Bandaríkin Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Fallhlíf hins alræmda D.B. Cooper er mögulega fundin. Um helgina voru liðin 53 ár frá því að Cooper stökk úr flugvél með 200 þúsund Bandaríkjadali í reiðufé eftir að hafa tekið flugáhöfn og farþega sem gísla. Erlent 27.11.2024 23:03 Trump sérstaklega áhugasamur um íslenska menningu Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti símafund með Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, í gær. Hann segir Trump hafa verið sérstaklega áhugasaman um íslenska menningu og sögu og bað fyrir góðum kveðjum til þjóðarinnar. Innlent 27.11.2024 18:16 Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Þremur Bandaríkjamönnum sem hafa setið um árabil í kínverskum fangelsum hefur verið sleppt. Það var gert í skiptum fyrir ótilgreinda kínverska ríkisborgara í haldi Bandaríkjamanna. Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu einnig í dag út viðvörun þar sem Bandaríkjamenn eru varaðir við því að ferðast til Kína. Erlent 27.11.2024 15:44 Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27.11.2024 14:47 Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í gær að til greina kæmi að beita eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hótaði því að setja 25 prósenta toll á vörur frá Mexíkó, stöðvi yfirvöld þar ekki flæði fíkniefna og farand- og flóttafólks yfir landamæri ríkjanna. Erlent 27.11.2024 11:17 SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa samið við SpaceX um að senda kjarnorkuknúið könnunarfar af stað til tunglsins Títan, sem er á braut um Satúrnus, árið 2028. Skjóta á Dragonfly-þyrludrónanum á loft með Falcon Heavy eldflaug SpaceX en ferðin sjálf mun taka sex ár. Erlent 26.11.2024 15:38 Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Einn af helstu ráðgjöfum Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna, er grunaður um að hafa beðið fólk sem var til skoðunar fyrir nýja ríkisstjórn Trumps um peninga. Í staðinn myndi hann leggja inn gott orð um fólkið í eyru Trumps. Erlent 26.11.2024 13:30 Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Donald Trump, sem tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum 20. janúar á næsta ári, hefur ítrekað hótanir sínar um að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína, Mexíkó og Kanada verulega á fyrstu dögum sínum í embætti. Erlent 26.11.2024 06:55 Annarri ákærunni formlega vísað frá Dómari hefur samþykkt að vísa frá ákæru á hendur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintra ólögmætra tilrauna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði. Erlent 25.11.2024 23:25 Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Faðir Elon Musk segir stuðning sinn við Donald Trump ástæðuna fyrir því að sonurinn afneitaði honum fyrir sjö árum. Elon hafi loksins yfirgefið frjálslyndu fígúruna sem hann var áður. Hann rifjar upp hvernig móðurafi Elon flutti til Suður-Afríku vegna stuðnings við aðskilnaðarstefnu ríkisins. Erlent 25.11.2024 22:03 Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Sérstakur saksóknari sem falið var að rannsaka málefni Donalds Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur óskað eftir því að tveimur málum á hendur Trump verði vísað frá. Erlent 25.11.2024 21:49 Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Ólöglegir og löglegir innflytjendur í Bandaríkjunum flykkjast nú á námskeið til að fá ráðleggingar um hvað þeir geta gert til að freista þess að verða ekki fluttir úr landinu. Erlent 25.11.2024 12:02 Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Stórstjarnan og söngkonan víðfræga Adele komst við og felldi tár á laugardaginn þegar hún hélt sína síðustu tónleika í Las Vegas í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Söngkonan hefur varið síðustu tveimur árum í borginni og haldið hundrað tónleika í tónleikasal Caesars Palace. Lífið 24.11.2024 16:59 Vona að Musk takmarki tolla Trumps Ráðamenn í Kína eru sagðir binda vonir við að umfangsmiklar fjárfestingar Elons Musk þar í landi muni nýtast sem vogarafl í því að fá hann til að tala máli þeirra við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Trump ætlar að skipa nokkra menn í ríkisstjórn sína sem hafa verið harðorðir í garð Kína um árabil. Viðskipti erlent 24.11.2024 14:43 Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu, hyggst selja hús þeirra hjóna á Long Island þar sem talið er að voðaverkin hafi verið framið. Erlent 24.11.2024 13:46 Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt Russell Vought, einn aðalhöfunda hins umdeilda Project 2025, til að leiða fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Vought gegndi embættinu um tíma í fyrri stjórnartíð Trumps og mun koma til með að forgangsraða fjárveitingum og koma kosningaloforðum Trumps um umfangsmikið afnám reglugerða til framkvæmda. Erlent 23.11.2024 12:21 Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Njósnaherferð og tölvuárásir yfirvalda í Kína er versta árás á samskiptakerfi Bandaríkjanna í sögu ríkisins, samkvæmt bandarískum öldungadeildarþingmanni. Hann segir kínverska hakkara hafa komist inn í tölvukerfi á annan tug fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum. Erlent 22.11.2024 16:32 Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Ráðamenn í Ísrael hafa brugðist reiðir við ákvörðun dómara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) að gefa út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael. Báðir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á Gasa, þar sem Ísraelar hafa verið að gera mannskæðar árásir í rúmt ár. Erlent 22.11.2024 10:50 Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos hafa handtekið eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföll ferðamanna af völdum metanóleitrunar. Erlent 22.11.2024 08:44 Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hefur nú tilnefnt Pam Bondi sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna eftir að hinn umdeildi Matt Gaetz hrökk úr skaftinu í gær. Erlent 22.11.2024 07:16 Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Tveir bandarískir listamann hafa framkvæmd gjörning við höggverk Nínu Sæmundsson í MacArthur almenningsgarðinum í Los Angeles. Listamennirnir hafa bætt við höggverkið, sem er af guðinum Prómeþeifi, pípu til að reykja vímuefni með. Erlent 21.11.2024 23:19 Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Matt Gaetz þingmaður Repúblikanaflokksins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til embættis dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Erlent 21.11.2024 18:11 Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ætlar að breyta reglum þingsins svo transkonur megi ekki nota kvennaklósett og skiptiklefa í þinghúsinu. Er það skömmu áður en fyrsta trans þingkonan tekur embætti. Erlent 21.11.2024 15:54 Vilja þvinga Google til að selja Chrome Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur farið fram á að Google verði gert að selja reksturinn varðandi Chrome vafrann. Fyrr á þessu ári komst dómari að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi brotið margvísleg samkeppnislög og misnotað markaðsráðandi stöðu þess. Viðskipti erlent 21.11.2024 14:37 Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres og eiginkona hennar Portia De Rossi eru fluttar frá Bandaríkjunum til Englands. Ástæðan er rakin til kosningasigurs Donalds Trump. Lífið 21.11.2024 12:01 Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir Huglægt listaverk seldist á uppboði fyrir 6,2 milljónir dala (um 850 milljónir króna) í New York í gær. Um er að ræða banana sem festur hefur verið á hvítan vegg með límbandi og var listaverkið keypt af auðugum rafmyntabraskara. Erlent 21.11.2024 09:31 Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Siðanefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins er klofin eftir flokkslínum varðandi það hvort birta eigi skýrslu um rannsókn nefndarinnar á meintum brotum Matt Gaetz. Erlent 21.11.2024 07:14 Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Tinna Empera hefur haft áhuga á tísku frá blautu barnsbeini og ólst upp við það að þora að hugsa stórt. Hún flutti til New York fyrir þrettán árum síðan og hefur tekið þátt í ýmsum ævintýralegum verkefnum. Blaðamaður ræddi við Tinnu um lífið úti. Tíska og hönnun 21.11.2024 07:01 Dularfull tíst Dylans vekja furðu Bandaríski tónlistarmaðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan er skyndilega orðinn virkur á samfélagsmiðlinum X, nú þegar hann er 83 ára gamall. Lífið 20.11.2024 20:01 Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sarah McBride, fyrsta trans manneskjan til að vera kjörin á bandaríska þingið, sætir nú aðför af hálfu kollega sinna en fulltrúadeildarþingmaðurinn Nancy Mace frá Suður-Karólínu hyggst leggja fram tillögur að reglum um að banna trans konum að nota baðherbergi og skiptiklefa þinghússins fyrir konur. Erlent 20.11.2024 07:18 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Fallhlíf hins alræmda D.B. Cooper er mögulega fundin. Um helgina voru liðin 53 ár frá því að Cooper stökk úr flugvél með 200 þúsund Bandaríkjadali í reiðufé eftir að hafa tekið flugáhöfn og farþega sem gísla. Erlent 27.11.2024 23:03
Trump sérstaklega áhugasamur um íslenska menningu Bjarni Benediktsson forsætisráðherra átti símafund með Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta, í gær. Hann segir Trump hafa verið sérstaklega áhugasaman um íslenska menningu og sögu og bað fyrir góðum kveðjum til þjóðarinnar. Innlent 27.11.2024 18:16
Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Þremur Bandaríkjamönnum sem hafa setið um árabil í kínverskum fangelsum hefur verið sleppt. Það var gert í skiptum fyrir ótilgreinda kínverska ríkisborgara í haldi Bandaríkjamanna. Yfirvöld í Bandaríkjunum gáfu einnig í dag út viðvörun þar sem Bandaríkjamenn eru varaðir við því að ferðast til Kína. Erlent 27.11.2024 15:44
Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27.11.2024 14:47
Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í gær að til greina kæmi að beita eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hótaði því að setja 25 prósenta toll á vörur frá Mexíkó, stöðvi yfirvöld þar ekki flæði fíkniefna og farand- og flóttafólks yfir landamæri ríkjanna. Erlent 27.11.2024 11:17
SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa samið við SpaceX um að senda kjarnorkuknúið könnunarfar af stað til tunglsins Títan, sem er á braut um Satúrnus, árið 2028. Skjóta á Dragonfly-þyrludrónanum á loft með Falcon Heavy eldflaug SpaceX en ferðin sjálf mun taka sex ár. Erlent 26.11.2024 15:38
Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Einn af helstu ráðgjöfum Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna, er grunaður um að hafa beðið fólk sem var til skoðunar fyrir nýja ríkisstjórn Trumps um peninga. Í staðinn myndi hann leggja inn gott orð um fólkið í eyru Trumps. Erlent 26.11.2024 13:30
Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Donald Trump, sem tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum 20. janúar á næsta ári, hefur ítrekað hótanir sínar um að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína, Mexíkó og Kanada verulega á fyrstu dögum sínum í embætti. Erlent 26.11.2024 06:55
Annarri ákærunni formlega vísað frá Dómari hefur samþykkt að vísa frá ákæru á hendur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintra ólögmætra tilrauna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði. Erlent 25.11.2024 23:25
Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Faðir Elon Musk segir stuðning sinn við Donald Trump ástæðuna fyrir því að sonurinn afneitaði honum fyrir sjö árum. Elon hafi loksins yfirgefið frjálslyndu fígúruna sem hann var áður. Hann rifjar upp hvernig móðurafi Elon flutti til Suður-Afríku vegna stuðnings við aðskilnaðarstefnu ríkisins. Erlent 25.11.2024 22:03
Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Sérstakur saksóknari sem falið var að rannsaka málefni Donalds Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur óskað eftir því að tveimur málum á hendur Trump verði vísað frá. Erlent 25.11.2024 21:49
Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Ólöglegir og löglegir innflytjendur í Bandaríkjunum flykkjast nú á námskeið til að fá ráðleggingar um hvað þeir geta gert til að freista þess að verða ekki fluttir úr landinu. Erlent 25.11.2024 12:02
Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Stórstjarnan og söngkonan víðfræga Adele komst við og felldi tár á laugardaginn þegar hún hélt sína síðustu tónleika í Las Vegas í Nevada-ríki í Bandaríkjunum. Söngkonan hefur varið síðustu tveimur árum í borginni og haldið hundrað tónleika í tónleikasal Caesars Palace. Lífið 24.11.2024 16:59
Vona að Musk takmarki tolla Trumps Ráðamenn í Kína eru sagðir binda vonir við að umfangsmiklar fjárfestingar Elons Musk þar í landi muni nýtast sem vogarafl í því að fá hann til að tala máli þeirra við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Trump ætlar að skipa nokkra menn í ríkisstjórn sína sem hafa verið harðorðir í garð Kína um árabil. Viðskipti erlent 24.11.2024 14:43
Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu, hyggst selja hús þeirra hjóna á Long Island þar sem talið er að voðaverkin hafi verið framið. Erlent 24.11.2024 13:46
Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt Russell Vought, einn aðalhöfunda hins umdeilda Project 2025, til að leiða fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Vought gegndi embættinu um tíma í fyrri stjórnartíð Trumps og mun koma til með að forgangsraða fjárveitingum og koma kosningaloforðum Trumps um umfangsmikið afnám reglugerða til framkvæmda. Erlent 23.11.2024 12:21
Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Njósnaherferð og tölvuárásir yfirvalda í Kína er versta árás á samskiptakerfi Bandaríkjanna í sögu ríkisins, samkvæmt bandarískum öldungadeildarþingmanni. Hann segir kínverska hakkara hafa komist inn í tölvukerfi á annan tug fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum. Erlent 22.11.2024 16:32
Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Ráðamenn í Ísrael hafa brugðist reiðir við ákvörðun dómara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) að gefa út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael. Báðir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á Gasa, þar sem Ísraelar hafa verið að gera mannskæðar árásir í rúmt ár. Erlent 22.11.2024 10:50
Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Lögregluyfirvöld í Laos hafa handtekið eiganda og framkvæmdastjóra gistiheimilis í Vang Vieng í tengslum við dauðsföll ferðamanna af völdum metanóleitrunar. Erlent 22.11.2024 08:44
Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hefur nú tilnefnt Pam Bondi sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna eftir að hinn umdeildi Matt Gaetz hrökk úr skaftinu í gær. Erlent 22.11.2024 07:16
Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Tveir bandarískir listamann hafa framkvæmd gjörning við höggverk Nínu Sæmundsson í MacArthur almenningsgarðinum í Los Angeles. Listamennirnir hafa bætt við höggverkið, sem er af guðinum Prómeþeifi, pípu til að reykja vímuefni með. Erlent 21.11.2024 23:19
Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Matt Gaetz þingmaður Repúblikanaflokksins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til embættis dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Erlent 21.11.2024 18:11
Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ætlar að breyta reglum þingsins svo transkonur megi ekki nota kvennaklósett og skiptiklefa í þinghúsinu. Er það skömmu áður en fyrsta trans þingkonan tekur embætti. Erlent 21.11.2024 15:54
Vilja þvinga Google til að selja Chrome Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur farið fram á að Google verði gert að selja reksturinn varðandi Chrome vafrann. Fyrr á þessu ári komst dómari að þeirri niðurstöðu að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi brotið margvísleg samkeppnislög og misnotað markaðsráðandi stöðu þess. Viðskipti erlent 21.11.2024 14:37
Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres og eiginkona hennar Portia De Rossi eru fluttar frá Bandaríkjunum til Englands. Ástæðan er rakin til kosningasigurs Donalds Trump. Lífið 21.11.2024 12:01
Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir Huglægt listaverk seldist á uppboði fyrir 6,2 milljónir dala (um 850 milljónir króna) í New York í gær. Um er að ræða banana sem festur hefur verið á hvítan vegg með límbandi og var listaverkið keypt af auðugum rafmyntabraskara. Erlent 21.11.2024 09:31
Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Siðanefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins er klofin eftir flokkslínum varðandi það hvort birta eigi skýrslu um rannsókn nefndarinnar á meintum brotum Matt Gaetz. Erlent 21.11.2024 07:14
Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Tinna Empera hefur haft áhuga á tísku frá blautu barnsbeini og ólst upp við það að þora að hugsa stórt. Hún flutti til New York fyrir þrettán árum síðan og hefur tekið þátt í ýmsum ævintýralegum verkefnum. Blaðamaður ræddi við Tinnu um lífið úti. Tíska og hönnun 21.11.2024 07:01
Dularfull tíst Dylans vekja furðu Bandaríski tónlistarmaðurinn og nóbelsverðlaunahafinn Bob Dylan er skyndilega orðinn virkur á samfélagsmiðlinum X, nú þegar hann er 83 ára gamall. Lífið 20.11.2024 20:01
Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sarah McBride, fyrsta trans manneskjan til að vera kjörin á bandaríska þingið, sætir nú aðför af hálfu kollega sinna en fulltrúadeildarþingmaðurinn Nancy Mace frá Suður-Karólínu hyggst leggja fram tillögur að reglum um að banna trans konum að nota baðherbergi og skiptiklefa þinghússins fyrir konur. Erlent 20.11.2024 07:18