Andri vann eftir óbærilega spennu á Hlíðavelli Sindri Sverrisson skrifar 17. maí 2020 19:15 Andri Þór Björnsson vann sig upp listann í dag og endaði í efsta sæti. MYND/[email protected]
Áhugakylfingarnir sem voru efstir fyrir lokahringinn á ÍSAM-golfmótinu á Hlíðavelli í dag stóðust ekki pressuna á lokaholunni og sáu á eftir sigrinum til atvinnukylfingsins Andra Þórs Björnssonar. Andri lék á -2 höggum í dag og endaði mótið á samtals fjórum höggum undir pari. Dagbjartur Sigurbrandsson, sem líkt og Andri er úr GR, var með forystuna eftir fyrstu tvo hringi mótsins en lék á þremur höggum yfir pari í dag og endaði einu höggi á eftir Andra. Dagbjartur fékk skolla á 18. braut nú undir kvöld, þegar útlit var fyrir bráðabana á mótinu. Heimamaðurinn Björn Óskar Guðjónsson var einnig grátlega nærri sigri en hann fékk skramba á lokaholunni og endaði tveimur höggum á eftir Andra. Þeir Björn og Kristófer Karl Karlsson enduðu jafnir í 3.-4. sæti. Haraldur Franklín Magnús kom sér upp í 5.-6. sæti, jafn Tómasi Eiríkssyni Hjaltested, með því að leika á -3 höggum í dag þrátt fyrir að fá skolla á lokaholunni. Þeir léku hvor um sig samtals á -1 höggi.
Golf Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Fleiri fréttir Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira