni Rust. Erlent 3.12.2021 10:24
„Ég tók ekki í gikkinn,“ segir niðurbrotinn Baldwin „Ég myndi aldrei beina byssu að einhverjum og taka í gikkinn. Aldrei,“ segir Alec Baldwin í samtali við George Stephanopoulus. Um er að ræða fyrsta viðtalið sem leikarinn veitir um atvik á tökustað myndarinnar Rust, þar sem tökustjórinn Halyna Hutchins lést eftir að hafa orðið fyrir skoti úr byssu sem Baldwin hélt á. Erlent 2.12.2021 08:01
Segir ekkert í handritinu hafa kallað eftir því að hleypt væri af byssunni Skrifta sem starfaði við tökur á kvikmyndinni Rust hefur höfðað mál á hendur leikaranum Alec Baldwin og öðrum aðstandendum myndarinnar en hún segir að atriðið sem verið var að mynda þegar byssuskot varð upptökustjóranum Halyna Hutchins að bana hafi ekki kallað á að Baldwin handléki byssuna eða hleypti af. Erlent 18.11.2021 07:11
Stefnir Alec Baldwin og fleiri vegna dauða Hutchins Rafvirki í tökuliði kvikmyndarinnar Rust hefur stefnt leikaranum Alec Baldwin og nokkrum til viðbótar í tökuliðinu vegna dauða kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins í síðasta mánuði. Erlent 11.11.2021 07:37
Vopnavörðurinn segir einhvern hafa sett skot í byssuna Vopnavörður kvikmyndarinnar Rust segir mögulegt að einhver hafi sett hefðbundið byssuskot í byssu sem notuð var við æfingar fyrir tökur. Leikarinn Alec Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana með byssunni. Erlent 4.11.2021 09:44
Baldwin rýfur þögnina um skotið sem banaði Halynu Hutchins Alec Baldwin tjáði sig við fjölmiðla um voðaskotið sem varð Halynu Hutchins að bana í fyrsta skipti í dag. Hann segir hana hafa verið vinkonu sína og að honum hafi verið bannað að ræða smáatriði málsins þar sem formleg rannsókn væri í gangi. Erlent 30.10.2021 22:48
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið