Skoðun

Nýtum kosningaréttinn okkar

Berglind Vignisdóttir skrifar
Samkvæmt Íslensku kosningarannsókninni síðustu ár eru ungt fólk sá hópur kjósenda sem er með hvað dræmustu kjörsóknina.

Pólitíkin er margir hlutir og að mínu mati er hún spennandi, krefjandi og tækifæri til þess að gera betur. Hins vegar getur pólitíkin líka verið illskiljanleg, flókin og oft á tímum afskaplega langdregin. Margt ungt fólk hugsar þannig um pólitíkina, að hún sé málefni fullorðinna og við yngra fólkið þurfum ekki að hugsa út í þetta.

Ég er algjörlega ósammála því. Stjórnmál eru málefni allra, sérstaklegra ungra kjósenda. Ég vil hvetja alla unga kjósendur að nýta sér þennan lýðræðislega rétt sem við eigum í þessu lýðræðislega samfélagi sem að við búum í.

Það búa ekki allir við lýðræði

Ég heimsótti Venesúela fyrr á þessu ári og var þar í mánuð. Daginn sem ég fór úr landi byrjuðu nemendur að mótmæla ríkisstjórninni á götum úti. Kosningar eru spilltar og stjórnvöld að sama skapi. Fólkið þar hefur ekkert val þegar kemur að stjórnvöldum og lýðræðið er ekki nema að nafninu til. Ég frétti af dauðsföllum ungra krakka þar sem hernum var skipað að skjóta á mótmælendur, og eftir mína eigin dvöl þarna hef ég það sterklega á tilfinningunni að stjórnvöld þar í landi standa ekki með fólkinu heldur á móti því.

Ímyndið ykkur kæru ungu kjósendur að réttur ykkar væri svo skertur sem og allra í samfélaginu að þegar fólkið reynir að vekja athygli á erfiðleikum þá neita stjórnvöld fólkinu um internet, rafmagn og jafnvel vatn.

Ímyndið ykkur að þegar þið mótmælið á götum úti fyrir rétti ykkar þá skýtur lögreglan á ykkur. Ímyndið ykkur að enginn fjölmiðill sé frjáls og að þátttaka í mótmælum gæti þýtt dauða. Ímyndaðu þér að lögreglan sé það spillt að þú ert jafn hræddur við hana og aðra ótínda glæpamenn.

Nýtum réttinn

Við búum í þjóðfélagi þar sem lýðræði er veruleiki og við ungir og aldnir eigum virkilega kost á því að breyta einhverju. Ég er ekki að biðja alla unga kjósendur að hella sér út í stjórnmál ef áhuginn liggur ekki þar, einungis að hugsa um þá möguleika sem við stöndum frammi fyrir.

Ég hvet ykkur því að nýta kosingaréttinn ykkar.

Ekki taka því sem gefnu.

Farið á kjörstað og sannið að stjórnmál eru ekki einungis málefni fullorðinna, stjórnmálamanna eða hagfræðinga heldur samfélagsins í heild. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×