Halldór vill ekki þurfa að bíða 6. desember 2004 00:01
Tveir umhverfisnefndarmenn Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður nefndarinnar, og Mörður Árnason, Samfylkingu, hindruðu Halldór Blöndal, forseta Alþingis, í að koma frumvarpi sínu um takmörkun andaveiða í flýtimeðferð á þingi með því að senda það umræðulaust til nefndar. Taki enginn til máls um mál fara þau til afgreiðslu nefnda og hoppa þar með fram fyrir tugi ef ekki hundruð annarra mála á dagskrá þingsins. Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður umhverfisnefndar, segir ástæðulaust að ræða ekki málið. Hann er andsnúinn því að byggja stefnu í umhverfismálum á tilfinningalegum grundvelli. "Endur eru ekki útrýmingarhættu." Bendir Guðlaugur Þór á að þetta sé hættulegt fordæmi í hvalamálinu. Aðspurður hvers vegna ekki megi friða endur eins og lóuna, sagði þingmaðurinn að rökstyðja mætti friðun lóu með hægri viðkomu hennar. Halldór Blöndal bendir á að varaþingmenn komi málum sínum strax á dagskrá og segist telja óeðlilegt að þingmenn sem flytji fá eða jafnvel bara eitt mál eins og hann þurfi að bíða. "Það er ótækt að gamlir þingmenn eins og ég þurfi að bíða fram í apríl." Hann sagði að sama gilti um mál sem hefðu þegar verið til umræðu á þinginu að eðlilegt væri að þau gætu farið beint til nefndar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Innlent Dagur strikaður niður um sæti Innlent „Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Innlent Ástand á Reykjanesbrautinni Innlent Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Innlent Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Erlent Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Biden náðar son sinn Erlent Fleiri fréttir Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? „Fullt af augljósum árekstrum þarna“ Getur ekki hugsað til þess að þurfa að loka aftur eftir tvo mánuði Gekk betur en óttast var Formannadans, krapastífla og pakkasprengja „Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Borgaði barni fyrir kynferðislega mynd en sleppur Kristín Hjálmtýsdóttir hætt hjá Rauða krossinum Eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig á umboðinu Ástand á Reykjanesbrautinni Áfrýjar búvörulagamálinu til Hæstaréttar Dagur strikaður niður um sæti Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2024 Réðst á konuna því hún var ekki búin að elda Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Sósíalistar hefðu ekki komist inn í Noregi og Svíþjóð Lögreglan fylgist vel með ástandinu í Ölfusá „Maður er einhvern veginn í spennufalli“ Beiðni um endurtalningu borist og talningarmenn á tánum Vegir víða á óvissustigi Formenn funda með forseta Lýsir eftir vitnum á Seltjarnarnesi Segir gríðarleg tregðulögmál að verki á þinginu Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Sjá meira