Stj.mál Harðar umræður á Alþingi Harðar umræður hafa verið á Alþingi um fjölmiðlalögin í dag. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnarflokkana fyrir það hvernig málið hefur þróast síðustu mánuði og talaði Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, um sjálfskaparvíti ríkisstjórnarinnar og taldi málið allt komið á byrjunarreit. Innlent 13.10.2005 14:26 Málskotsréttur forsetans afnuminn? Málskotsréttur forseta Íslands verður hugsanlega afnuminn við endurskoðun stjórnarskrárinnar sem boðað hefur verið til. Mögulegt er að í staðinn verði fleiri en ein leið til að skjóta lagafrumvörpum til þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:26 Ísraelsmenn hunsa ályktun Sþ Ísraelsmenn ætla að halda framkvæmdum áfram við öryggismúr á Vesturbakkanum, þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi samþykkt ályktun í gærkvöldi þar sem þess er krafist að hann verði rifinn niður. Raanan Gissin, einn af ráðgjöfum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segir það vera rétt Ísraelsmanna að verja sig gegn Palestínumönnum. Erlent 13.10.2005 14:26 Hafnar beitingu fjölmiðla í málinu Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og aðaleigandi Norðurljósa, hafnar því að hafa beitt fjölmiðlum fyrirtækisins gegn stjórnvöldum í fjölmiðlamálinu. Innlent 13.10.2005 14:26 Þingfundur kl. 13:30 í dag Önnur umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefst á Alþingi klukkan 13:30 í dag en allsherjarnefnd samþykkti verulegar breytingar á frumvarpinu í gær. Samkvæmt breytingartillögunum verða fjölmiðlalögin, sem forseti Íslands synjaði staðfestingar, felld úr gildi en engin lög um eignarhald á fjölmiðlum sett í staðinn. Innlent 13.10.2005 14:26 Stjórnarandstaðan ber kvíðboga Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnarandstaðan beri kvíðboga fyrir þeirri sáttagjörð sem stjórnarflokkarnir hafa lagt fram með stofnun fjölmiðlanefndar. Hann segir að stjórnarandstaðan muni áfram sýna samstöðu í fjölmiðlamálinu og leggja fram mótaðar tillögur innan fjölmiðlanefndarinnar. Innlent 13.10.2005 14:26 Þingflokksformenn sáttir Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins segjast vera sáttir við þá niðurstöðu sem liggi fyrir í fjölmiðlamálinu. Þeir segja þingmenn ánægða og einhuga um niðurstöðuna. Innlent 13.10.2005 14:26 Davíð frá störfum á næstunni Við setningu þingfundar rétt í þessu sagði Halldór Blöndal, forseti Alþingis, að Davíð Oddsson forsætisráðherra myndi ekki taka þátt í störfum þingsins á næstunni vegna veikinda. Eins og greint hefur verið frá var <span>Davíð fluttur á Landspítala-háskólasjúkrahús í nótt vegna verkja í kviðarholi og er hann í rannsókn á sjúkrahúsinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. </span> Innlent 13.10.2005 14:26 Nefndarálit flutt á þinginu Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, flutti nefndarálit meirihlutans. Í því tekur frumvarpið stakkaskiptum frá því stjórnarflokkarnir kynntu það fyrir aðeins sautján dögum þar sem ekki er lengur lagt fram nýtt frumvarp í stað þess sem var fellt úr gildi. Innlent 13.10.2005 14:26 Ánægður með stöðu málsins Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segist mjög ánægður með stöðuna í fjölmiðlamálinu. Hann telur að nú hafi náðst langþráð sátt sem bæði þing og þjóð hafi óskað eftir. Innlent 13.10.2005 14:26 „Waterloo“ ríkisstjórnarinnar rædd Formaður allsherjarnefndar sagði á Alþingi í dag að fjölmiðlalögin yrðu felld úr gildi vegna þess stjórnskipulega vafa sem hefði hlotist af ákvörðun forseta Íslands um að neita að staðfesta lögin. Formaður Samfylkingarinnar sagði að ósigur ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlamálinu væri hennar Waterloo því hún hefði tapað sínu hundrað daga stríði fyrir þjóðinni. Innlent 13.10.2005 14:26 Tíu prósentin tekin úr samhengi Formaður Vinstri - grænna segir forsætisráðherra ranglega hafa eignað honum þá hugmynd að markaðsráðandi fyrirtæki megi eiga tíu prósent í fjölmiðlum. Formaður Samfylkingarinnar segir takmörkun á eignarhaldi einungis síðasta kost séu aðrar leiðir ekki færar þegar unnið verði að nýjum fjölmiðlalögum. Innlent 13.10.2005 14:26 Ekki brella að afturkalla lögin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það ekki brellu að afturkalla fjölmiðlalögin, eins og nú hefur verið gert, og komast þannig hjá þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir „brelluummæli“ á heimasíðu sinni hafa átt við breytingar á lögunum en ekki afturköllun þeirra. Innlent 13.10.2005 14:26 Ísland á heima í Evrópu Ráðherra Evrópumála í Bretlandi telur að unnt verði að finna lausn sem henti Íslandi ef sótt yrði um aðild. Hann segir það þó ekki sitt hlutverk að ráðleggja Íslendingum að sækja um aðild eða ekki. Innlent 13.10.2005 14:26 Hefði viljað kosningar Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar, sem barist hefur gegn fjölmiðlalögunum, segist telja að lögin séu ekki á hendi Alþingis og að þjóðin hafi stjórnarskrárvarinn rétt til þess að greiða um þau atkvæði. Innlent 13.10.2005 14:26 Fundi ríkisstjórnar lokið Davíð Oddsson sagðist hress eftir ríkisstjórnarfund sem haldinn var í morgun. Hann telur að allir séu sammála um það, fyrir utan þá sem eru hrein handbendi aðila útí bæ, að setja verði lög um fjölmiðla þó það verði gert síðar. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir engan standa uppi sem sigurvegari í fjölmiðlamálinu. Innlent 13.10.2005 14:26 Málskotsréttur forseta úr sögunni Til þess að afnema málskotsrétt forseta Íslands þarf stjórnarskrárbreytingu. Stjórnarskrárbreyting verður ekki gerð nema á tveim þingum og er því ferli sem tekur langan tíma. Innlent 13.10.2005 14:26 Vill enn fjölmiðlalög Sjálfstæðismenn lýsa yfir vonbrigðum með málalyktir og sjá fram á að nýtt fjölmiðlafrumvarp verði lagt fram. Framsóknarmenn vildu koma í veg fyrir aukna sundrung. Stjórnarandstaðan segir niðurstöðuna gríðarlegt áfall fyrir ríkisstjórnina. Innlent 13.10.2005 14:26 Þjóðarhreyfingin starfar áfram Þjóðarhreyfing um lýðræði, sem hefur barist gegn fjölmiðlalögunum, segist enn hafa hlutverki að gegna. Hreyfingin verði ekki lögð niður. Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar telur Alþingi ekki hafa vald til að afturkalla fjölmiðlafrumvarpið þar sem það sé enn í höndum þjóðarinnar eftir synjun forseta á því. Innlent 13.10.2005 14:26 Með Alþingi í gíslingu Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja að nú sé möguleiki á að ná sátt í samfélaginu um fjölmiðlalög, ef undirbúningur þeirra verður unnin í samstarfi við alla. Formaður Samfylkingarinnar segir fráleitt að afnema málsskotsrétt forsetans, hann sé eina vörn borgaranna gegn ráðherraræðinu. Innlent 13.10.2005 14:26 Lögin voru hefndarleiðangur Stjórnarandstaðan gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega og segir greinilegt að hún hafi viðurkennt uppgjöf í