Svona brást Hope Solo við fregnunum um bannið | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. ágúst 2016 18:15 Hope Solo leikur ekki fleiri landsleiki á næstunni. vísir/getty Eins og fjallað var um á Vísi í síðustu viku var bandaríski landsliðsmarkvörðurinn Hope Solo dæmd í sex mánaða bann vegna ummæla sinna eftir leik Bandaríkjanna og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó. Bandaríkin féllu úr leik í vítaspyrnukeppni og eftir leikinn lét Solo gamminn geysa í viðtölum og talaði um að sænska liðið væri samansafn af skræfum. Í síðustu viku var svo greint frá því að Solo hefði verið dæmd í hálfs árs bann af bandaríska knattspyrnusambandinu. Þá var samningi hennar við bandaríska landsliðið einnig rift. Solo tók þessum fregnum illa eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Þetta er brot úr væntanlegri sex þátta heimildamynd sem ber nafnið Keeping Score. „Sex mánaða bann, engar greiðslur, samningnum rift án tafar,“ heyrist Solo segja um leið og hún faðmar eiginmann sinn, fyrrverandi NFL-leikmanninn Jerramy Stevens. „Þetta er ekki bara bann heldur er samningnum líka rift. Þetta er kjaftæði. Sautján helvítis ár og þetta er búið.“Sjá einnig: Baulað á Solo í Brasilíu Solo, sem hefur verið einn besti markvörður heims um langt árabil, hefur verið dugleg að koma sér í fréttirnar fyrir atvik utan vallar. Þau höfðu einnig áhrif á hversu langt bannið sem hún fékk var. Solo, sem er 35 ára, hefur leikið 202 landsleiki fyrir Bandaríkin. Hún varð Ólympíumeistari með bandaríska landsliðinu 2008 og 2012 og heimsmeistari í fyrra. Fótbolti Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Eins og fjallað var um á Vísi í síðustu viku var bandaríski landsliðsmarkvörðurinn Hope Solo dæmd í sex mánaða bann vegna ummæla sinna eftir leik Bandaríkjanna og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í Ríó. Bandaríkin féllu úr leik í vítaspyrnukeppni og eftir leikinn lét Solo gamminn geysa í viðtölum og talaði um að sænska liðið væri samansafn af skræfum. Í síðustu viku var svo greint frá því að Solo hefði verið dæmd í hálfs árs bann af bandaríska knattspyrnusambandinu. Þá var samningi hennar við bandaríska landsliðið einnig rift. Solo tók þessum fregnum illa eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Þetta er brot úr væntanlegri sex þátta heimildamynd sem ber nafnið Keeping Score. „Sex mánaða bann, engar greiðslur, samningnum rift án tafar,“ heyrist Solo segja um leið og hún faðmar eiginmann sinn, fyrrverandi NFL-leikmanninn Jerramy Stevens. „Þetta er ekki bara bann heldur er samningnum líka rift. Þetta er kjaftæði. Sautján helvítis ár og þetta er búið.“Sjá einnig: Baulað á Solo í Brasilíu Solo, sem hefur verið einn besti markvörður heims um langt árabil, hefur verið dugleg að koma sér í fréttirnar fyrir atvik utan vallar. Þau höfðu einnig áhrif á hversu langt bannið sem hún fékk var. Solo, sem er 35 ára, hefur leikið 202 landsleiki fyrir Bandaríkin. Hún varð Ólympíumeistari með bandaríska landsliðinu 2008 og 2012 og heimsmeistari í fyrra.
Fótbolti Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira