Þórhildur Elín Elínardóttir Reservoir Dogs Sannarlega var að óreyndu útilokað að spá þeirri almennu fíkn í tíðindi af efnahagsmálum sem raunin hefur verið. Á meðan flest lék í lyndi svæfði mig að minnsta kosti umfjöllun um verðbréf og vísitölur ætíð á augabragði. Bakþankar 28.10.2008 22:29 Að sigra heiminn Samkvæmt sálfræðinni eru viðbrögð við skyndilegu andlegu áfalli eða sálarkreppu æði sammannleg og hafa verið greind í nokkur stig. Höggdofi strax eftir ótíðindin, afneitun eða martraðarkenndir. Bakþankar 21.10.2008 17:09 Köttur út í mýri Eftir heila viku af uppnámi sem einkenndist mest af fréttum af því hvað Davíð hafi eiginlega verið að meina höfum við nú hneppt börnin okkar og barnabörn í ævilangt skuldafangelsi. Bakþankar 14.10.2008 18:29 Hamstur Ef ætlunin er að fá brjóstsviða, vöðvabólgu eða viðvarandi hárlos er upplagt um þessar mundir að æfa hamstur. Öll skilyrði eru enn hagstæð til að verða lunkinn í þeirri vanræktu íþróttagrein svo nú er um að gera að munda innkaupakörfuna rösklega. Ýmislegt getur komið sér vel í kreppunni. Til dæmis verður hægt að hrósa sigri yfir að luma enn á krukku af fetaosti daginn sem Mjólkursamsalan leggur upp laupana og allir aðrir verða búnir að gleyma þeirri munaðarvöru. Eða súpa hlakkandi á síðasta espressóinum á meðan hinir óforsjálu horfa hnípnir og kaffilausir í gaupnir sér. Bakþankar 7.10.2008 21:40 Góði pabbi, vondi pabbi Vökustaurar forfeðranna hafa nú loks endurheimt hlutverk sitt síðustu örlaganætur. Ósofnir og veðraðir víkingarnir hafa snúið aftur til að færa okkur almúganum þau tíðindi að skildirnir séu brotnir, axirnar hauslausar og útrásin hafi breyst í innrás. Bakþankar 30.9.2008 18:02 Spilað með hjartastrengina Svona áratug eftir svolítið kaldrifjuð unglingsár þar sem fátt snerti mína viðkvæmari hjartastrengi eignaðist ég frumburðinn minn. Umsvifalaust snerist dæmið við, því allar götur síðan hefur lítið þurft til að slá mig út af laginu, einkum og sér í lagi ef það viðkemur börnum. Bakþankar 23.9.2008 22:17 Svindlað á okkur Í hvert sinn sem minnst er á ójafna stöðu kynjanna verða alltaf einhverjir til að fá létt flogakast af pirringi. Geðvonskuna styðja þeir stundum með þeim rökum að íslenskar konur hafi það bara prýðilegt og ættu umsvifalaust að hætta þessu væli. Og vissulega búum við auðvitað við dásamlegar aðstæður í samanburði við konur í sumum öðrum heimshlutum sem margar fá hvorki tækifæri til að mennta sig né svo mikið sem velja sér maka sjálfar. Ekki eru til lög hér sem heimila barsmíðar á ódælum kvensniftum. Umskurður stúlkubarna þekkist ekki, konur eru ekki þvingaðar til að ganga í búrkum og mega vinna fyrir sér, sjást einar á almannafæri og aka bíl. Hafa rétt til að tjá sig opinberlega og kjósa. Við erum sannarlega lukkunnar pamfílar. Bakþankar 16.9.2008 17:39 Húsráð gegn grámósku tilverunnar Gulltrygg aðferð til að gefa sjálfum sér jákvæðar strokur er að kaupa fallega skó. Sumum kann að virðast þetta heldur þunnildisleg sálfræði en reynslan hefur margsannað að glæsilegt skótau getur þurrkað upp vægan lífsleiða í einu vetfangi. Bakþankar 9.9.2008 16:13 Nóg er nóg er nóg Á dögunum þáði ég boð um að mæta á samkomu hjá Samhjálp. Bjóðandinn er dæmalaust vel gerður piltur sem nýlega sneri við blaðinu og kvaddi förunaut sinn fíkniefnadjöfulinn sem hafði verið honum fylgispakur um hríð. Bakþankar 3.9.2008 10:10 Silfur Síðustu vikuna hefur hópsálin í okkur fengið ærið tækifæri til að fagna. Hversu sérlunduð sem við erum annars og önug kannski sum, finnst varla sá Íslendingur tveggja ára og eldri sem ekki gladdist innilega yfir handboltaúrslitum Ólympíuleikanna. Bakþankar 26.8.2008 17:53 Að leyfa það sem er bannað Í fyrri viku gekk athyglisverður dómur á Norðurlandi þar sem maður var sýknaður af að hafa refsað börnum fyrir óskilgreinda óþekkt með flenginum á beran rassinn. Bakþankar 19.8.2008 17:10 Dýrafóður fyrir börnin Ekki alls fyrir löngu var hversdagsleg eldamennska innan heimilis einkum talin á verksviði húsmæðra í fullu starfi. Sá sem fékk greitt fyrir matargerð með öðru en lífsfyllingu hét matreiðslumaður ef það var karl. Kona gat til dæmis kallast matráðskona eða jafnvel eldabuska. Bakþankar 13.8.2008 08:42 Lyftistöng fyrir mannlífið Hin einkennilega borgarstjórn hefur nú getið af sér deilur þar sem ýmsir spekingar viðra miklar skoðanir á straumum og stefnum í arkitektúr í fortíð og framtíð. Bakþankar 5.8.2008 17:20 Sleitulaus hátíðahöld Við vorum nokkrar vinkonur fyrir löngu farnar að plana villta verslunarmannahelgi. Ráðagerðirnar fólust þó ekki í tilhlökkun vegna dvalar við hjalandi lítinn læk og kvakandi fugl í mó, þótt umhyggjusamir foreldrar hafi líklega verið fóðraðir á einhverjum þægilegum skáldskap. Bakþankar 29.7.2008 17:57 Sænskasumarið Ef íslenskur almannarómur gæti njörvað skoðun á þjóðum heims niður í eitt orð yrði niðurstaðan kannski sú að til dæmis væri sú þýska skipulögð, danska afslöppuð, norska trúrækin en írska, rússneska og grænlenska staupsöm. Finnska þjóðarsálin væri lokuð, bandaríska yfirborðsleg og þannig áfram. Einn fjölmargra víðkunnra sleggjudóma er svo vitaskuld að Svíar séu almennt og yfirhöfuð hroðalega leiðinlegir. Bakþankar 22.7.2008 16:35 Bobba, Jóhanna og Bergrún Eitt fegursta orðið í íslensku máli er ljósmóðir. Í því býr mildi og gæska, umhyggja og virðing fyrir lífi. Fæstar konur sem fætt hafa barn gleyma nokkru sinni þeirri konu sem annaðist þær á meðgöngu, spáði í spilin, samgladdist þegar fyrsti hjartslátturinn heyrðist, skildi allar áhyggjur og sefaði kvíðann. Bakþankar 8.7.2008 17:19 Bændur í kaupstaðarferð Eftir einangrun á ísaköldu landi í þúsund ár eru núna næstum öll heimsins gæði innan seilingar. Loks getum við úðað í okkur alls kyns croissant og latte, parmesan og sushi. Bakþankar 1.7.2008 16:57 Áfallastreitu- röskun Á víðáttum vefsins var nýlega frétt um rannsókn sem segir að áttundi hver nágranni World Trade Center finni enn til streitu eftir atburðina 11. september 2001. Bakþankar 24.6.2008 22:25 Krydd í kynlífið Nokkuð lengi hefur verið móðins að kvarta undan tímaskorti. Þar er ég sjálf engin undantekning, byrja yfirleitt að væla yfir þessu hátt og í hljóði strax á morgnana. Bakþankar 17.6.2008 22:02 Hættulegt hættumat Vegvilltur túristi á unglingsaldri var í síðustu viku skotinn á færi í fjallshlíð í Skagafirði. Alfriðaður og hopandi inn í þoku undan kúrekum norðursins sem ekki datt í hug friðsöm leið að lausn málsins. Bakþankar 