Innlent

Lög­reglan fylgist vel með á­standinu í Ölfus­á

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Garðar Már Garðarsson, sem er aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi við Ölfusá í morgun.
Garðar Már Garðarsson, sem er aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi við Ölfusá í morgun. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Lögreglan á Suðurlandi fylgist grannt með stöðunni í Ölfusá vegna krapastíflu í ánni á milli Ölfusárbrúar og Selfosskirkju. Fólk er beðið að sýna sérstaka varúð við ána en vatn var farið að flæða upp að og yfir göngustíga við ánna í gær.

Það var um níu stiga frost á Selfossi klukkan 07:00 í morgun og enn heilmikil krapastífla í Ölfusá og hleðst ísinn upp við Ölfusárbrú og í hvilftinni við Selfosskirkju. Lögreglan á Suðurlandi fylgist vel með ánni.

Garðar Már Garðarsson er aðalvarðstjóri hjá lögreglunni.

„Það er grannt fylgst með rennslinu og við fylgjumst bæði með drónamyndum og raun eftirliti hérna fyrir neðan og upp með ánni og erum í stöðugu sambandi við vatnamælingar veðurstofu Íslands“, segir Garðar Már.

Garðar segir mikla umferð við Ölfusá vegna þessara óvenjulegu aðstæðna.

„Já, það er mikil umferð hérna enda ekki nema von því þetta er tilkomumikið að sjá þetta. Hérna eru náttúruöflin í sinni skýrustu mynd beint fyrir framan nefið á okkur.“

Lögreglan notast m.a. við dróna til að fylgjast með ástandinu í ánni. Hér er Frímann Birgir Baldursson að fljúga drónanum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En er lögreglan með einhverjar ráðleggingar til íbúa eða fólks?

„Það er náttúrulega fyrst og fremst að fara alls ekki út á ísinn og ef það verður vart við einhverjar hreyfingar að þá frekar að bakka frá og gæta varúðar, ekki fara of nálægt,“ segir Garðar um leið og hann hvetur fólk í húsum í nágrenni þess svæðis sem ís er að hlaðast upp að vera á varðbergi og tilkynna til lögreglunnar ef það telur ís eða vatn sé farið að nálgast garða eða húsnæði meira en nú er.

Lögreglan segir að það megi alls ekki fara út á ísinn í ánni, það geti verið stórhættulegt.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Mikill ís hefur hlaðist upp við Selfosskirkju.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×