Innlent

Oddvitaáskorunin - Minna vesen og meiri gleði

Samúel Karl Ólason skrifar
Selfie með Óttarri Proppé eftir tónleika Pollapönks á Thorsplani = Oddviti og eldhress stuðningsmaður. Myndgáta: hvort er stuðningsmaðurinn?
Selfie með Óttarri Proppé eftir tónleika Pollapönks á Thorsplani = Oddviti og eldhress stuðningsmaður. Myndgáta: hvort er stuðningsmaðurinn?

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Guðlaug Kristjánsdóttir leiðir lista Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum í haust.

Guðlaug Kristjánsdóttir er fædd árið 1972. Hún er sjúkraþjálfari og hefur sinnt því starfi meðal annars á Landspítala og á eigin stofu sem hún stofnaði í heimabæ sínum Hafnarfirði ásamt eiginmanni sínum. Guðlaug hefur verið formaður Bandalags háskólamanna frá árinu 2008. Hún er gift og á þrjá syni á grunnskólaaldri. 

Helstu áherslur Guðlaugar eru: Að Hafnarfjörður sé lifandi bær með burðugt og fjölbreytt mann- og atvinnulíf. Vel skipulögð byggð sem styður við lýðheilsu. Hafnfirðingar séu góðir gestgjafar, taki vel á móti jafnt nýjum bæjarbúum, ferðamönnum, öðrum gestum og hver öðrum. Breytingar í vinnubrögðum bæjarstjórnar, sátt um langtímaáætlun, minni átök.

Frjálslynd afstaða sem styður fjölbreytni í allri sinni mynd. Þjónandi forysta sem virkjar bæjarbúa betur í ákvarðanatöku um eigin hag og þorir að spyrja spurninga frekar en að þykjast hafa öll svör. Mannréttindi og jafnrétti, alúð og ábyrgð. Að pólitík verði mannlegri og skemmtilegri í Hafnarfirði, almennt ríki minna vesen og meiri gleði.

YFIRHEYRSLAN



Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Mosavaxna lautin þar sem maður leggst niður og horfir til himins.

Hundar eða kettir?

Bæði.

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Núið.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Sumargrillmatur, lamb, kartöflur og grænmeti með ferskri sósu.

Hvernig bíl ekur þú?

Suzuki Splash – fyrir bílastæðaklukkuna.

Besta minningin?

Að fá nýfætt barn í fangið.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Hef fengið hraðasekt.

Hverju sérðu mest eftir?

Tímanum sem ég hef varið í óþarfa áhyggjur og andvökur.

Draumaferðalagið?

Jakobsstígurinn, gangandi.

Hefur þú migið í saltan sjó?

Örugglega einhvern tímann.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Lífið mitt er nú helst skrýtið þegar ég er ekki að gera eitthvað skrýtið og nýtt.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Oft og mörgum sinnum – og er ekki hætt.

Hverju ertu stoltust af?

Fólkinu mínu.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu [email protected].


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×