10.6.2008 16:12 Ferðalag í hundana Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf nema eitt skilvirkt handtak til að þagga niður í kvikindinu en nákvæmlega tíu mínútum seinna upphefur hann annað og grimmdarlegra garg sem kostar undantekningarlaust dálítið einvígi. Ég hamast við að reyna að sofa yfir mig en hann reynir staðfastlega að svipta heimilið næturkyrrðinni. Enn hefur mér því miður ekki tekist að kenna börnunum hversu unaðslegt það er að lúra lengur undir hlýrri sæng, heldur spretta þau upp eins og stálfjaðrir. Þar með er áreiti dagsins hafið fyrir alvöru. Bakþankar 2.6.2008 20:48 Massa hress, megabeib Sígild skemmtun er að gramsa upp úrelt viðhorf og njóta þess hagstæða samanburðar sem okkur finnst tíminn hafa fært. Þannig komst ég eitt sinn yfir gamla bók sem kenndi kvenleika. Bakþankar 20.5.2008 18:27 Ósýnilega lífstykkið Mikið getum við konur þakkað fyrir að vera uppi nú en ekki fyrir til dæmis sextíu árum. Burtséð frá því að þá var eigi ætlast til annars af okkur en að sveipa heimilið hreingerningarilmi og okkur sjálfar dulúð, þá var hvorki búið að finna upp hárblásarann né sléttujárnið. Bakþankar 13.5.2008 18:42 Drama- drottning Faðir minn var vel lesinn í Íslendingasögunum og lunkinn við að kveikja áhuga á sagnaarfinum. Sem spons var ég í hefðbundnum álögum lítilla stúlkna sem vilja ólmar vera prinsessur. Þá fékk ég ítarlegar frásagnir af hennar hágöfgi Melkorku sem rænt var frá Írlandi og var bæði stórlynd og staðföst. Í útgáfu pabba var hún langamma mín í beinan kvenlegg sem þýddi þar með að ég var sjálf konungborin. Bakþankar 6.5.2008 17:09 Hressandi kreppa Þótt samúð með vörubílstjórum hafi runnið út í sandinn fer ekki hjá því ópin um eldsneytishækkun hafi orðið bensín á dýrtíðarhræðsluna. Sniðugt, ekki satt? Hroðaleg verðbólga ekki lengur bara bráðum heldur núna. Bakþankar 29.4.2008 18:29 Ást við fyrstu sýn Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskiptingar hef ég með sóma haldið uppi merkjum kvenlegs yndisþokka með því að vera átakanlega seinfær þegar kemur að vélbúnaði. Bakþankar 22.4.2008 18:08 Öskubuska Skallagrímsson Mamma, ég er að hugsa um það þegar ég verð stór," sagði fimm ára dóttir mín áhyggjufull um daginn. Bakþankar 16.4.2008 12:06 101 Kalkútta Ein af klisjunum sem við þorpsbúar yljuðum okkur lengi við var að þrátt fyrir allt ættum við besta vatn í heimi og hreinustu höfuðborgina. Vorum roggin gagnvart útlendingum sem hingað slæddust enda vóg hreinleikinn upp á móti því hversu allt var - líka þá - rosalega dýrt. Bakþankar 8.4.2008 17:55 Æðst allra dyggða Nú hafa stórkaupmenn sent út kaldrifjaða orðsendingu um hroðalegar verðhækkanir sem augsjáanlega koma okkur illa. Margir munu bíta á jaxlinn og aðlagast eins og áður en ekki allir hafa svigrúm til þess. Bakþankar 1.4.2008 17:14 Heimagert kynlífsmyndband Sem dálítið aldurhnigin frú væri ferill minn nú örugglega á fallanda fæti ef hann byggðist á aðdáun múgsins. Þótt ég hafi því miður ekki enn haft framfærslu af glæsileika og hæfileikum til að performera þá læðist að mér ofurlítill en áleitinn hrollur yfir því að jafnöldrur mínar í Hollywood séu sumar afskrifaðar vegna elli. Bakþankar 25.3.2008 18:08 « ‹ 1 2 3 4 … 4 ›
Reservoir Dogs Sannarlega var að óreyndu útilokað að spá þeirri almennu fíkn í tíðindi af efnahagsmálum sem raunin hefur verið. Á meðan flest lék í lyndi svæfði mig að minnsta kosti umfjöllun um verðbréf og vísitölur ætíð á augabragði. Bakþankar 28.10.2008 22:29
Að sigra heiminn Samkvæmt sálfræðinni eru viðbrögð við skyndilegu andlegu áfalli eða sálarkreppu æði sammannleg og hafa verið greind í nokkur stig. Höggdofi strax eftir ótíðindin, afneitun eða martraðarkenndir. Bakþankar 21.10.2008 17:09
Köttur út í mýri Eftir heila viku af uppnámi sem einkenndist mest af fréttum af því hvað Davíð hafi eiginlega verið að meina höfum við nú hneppt börnin okkar og barnabörn í ævilangt skuldafangelsi. Bakþankar 14.10.2008 18:29
Hamstur Ef ætlunin er að fá brjóstsviða, vöðvabólgu eða viðvarandi hárlos er upplagt um þessar mundir að æfa hamstur. Öll skilyrði eru enn hagstæð til að verða lunkinn í þeirri vanræktu íþróttagrein svo nú er um að gera að munda innkaupakörfuna rösklega. Ýmislegt getur komið sér vel í kreppunni. Til dæmis verður hægt að hrósa sigri yfir að luma enn á krukku af fetaosti daginn sem Mjólkursamsalan leggur upp laupana og allir aðrir verða búnir að gleyma þeirri munaðarvöru. Eða súpa hlakkandi á síðasta espressóinum á meðan hinir óforsjálu horfa hnípnir og kaffilausir í gaupnir sér. Bakþankar 7.10.2008 21:40
Góði pabbi, vondi pabbi Vökustaurar forfeðranna hafa nú loks endurheimt hlutverk sitt síðustu örlaganætur. Ósofnir og veðraðir víkingarnir hafa snúið aftur til að færa okkur almúganum þau tíðindi að skildirnir séu brotnir, axirnar hauslausar og útrásin hafi breyst í innrás. Bakþankar 30.9.2008 18:02
Spilað með hjartastrengina Svona áratug eftir svolítið kaldrifjuð unglingsár þar sem fátt snerti mína viðkvæmari hjartastrengi eignaðist ég frumburðinn minn. Umsvifalaust snerist dæmið við, því allar götur síðan hefur lítið þurft til að slá mig út af laginu, einkum og sér í lagi ef það viðkemur börnum. Bakþankar 23.9.2008 22:17
Svindlað á okkur Í hvert sinn sem minnst er á ójafna stöðu kynjanna verða alltaf einhverjir til að fá létt flogakast af pirringi. Geðvonskuna styðja þeir stundum með þeim rökum að íslenskar konur hafi það bara prýðilegt og ættu umsvifalaust að hætta þessu væli. Og vissulega búum við auðvitað við dásamlegar aðstæður í samanburði við konur í sumum öðrum heimshlutum sem margar fá hvorki tækifæri til að mennta sig né svo mikið sem velja sér maka sjálfar. Ekki eru til lög hér sem heimila barsmíðar á ódælum kvensniftum. Umskurður stúlkubarna þekkist ekki, konur eru ekki þvingaðar til að ganga í búrkum og mega vinna fyrir sér, sjást einar á almannafæri og aka bíl. Hafa rétt til að tjá sig opinberlega og kjósa. Við erum sannarlega lukkunnar pamfílar. Bakþankar 16.9.2008 17:39
Húsráð gegn grámósku tilverunnar Gulltrygg aðferð til að gefa sjálfum sér jákvæðar strokur er að kaupa fallega skó. Sumum kann að virðast þetta heldur þunnildisleg sálfræði en reynslan hefur margsannað að glæsilegt skótau getur þurrkað upp vægan lífsleiða í einu vetfangi. Bakþankar 9.9.2008 16:13
Nóg er nóg er nóg Á dögunum þáði ég boð um að mæta á samkomu hjá Samhjálp. Bjóðandinn er dæmalaust vel gerður piltur sem nýlega sneri við blaðinu og kvaddi förunaut sinn fíkniefnadjöfulinn sem hafði verið honum fylgispakur um hríð. Bakþankar 3.9.2008 10:10
Silfur Síðustu vikuna hefur hópsálin í okkur fengið ærið tækifæri til að fagna. Hversu sérlunduð sem við erum annars og önug kannski sum, finnst varla sá Íslendingur tveggja ára og eldri sem ekki gladdist innilega yfir handboltaúrslitum Ólympíuleikanna. Bakþankar 26.8.2008 17:53
Að leyfa það sem er bannað Í fyrri viku gekk athyglisverður dómur á Norðurlandi þar sem maður var sýknaður af að hafa refsað börnum fyrir óskilgreinda óþekkt með flenginum á beran rassinn. Bakþankar 19.8.2008 17:10
Dýrafóður fyrir börnin Ekki alls fyrir löngu var hversdagsleg eldamennska innan heimilis einkum talin á verksviði húsmæðra í fullu starfi. Sá sem fékk greitt fyrir matargerð með öðru en lífsfyllingu hét matreiðslumaður ef það var karl. Kona gat til dæmis kallast matráðskona eða jafnvel eldabuska. Bakþankar 13.8.2008 08:42
Lyftistöng fyrir mannlífið Hin einkennilega borgarstjórn hefur nú getið af sér deilur þar sem ýmsir spekingar viðra miklar skoðanir á straumum og stefnum í arkitektúr í fortíð og framtíð. Bakþankar 5.8.2008 17:20
Sleitulaus hátíðahöld Við vorum nokkrar vinkonur fyrir löngu farnar að plana villta verslunarmannahelgi. Ráðagerðirnar fólust þó ekki í tilhlökkun vegna dvalar við hjalandi lítinn læk og kvakandi fugl í mó, þótt umhyggjusamir foreldrar hafi líklega verið fóðraðir á einhverjum þægilegum skáldskap. Bakþankar 29.7.2008 17:57
Sænskasumarið Ef íslenskur almannarómur gæti njörvað skoðun á þjóðum heims niður í eitt orð yrði niðurstaðan kannski sú að til dæmis væri sú þýska skipulögð, danska afslöppuð, norska trúrækin en írska, rússneska og grænlenska staupsöm. Finnska þjóðarsálin væri lokuð, bandaríska yfirborðsleg og þannig áfram. Einn fjölmargra víðkunnra sleggjudóma er svo vitaskuld að Svíar séu almennt og yfirhöfuð hroðalega leiðinlegir. Bakþankar 22.7.2008 16:35
Bobba, Jóhanna og Bergrún Eitt fegursta orðið í íslensku máli er ljósmóðir. Í því býr mildi og gæska, umhyggja og virðing fyrir lífi. Fæstar konur sem fætt hafa barn gleyma nokkru sinni þeirri konu sem annaðist þær á meðgöngu, spáði í spilin, samgladdist þegar fyrsti hjartslátturinn heyrðist, skildi allar áhyggjur og sefaði kvíðann. Bakþankar 8.7.2008 17:19
Bændur í kaupstaðarferð Eftir einangrun á ísaköldu landi í þúsund ár eru núna næstum öll heimsins gæði innan seilingar. Loks getum við úðað í okkur alls kyns croissant og latte, parmesan og sushi. Bakþankar 1.7.2008 16:57
Áfallastreitu- röskun Á víðáttum vefsins var nýlega frétt um rannsókn sem segir að áttundi hver nágranni World Trade Center finni enn til streitu eftir atburðina 11. september 2001. Bakþankar 24.6.2008 22:25
Krydd í kynlífið Nokkuð lengi hefur verið móðins að kvarta undan tímaskorti. Þar er ég sjálf engin undantekning, byrja yfirleitt að væla yfir þessu hátt og í hljóði strax á morgnana. Bakþankar 17.6.2008 22:02
Hættulegt hættumat Vegvilltur túristi á unglingsaldri var í síðustu viku skotinn á færi í fjallshlíð í Skagafirði. Alfriðaður og hopandi inn í þoku undan kúrekum norðursins sem ekki datt í hug friðsöm leið að lausn málsins. Bakþankar 10.6.2008 16:12
Ferðalag í hundana Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf nema eitt skilvirkt handtak til að þagga niður í kvikindinu en nákvæmlega tíu mínútum seinna upphefur hann annað og grimmdarlegra garg sem kostar undantekningarlaust dálítið einvígi. Ég hamast við að reyna að sofa yfir mig en hann reynir staðfastlega að svipta heimilið næturkyrrðinni. Enn hefur mér því miður ekki tekist að kenna börnunum hversu unaðslegt það er að lúra lengur undir hlýrri sæng, heldur spretta þau upp eins og stálfjaðrir. Þar með er áreiti dagsins hafið fyrir alvöru. Bakþankar 2.6.2008 20:48
Massa hress, megabeib Sígild skemmtun er að gramsa upp úrelt viðhorf og njóta þess hagstæða samanburðar sem okkur finnst tíminn hafa fært. Þannig komst ég eitt sinn yfir gamla bók sem kenndi kvenleika. Bakþankar 20.5.2008 18:27
Ósýnilega lífstykkið Mikið getum við konur þakkað fyrir að vera uppi nú en ekki fyrir til dæmis sextíu árum. Burtséð frá því að þá var eigi ætlast til annars af okkur en að sveipa heimilið hreingerningarilmi og okkur sjálfar dulúð, þá var hvorki búið að finna upp hárblásarann né sléttujárnið. Bakþankar 13.5.2008 18:42
Drama- drottning Faðir minn var vel lesinn í Íslendingasögunum og lunkinn við að kveikja áhuga á sagnaarfinum. Sem spons var ég í hefðbundnum álögum lítilla stúlkna sem vilja ólmar vera prinsessur. Þá fékk ég ítarlegar frásagnir af hennar hágöfgi Melkorku sem rænt var frá Írlandi og var bæði stórlynd og staðföst. Í útgáfu pabba var hún langamma mín í beinan kvenlegg sem þýddi þar með að ég var sjálf konungborin. Bakþankar 6.5.2008 17:09
Hressandi kreppa Þótt samúð með vörubílstjórum hafi runnið út í sandinn fer ekki hjá því ópin um eldsneytishækkun hafi orðið bensín á dýrtíðarhræðsluna. Sniðugt, ekki satt? Hroðaleg verðbólga ekki lengur bara bráðum heldur núna. Bakþankar 29.4.2008 18:29
Ást við fyrstu sýn Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskiptingar hef ég með sóma haldið uppi merkjum kvenlegs yndisþokka með því að vera átakanlega seinfær þegar kemur að vélbúnaði. Bakþankar 22.4.2008 18:08
Öskubuska Skallagrímsson Mamma, ég er að hugsa um það þegar ég verð stór," sagði fimm ára dóttir mín áhyggjufull um daginn. Bakþankar 16.4.2008 12:06
101 Kalkútta Ein af klisjunum sem við þorpsbúar yljuðum okkur lengi við var að þrátt fyrir allt ættum við besta vatn í heimi og hreinustu höfuðborgina. Vorum roggin gagnvart útlendingum sem hingað slæddust enda vóg hreinleikinn upp á móti því hversu allt var - líka þá - rosalega dýrt. Bakþankar 8.4.2008 17:55
Æðst allra dyggða Nú hafa stórkaupmenn sent út kaldrifjaða orðsendingu um hroðalegar verðhækkanir sem augsjáanlega koma okkur illa. Margir munu bíta á jaxlinn og aðlagast eins og áður en ekki allir hafa svigrúm til þess. Bakþankar 1.4.2008 17:14
Heimagert kynlífsmyndband Sem dálítið aldurhnigin frú væri ferill minn nú örugglega á fallanda fæti ef hann byggðist á aðdáun múgsins. Þótt ég hafi því miður ekki enn haft framfærslu af glæsileika og hæfileikum til að performera þá læðist að mér ofurlítill en áleitinn hrollur yfir því að jafnöldrur mínar í Hollywood séu sumar afskrifaðar vegna elli. Bakþankar 25.3.2008 18:08
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið