Segir atvikið aðför að blaðamönnum Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra miðilsins Fréttin.is var vísað úr flugvél Icelandair í dag sem átti að fara til Munchen en Margrét ætlaði sér til Rússlands í vinnuferð. Hún segist niðurlægð eftir atvik dagsins, Icelandair hafi brotið á hennar réttindum og hún sé tilbúin til þess að fara með málið fyrir dómstóla. Innlent 23. september 2022 21:06
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. Erlent 23. september 2022 19:59
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. Erlent 23. september 2022 16:20
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. Innlent 23. september 2022 15:33
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. Erlent 23. september 2022 12:36
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. Erlent 23. september 2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. Erlent 22. september 2022 22:30
Þekkja ekki deili á boðsferð fréttamanna til Lúhansk Rússneska sendiráðið hefur ekki upplýsingar um hvert stendur að baki boði til íslenskra fjölmiðla um að ferðast til Lúhansk í Úkraínu til að fylgjast með umdeildri íbúakosningu. Íslenskur karlmaður sendi fjölmiðlum boðið en vill ekki segja nákvæmlega á hvers vegum það er. Innlent 22. september 2022 18:01
Stýrivextir ekki hærri í Bretlandi frá 2008 Seðlabanki Bretlands hefur hækkað stýrivexti um 0,5 prósent og standa vextirnir nú í 2,5 prósentum og hafa ekki verið hærri síðan árið 2008. Um er að ræða sjöundu stýrivaxtahækkun bankans í röð en sérfræðingar höfðu spáð allt að 0,75 prósenta hækkun. Viðskipti erlent 22. september 2022 11:45
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. Erlent 22. september 2022 07:23
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. Erlent 21. september 2022 20:27
Einhugur um NATO Í nýrri yfirlýsingu sinni fullyrti Vladimír Pútín að Rússlandi stafaði ógn af Vesturlöndum sem heild. Yfirlýsingunni fylgdi herkvaðning varaliðs Rússlands og ítrekun á ógninni um notkun kjarnavopna. Það er í raun fátt sem er betur til þess fallið að sameina Vesturlönd en yfirlýsing af þessu tagi. Engu að síður ríkir ekki einhugur meðal Vesturlandabúa um stríðið í Úkraínu. Skoðun 21. september 2022 14:30
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. Erlent 21. september 2022 12:05
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. Erlent 21. september 2022 10:26
Shevchenko afhenti Lewandowski úkraínskt fyrirliðaband fyrir HM Robert Lewandowski, framherji og fyrirliði pólska karlalandsliðsins í fótbolta, mun bera fyrirliðaband í úkraínsku fánalitunum á komandi heimsmeistaramóti sem fer fram í Katar. Úkraínsk goðsögn afhenti honum bandið. Fótbolti 21. september 2022 10:01
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. Erlent 21. september 2022 08:33
Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði Vesturlönd hafa sýnt að þau vilja ekki frið milli Rússlands og Úkraínu, sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu til rússnesku þjóðarinnar í morgun. Hann sagði Vesturlönd vilja tortíma Rússlandi og sakaði þau um að nota Úkraínumenn sem fallbyssufóður. Erlent 21. september 2022 06:20
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. Erlent 20. september 2022 22:30
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. Erlent 20. september 2022 14:54
Úkraínustríðið ekki veikt undirstöður varnarsamningsins við Bandaríkin Ef hið ólíklega gerðist og stefndi í átök milli NATO og Rússlands yrði öryggi Íslands komið undir fælingarstefnu NATO og Bandaríkjanna, varnarsamningi Íslands við Bandaríkin og framkvæmd varnaráætlunar Bandaríkjahers fyrir landið. Úkraínustríðið hefur ekki haft neinar afleiðingar sem veikja þessar undirstöður íslenskra öryggis- og varnarmála. Innherji 20. september 2022 10:19
Rússar vilja að landsliðsþjálfari Úkraínu fái lífstíðarbann frá fótbolta Rússar hafa sent erindi til UEFA, evrópska knattspyrnusambandsins, þar sem þeir hvetja sambandið til að setja Oleksandr Petrakov, landsliðsþjálfara Úkraínu, í bann frá knattspyrnu. Fótbolti 19. september 2022 23:00
Saka Rússa um að skjóta flugskeyti að kjarnorkuveri Rússneskt flugskeyti er sagt hafa lent aðeins nokkur hundruð metra frá ofni Pivdennoukrainsk-kjarnorkuversins í sunnanverðri Úkraínu í dag. Kjarnaofnarnir hafi ekki skaddast en skemmdir hafi orðið á öðrum byggingum og búnaði. Erlent 19. september 2022 11:15
Rússar leyfi sér siðleysi í stríðsátökum Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir bakslags vera að vænta í gagnárásinni og að Rússar komist langt á siðleysi sem þeir leyfa sér í stríðsátökum. Erlent 17. september 2022 11:44
Gagnárásin hafi engin áhrif á Rússa Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Pútín tjáði sig í fyrsta sinn um stöðuna í gær. Erlent 17. september 2022 09:59
Pólitísk upplausn í aðsigi í Evrópu: „Þetta lítur út fyrir að vera einhvers konar leikrit“ Sigríður Á. Andersen fyrrverandi ráðherra segir að evrópskir ráðamenn hafi átt að vera betur undirbúnir fyrir afleiðingarnar sem refsiaðgerðir gegn Rússum hefðu á hagkerfin heima fyrir. Sumar refsiaðgerðirnar séu að reynast refsiaðgerðir ríkja gegn eigin borgurum. Erlent 17. september 2022 09:15
Selenskí kallar Rússa morðingja vegna fjöldagrafa Flestir þeirra sem grafnir hafa verið upp í fjöldagröf sem fannst nærri Izyum í Úkraínu eru óbreyttir borgarar. Minnst eitt líkanna var með bundnar hendur en Úkraínumenn hafa fundið vísbendingar um að íbúar bæjarins og aðrir hafi verið pyntaðir. Erlent 16. september 2022 15:33
Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum. Erlent 16. september 2022 14:27
„Við erum með heimskustu ríkisstjórn í Evrópu“ Þingmaður þýska vinstriflokksins, Die Linke, fór hörðum orðum um þýsku ríkisstjórnina í harla umdeildri ræðu sem hún flutti í þýska þinginu í vikunni. Þar fjallaði hún um nauðsyn þess að halda áfram viðskiptum við Rússa þrátt fyrir stríðið - og málflutningur hennar hefur síðan leitt til þess að fjöldi flokksmanna hefur sagt sig úr flokki hennar. Erlent 16. september 2022 08:55
Fundu fjöldagröf með fjögur hundruð líkum í Izyum Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins. Erlent 16. september 2022 07:50
Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Xi Jinping, forseta Kína, fyrir yfirvegaða afstöðu til innrásarinnar í Úkraínu. Pútín sagðist þó hafa skilning á spurningum og áhyggjum Xi af ástandinu í Úkraínu. Þá hét Pútín stuðningi Rússa við Kína varðandi meint yfirráð þeirra yfir Taívan. Erlent 15. september 2022 15:18