Eyþór Aron skoraði fernu í risasigri Skagamanna í Unglingadeild UEFA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2019 16:20 Eyþór Aron Wöhler er hér til hægri með Sigurði Þór Sigursteinssyni, framkvæmdastjóra Knattspyrnufélags ÍA. Mynd/Heimasíða ÍA Skagamenn komust örugglega áfram í sextán liða úrslit Unglingadeild UEFA með 12-1 stórsigri á útivelli á móti Levadia Tallinn frá Eistlandi. Hetja dagsins var hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler sem var með tvær þrennur í leiknum. Skagamenn voru í fínum málum eftir fyrri leikinn upp á Skaga og unnu að lokum 16-1 samanlagt. Þessi 12-1 sigur er örugglega stærsti sigur íslensks knattspyrnuliðs í Evrópukeppni og hann var að vinnast á útivelli. Skagamenn hafa unnið 2. flokkinn undanfarin tvö sumur og þarna eru gríðarlega spennandi knattspyrnumenn að koma upp. Skagamenn mæta Derby County frá Englandi í næstu umferð en Derby vann öruggan sigur á Minsk frá Hvíta-Rússlandi í tveimur leikjum, samtals 9-2. Fyrri leikurinn upp á Akranesi fór 4-0 og þá var ÍA-liðið komið í 6-0 í hálfleik í seinni leiknum í dag. Eistarnir náðu að minnka muninn þegar Skagamenn voru búnir að skora ellefu mörk. Hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler fór á kostum og skoraði fernu í leiknum en hann var á yngsta ári í 2. flokknum í sumar. Öll fjögur mörkin hans komu á fyrstu 32 mínútum leiksins. Eyþór Aron átti einnig þrjár stoðsendingar á félaga sína samkvæmt beinni textalýsingu ÍATV sem þýðir að Eyþór kom að átta mörkum í þessum leik. Gísli Laxdal Unnarsson var líka á skotskónum og skoraði tvö mörk en hin mörk Skagamanna skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (úr víti), Elís Dofri G Gylfason, Aron Snær Ingason, Brynjar Snær Pálsson og varamaðurinn Aron Snær Guðjónsson, sem skoraði tvívegis á lokamínútunum. Mörk Skagamanna í fyrri leiknum skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (tvö mörk), Brynjar Snær Pálsson og Marteinn Theodórsson.Hér má nálgast tölfræði UEFA úr þessum ótrúlega leik.2. flokkur ÍA.Mynd/Heimasíða ÍA Fótbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira
Skagamenn komust örugglega áfram í sextán liða úrslit Unglingadeild UEFA með 12-1 stórsigri á útivelli á móti Levadia Tallinn frá Eistlandi. Hetja dagsins var hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler sem var með tvær þrennur í leiknum. Skagamenn voru í fínum málum eftir fyrri leikinn upp á Skaga og unnu að lokum 16-1 samanlagt. Þessi 12-1 sigur er örugglega stærsti sigur íslensks knattspyrnuliðs í Evrópukeppni og hann var að vinnast á útivelli. Skagamenn hafa unnið 2. flokkinn undanfarin tvö sumur og þarna eru gríðarlega spennandi knattspyrnumenn að koma upp. Skagamenn mæta Derby County frá Englandi í næstu umferð en Derby vann öruggan sigur á Minsk frá Hvíta-Rússlandi í tveimur leikjum, samtals 9-2. Fyrri leikurinn upp á Akranesi fór 4-0 og þá var ÍA-liðið komið í 6-0 í hálfleik í seinni leiknum í dag. Eistarnir náðu að minnka muninn þegar Skagamenn voru búnir að skora ellefu mörk. Hinn sautján ára gamli Eyþór Aron Wöhler fór á kostum og skoraði fernu í leiknum en hann var á yngsta ári í 2. flokknum í sumar. Öll fjögur mörkin hans komu á fyrstu 32 mínútum leiksins. Eyþór Aron átti einnig þrjár stoðsendingar á félaga sína samkvæmt beinni textalýsingu ÍATV sem þýðir að Eyþór kom að átta mörkum í þessum leik. Gísli Laxdal Unnarsson var líka á skotskónum og skoraði tvö mörk en hin mörk Skagamanna skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (úr víti), Elís Dofri G Gylfason, Aron Snær Ingason, Brynjar Snær Pálsson og varamaðurinn Aron Snær Guðjónsson, sem skoraði tvívegis á lokamínútunum. Mörk Skagamanna í fyrri leiknum skoruðu þeir Sigurður Hrannar Þorsteinsson (tvö mörk), Brynjar Snær Pálsson og Marteinn Theodórsson.Hér má nálgast tölfræði UEFA úr þessum ótrúlega leik.2. flokkur ÍA.Mynd/Heimasíða ÍA
Fótbolti Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Ísland nær sigri í slagnum við Kanada Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Sjá meira