fjölmiðlamálinu. Efast er um að heimilt sé að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem skýrt sé kveðið á um hana í stjórnarskrá. Innlent 13.10.2005 14:26 Alþingi ræðir frumvarp um afnám Alþingi verður kallað saman á morgun til að ræða nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um afnám fjölmiðlalaganna. Samkomulagið var kynnt í allsherjarnefnd síðdegis. Forsætisráðherra segist ekki líta svo á að ríkisstjórnin hafi bakkað, hann segir alla stjórnmálaflokka vilja setja lög um fjölmiðla nema þá, sem sækja stefnu sína til Norðurljósa. Innlent 13.10.2005 14:26 Engin fjölmiðlalög Öll takmarkandi ákvæði er varða fjölmiðla hafa verið tekin út úr breyttu frumvarpi er kynnt verður á ríkisstjórnarfundi í dag. Einungis verða ákvæði um brottfall fyrri laga og breytingu á skipun útvarpsráðs. Samkomulag Davíðs og Halldórs kveður á um völd forseta verði einungis formleg. Innlent 13.10.2005 14:25 Vill endurskoða málskotsrétt Forsætisráðherra vill láta endurskoða 26. grein stjórnarskrárinnar um málskotsrétt forseta. Þetta er þó ekki liður í samkomulagi formanna stjórnarflokkanna. Davíð Oddsson sagði í morgun að fulltrúar allra flokkanna hefðu rætt um endurskoðun stjórnarskrárinnar hvað þetta varðar. Innlent 13.10.2005 14:26 Saga fjölmiðlamálsins Það var fyrir réttum þremur mánuðum, 20. apríl í vor, sem frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum var kynnt í ríkisstjórn. Daginn eftir las Páll Magnússon inngang að frétt á Stöð 2 um að forsætisráðherra hafi kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum, þótt skýrsla um sama efni hafi ekki enn verið gerð opinber. Strax þá fór málið í harðan hnút. Innlent 13.10.2005 14:26 Meðferð málsins skrípaleikur Stjórnarandstaðan í Allsherjarnefnd Alþingis segir meðferð fjölmiðlamálsins skrípaleik. Fundur nefndarinnar hófst klukkan fimm í dag, en var frestað í morgun. Meirihluti nefndarinnar kynnti ekki niðurstöðu stjórnarformannanna en sagði að hún yrði kynnt á fundi nefndarinnar á morgun. Innlent 13.10.2005 14:25 Ákvörðun kynnt í ríkisstjórn Formenn stjórnarflokkanna hafa komist að niðurstöðu í fjölmiðlamálinu. Þeir vildu þó ekki staðfesta að ákveðið hefði verið að bakka með fjölmiðlafrumvarpið. Hún verður kynnt í ríkisstjórn á morgun. Forsætisráðherra segist reikna með að Allsherjarnefnd ljúki málinu á morgun. Innlent 13.10.2005 14:25 Fella lögin úr gildi Framsóknarmenn sjá þá einu lausn í fjölmiðlamálinu að fella lögin úr gildi. Allsherjarnefnd kemur saman til fundar klukkan tíu í fyrramálið. Innlent 13.10.2005 14:25 Halldór vill afturkalla frumvarpið Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur skýrt Davíð Oddssyni formanni Sjálfstæðisflokksins frá því að Framsóknarflokkurinn muni ekki sætta sig við annað en að fjölmiðlalögin verði dregin til baka. Fundi allsherjarnefndar sem hefjast átti klukkan 10 hefur verið frestað til klukkan 17. Búist er við að Halldór og Davíð fundi í dag. Innlent 13.10.2005 14:25 Breskur ráðherra til landsins Dr. Denis MacShane, Evrópumálaráðherra Bretlands, mun flytja opinn fyrirlestur sem ber yfirskriftina „Hin nýja Stjórnarskrá Evrópu - Álitamál og áhrif á EES löndin“ í Norræna húsinu nk. fimmtudag.. Auk þess mun hann ræða stuttlega varnarmálastefnu Evrópusambandsins, stöðu smærri Evrópulanda innan og utan ESB og hugsanlega aðild Íslands og Noregs að sambandinu. Innlent 13.10.2005 14:25 « ‹ 175 176 177 178 179 180 181 182 183 … 187 ›
Harðar umræður á Alþingi Harðar umræður hafa verið á Alþingi um fjölmiðlalögin í dag. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnarflokkana fyrir það hvernig málið hefur þróast síðustu mánuði og talaði Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, um sjálfskaparvíti ríkisstjórnarinnar og taldi málið allt komið á byrjunarreit. Innlent 13.10.2005 14:26
Málskotsréttur forsetans afnuminn? Málskotsréttur forseta Íslands verður hugsanlega afnuminn við endurskoðun stjórnarskrárinnar sem boðað hefur verið til. Mögulegt er að í staðinn verði fleiri en ein leið til að skjóta lagafrumvörpum til þjóðarinnar. Innlent 13.10.2005 14:26
Ísraelsmenn hunsa ályktun Sþ Ísraelsmenn ætla að halda framkvæmdum áfram við öryggismúr á Vesturbakkanum, þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi samþykkt ályktun í gærkvöldi þar sem þess er krafist að hann verði rifinn niður. Raanan Gissin, einn af ráðgjöfum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segir það vera rétt Ísraelsmanna að verja sig gegn Palestínumönnum. Erlent 13.10.2005 14:26
Hafnar beitingu fjölmiðla í málinu Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og aðaleigandi Norðurljósa, hafnar því að hafa beitt fjölmiðlum fyrirtækisins gegn stjórnvöldum í fjölmiðlamálinu. Innlent 13.10.2005 14:26
Þingfundur kl. 13:30 í dag Önnur umræða um fjölmiðlafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefst á Alþingi klukkan 13:30 í dag en allsherjarnefnd samþykkti verulegar breytingar á frumvarpinu í gær. Samkvæmt breytingartillögunum verða fjölmiðlalögin, sem forseti Íslands synjaði staðfestingar, felld úr gildi en engin lög um eignarhald á fjölmiðlum sett í staðinn. Innlent 13.10.2005 14:26
Stjórnarandstaðan ber kvíðboga Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnarandstaðan beri kvíðboga fyrir þeirri sáttagjörð sem stjórnarflokkarnir hafa lagt fram með stofnun fjölmiðlanefndar. Hann segir að stjórnarandstaðan muni áfram sýna samstöðu í fjölmiðlamálinu og leggja fram mótaðar tillögur innan fjölmiðlanefndarinnar. Innlent 13.10.2005 14:26
Þingflokksformenn sáttir Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins segjast vera sáttir við þá niðurstöðu sem liggi fyrir í fjölmiðlamálinu. Þeir segja þingmenn ánægða og einhuga um niðurstöðuna. Innlent 13.10.2005 14:26
Davíð frá störfum á næstunni Við setningu þingfundar rétt í þessu sagði Halldór Blöndal, forseti Alþingis, að Davíð Oddsson forsætisráðherra myndi ekki taka þátt í störfum þingsins á næstunni vegna veikinda. Eins og greint hefur verið frá var <span>Davíð fluttur á Landspítala-háskólasjúkrahús í nótt vegna verkja í kviðarholi og er hann í rannsókn á sjúkrahúsinu, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. </span> Innlent 13.10.2005 14:26
Nefndarálit flutt á þinginu Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, flutti nefndarálit meirihlutans. Í því tekur frumvarpið stakkaskiptum frá því stjórnarflokkarnir kynntu það fyrir aðeins sautján dögum þar sem ekki er lengur lagt fram nýtt frumvarp í stað þess sem var fellt úr gildi. Innlent 13.10.2005 14:26
Ánægður með stöðu málsins Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segist mjög ánægður með stöðuna í fjölmiðlamálinu. Hann telur að nú hafi náðst langþráð sátt sem bæði þing og þjóð hafi óskað eftir. Innlent 13.10.2005 14:26
„Waterloo“ ríkisstjórnarinnar rædd Formaður allsherjarnefndar sagði á Alþingi í dag að fjölmiðlalögin yrðu felld úr gildi vegna þess stjórnskipulega vafa sem hefði hlotist af ákvörðun forseta Íslands um að neita að staðfesta lögin. Formaður Samfylkingarinnar sagði að ósigur ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlamálinu væri hennar Waterloo því hún hefði tapað sínu hundrað daga stríði fyrir þjóðinni. Innlent 13.10.2005 14:26
Tíu prósentin tekin úr samhengi Formaður Vinstri - grænna segir forsætisráðherra ranglega hafa eignað honum þá hugmynd að markaðsráðandi fyrirtæki megi eiga tíu prósent í fjölmiðlum. Formaður Samfylkingarinnar segir takmörkun á eignarhaldi einungis síðasta kost séu aðrar leiðir ekki færar þegar unnið verði að nýjum fjölmiðlalögum. Innlent 13.10.2005 14:26
Ekki brella að afturkalla lögin Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það ekki brellu að afturkalla fjölmiðlalögin, eins og nú hefur verið gert, og komast þannig hjá þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir „brelluummæli“ á heimasíðu sinni hafa átt við breytingar á lögunum en ekki afturköllun þeirra. Innlent 13.10.2005 14:26
Ísland á heima í Evrópu Ráðherra Evrópumála í Bretlandi telur að unnt verði að finna lausn sem henti Íslandi ef sótt yrði um aðild. Hann segir það þó ekki sitt hlutverk að ráðleggja Íslendingum að sækja um aðild eða ekki. Innlent 13.10.2005 14:26
Hefði viljað kosningar Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar, sem barist hefur gegn fjölmiðlalögunum, segist telja að lögin séu ekki á hendi Alþingis og að þjóðin hafi stjórnarskrárvarinn rétt til þess að greiða um þau atkvæði. Innlent 13.10.2005 14:26
Fundi ríkisstjórnar lokið Davíð Oddsson sagðist hress eftir ríkisstjórnarfund sem haldinn var í morgun. Hann telur að allir séu sammála um það, fyrir utan þá sem eru hrein handbendi aðila útí bæ, að setja verði lög um fjölmiðla þó það verði gert síðar. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir engan standa uppi sem sigurvegari í fjölmiðlamálinu. Innlent 13.10.2005 14:26
Málskotsréttur forseta úr sögunni Til þess að afnema málskotsrétt forseta Íslands þarf stjórnarskrárbreytingu. Stjórnarskrárbreyting verður ekki gerð nema á tveim þingum og er því ferli sem tekur langan tíma. Innlent 13.10.2005 14:26
Vill enn fjölmiðlalög Sjálfstæðismenn lýsa yfir vonbrigðum með málalyktir og sjá fram á að nýtt fjölmiðlafrumvarp verði lagt fram. Framsóknarmenn vildu koma í veg fyrir aukna sundrung. Stjórnarandstaðan segir niðurstöðuna gríðarlegt áfall fyrir ríkisstjórnina. Innlent 13.10.2005 14:26
Þjóðarhreyfingin starfar áfram Þjóðarhreyfing um lýðræði, sem hefur barist gegn fjölmiðlalögunum, segist enn hafa hlutverki að gegna. Hreyfingin verði ekki lögð niður. Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar telur Alþingi ekki hafa vald til að afturkalla fjölmiðlafrumvarpið þar sem það sé enn í höndum þjóðarinnar eftir synjun forseta á því. Innlent 13.10.2005 14:26
Með Alþingi í gíslingu Leiðtogar stjórnarandstöðunnar segja að nú sé möguleiki á að ná sátt í samfélaginu um fjölmiðlalög, ef undirbúningur þeirra verður unnin í samstarfi við alla. Formaður Samfylkingarinnar segir fráleitt að afnema málsskotsrétt forsetans, hann sé eina vörn borgaranna gegn ráðherraræðinu. Innlent 13.10.2005 14:26
Lögin voru hefndarleiðangur Stjórnarandstaðan gagnrýnir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega og segir greinilegt að hún hafi viðurkennt uppgjöf í fjölmiðlamálinu. Efast er um að heimilt sé að hætta við þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem skýrt sé kveðið á um hana í stjórnarskrá. Innlent 13.10.2005 14:26
Alþingi ræðir frumvarp um afnám Alþingi verður kallað saman á morgun til að ræða nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um afnám fjölmiðlalaganna. Samkomulagið var kynnt í allsherjarnefnd síðdegis. Forsætisráðherra segist ekki líta svo á að ríkisstjórnin hafi bakkað, hann segir alla stjórnmálaflokka vilja setja lög um fjölmiðla nema þá, sem sækja stefnu sína til Norðurljósa. Innlent 13.10.2005 14:26
Engin fjölmiðlalög Öll takmarkandi ákvæði er varða fjölmiðla hafa verið tekin út úr breyttu frumvarpi er kynnt verður á ríkisstjórnarfundi í dag. Einungis verða ákvæði um brottfall fyrri laga og breytingu á skipun útvarpsráðs. Samkomulag Davíðs og Halldórs kveður á um völd forseta verði einungis formleg. Innlent 13.10.2005 14:25
Vill endurskoða málskotsrétt Forsætisráðherra vill láta endurskoða 26. grein stjórnarskrárinnar um málskotsrétt forseta. Þetta er þó ekki liður í samkomulagi formanna stjórnarflokkanna. Davíð Oddsson sagði í morgun að fulltrúar allra flokkanna hefðu rætt um endurskoðun stjórnarskrárinnar hvað þetta varðar. Innlent 13.10.2005 14:26
Saga fjölmiðlamálsins Það var fyrir réttum þremur mánuðum, 20. apríl í vor, sem frumvarp um eignarhald á fjölmiðlum var kynnt í ríkisstjórn. Daginn eftir las Páll Magnússon inngang að frétt á Stöð 2 um að forsætisráðherra hafi kynnt í ríkisstjórn lagafrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum, þótt skýrsla um sama efni hafi ekki enn verið gerð opinber. Strax þá fór málið í harðan hnút. Innlent 13.10.2005 14:26
Meðferð málsins skrípaleikur Stjórnarandstaðan í Allsherjarnefnd Alþingis segir meðferð fjölmiðlamálsins skrípaleik. Fundur nefndarinnar hófst klukkan fimm í dag, en var frestað í morgun. Meirihluti nefndarinnar kynnti ekki niðurstöðu stjórnarformannanna en sagði að hún yrði kynnt á fundi nefndarinnar á morgun. Innlent 13.10.2005 14:25
Ákvörðun kynnt í ríkisstjórn Formenn stjórnarflokkanna hafa komist að niðurstöðu í fjölmiðlamálinu. Þeir vildu þó ekki staðfesta að ákveðið hefði verið að bakka með fjölmiðlafrumvarpið. Hún verður kynnt í ríkisstjórn á morgun. Forsætisráðherra segist reikna með að Allsherjarnefnd ljúki málinu á morgun. Innlent 13.10.2005 14:25
Fella lögin úr gildi Framsóknarmenn sjá þá einu lausn í fjölmiðlamálinu að fella lögin úr gildi. Allsherjarnefnd kemur saman til fundar klukkan tíu í fyrramálið. Innlent 13.10.2005 14:25
Halldór vill afturkalla frumvarpið Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur skýrt Davíð Oddssyni formanni Sjálfstæðisflokksins frá því að Framsóknarflokkurinn muni ekki sætta sig við annað en að fjölmiðlalögin verði dregin til baka. Fundi allsherjarnefndar sem hefjast átti klukkan 10 hefur verið frestað til klukkan 17. Búist er við að Halldór og Davíð fundi í dag. Innlent 13.10.2005 14:25
Breskur ráðherra til landsins Dr. Denis MacShane, Evrópumálaráðherra Bretlands, mun flytja opinn fyrirlestur sem ber yfirskriftina „Hin nýja Stjórnarskrá Evrópu - Álitamál og áhrif á EES löndin“ í Norræna húsinu nk. fimmtudag.. Auk þess mun hann ræða stuttlega varnarmálastefnu Evrópusambandsins, stöðu smærri Evrópulanda innan og utan ESB og hugsanlega aðild Íslands og Noregs að sambandinu. Innlent 13.10.2005 14:25
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið