Erlent

Skorið á ljós­leiðara í Finn­landi

Kjartan Kjartansson skrifar
Ljósleiðarinn skemmdist á milli Espoo og Vihti í sunnanverðu Finnlandi.
Ljósleiðarinn skemmdist á milli Espoo og Vihti í sunnanverðu Finnlandi. Vísir/Getty

Lögregla rannsakar nú hvernig ljósleiðari í jörðu fór í sundur á tveimur stöðum í gær. Netlaust var víða í Finnlandi vegna þess sem lögreglu grunar að hafi verið skemmdarverk. Spellvirki voru nýlega unnin á norrænum sæstrengjum í Eystrasalti.

Ljósleiðarinn rofnaði síðdegis í gær og viðgerðir héldu áfram í morgun, að sögn finnska ríkisútvarpsins YLE. Lulu Ranne, samgöngu- og fjarskiptaráðherra sagði á samfélagmiðlinum X að rannsókn væri hafin í samvinnu við fjarskiptafyrirtækið GlobalConnect.

Talsmaður fyrirtækisins segir að ljósleiðarinn hafi skemmst á tveimur stöðum í dreifbýli á milli borgarinnar Espoo skammt vestur af Helsinki og bæjarins Vihti norðvestur af honum. Hann vildi ekki tjá sig um hvað olli skemmdunum að öðru leyti en að rannsókn stæði yfir. Algengasta ástæðan fyrir því að ljósleiðarar færu í sundu væru að gröfur græfu óvart í þá.

Skorið var á tvo sæstrengi í Eystrasalti, einn finnskan og annan sænskan, í síðasta mánuði. Talið er að kínverskt fraktskip sem var nýkomið úr rússneskri höfn hafi skorið á strengina. Wall Street Journal hafði eftir sínum heimildarmönnum að grunu léki á að rússneska leyniþjónustan hefði fengið skipstjóra skipsins til verksins.

Hrina skemmdarverka í Evrópu undanfarin misseri er talin hluti af svokölluðum óhefðbundnum hernaði rússneskra stjórnvalda gegn vestrænum ríkjum. Viðvarandi truflanir á gervihnattastaðsetningarkerfum hafa verið á hluta Eystrasalts og í Finnlandsflóa en grunur leikur á að þeim sé ætlað að fela ferðir skipa sem sigla til Rússlands í trássi við refsiaðgerðir vegna innrásarinnar í Úkraínu og verja.

Slökkt var á staðsetningarmerki kínverska skipsins sem er talið hafa slitið sæstrengina í Eystrasalti á dögunum.


Tengdar fréttir

NATO tryggi lykilinn­viði eftir ætluð spell­virki í Eystra­salti

Finnski varnarmálaráðherrann vill að Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið verði að grípa til aðgerða til að verja sæstrengi eftir skemmdir á tveimur slíkum í Eystrasalti í vikunni. Líklegt er talið að skemmdarverk hafi verið unnin á strengjunum.

Land­helginni ekki sinnt sem skyldi og sæ­strengir illa varðir

Skortur á flugvél gerir Landhelgisgæslunni ókleift að sinna landhelginni sem skyldi og lykilinnviðir eins og sæstrengir eru illa varðir fyrir vikið, að sögn forstjóra Gæslunnar. Hann telur óásættanlegt að ekki sé hægt að halda úti að minnsta kosti einni flugvél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×