Kirkjan iðar af lífi í desember 26. nóvember 2004 00:01 "
Við göngum að sjálfsögðu inn í aðventuna með opnum huga," segir Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju. "Við sjáum hvernig allt iðar af lífi og krafti í þjóðfélaginu, en reynum eins og við getum að koma með hinn kristna boðskap inn í aðventuhátíðina, þar sem rödd Jesú Krists fær að hljóma um frið í hjarta. Það er ekki nóg að eiga umbúðir og skraut og mikið af ljósum ef maður á ekki frið og ljós hið innra. Til að upplifa þennan frið bjóðum við fólki upp á samverustundir í kirkjum landsins, margskonar samverur, helgihald, tónleika, kyrrðarstundir og bænastundir í tugum talið." Í Hallgrímskirkju verða 16 tónleikar á aðventu og jólum og 27 guðsþjónustur og kyrrðarstundir. "Að auki fáum við skóla- og leikskólaheimsóknir og heimsækjum stofnanir hér í kring, þannig að samtals eru þetta 58 athafnir. Ég býst við að í þessari kirkju getum við reiknað um 20.000 manns á aðventu sem er líkt og í fyrra og mjög gleðilegt. Þrátt fyrir efnishyggju og velgengni sem einkennir töluvert okkar þjóðfélag hefur fólk mikla þörf fyrir að komast inn í kyrrðina og upplifa eitthvað fallegt sem gleður huga og sál. Við megum heldur ekki gleyma að við erum með allt of stóran hóp af fólki sem líður illa, fólki sem berst við fátækt og margskonar vandamál og þetta fólk leitar til Hjálparstofnunar kirkjunnar eftir aðstoð og í kirkjuna eftir andlegum styrk. En við viljum undirstrika að kirkjan okkar mun iða af lífi allan desember og hvetjum fólk til að taka sér tíma til að upplifa friðinn og helgina á aðventu."
Jól Mest lesið Gítargripin við Bjart er yfir Betlehem Jólin Fjórréttuð hátíðarveisla Jól Frumleg jólakort og gamaldags föndur Jólin Karlar í nærbuxum Jól Mikil og rík hefð fyrir jólaglögginni Jól Jólin í fyrri daga Jól Búa til eigin jólabjór Jól Saga jólasveinsins Jól Skreyttur skór í gluggann Jólin Uppskrift að piparkökuhúsi Jólin