Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. Erlent 15. júní 2022 07:13
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. Erlent 14. júní 2022 10:55
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. Erlent 14. júní 2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. Erlent 14. júní 2022 07:27
Í efsta sæti heimslistans en ekki með á Wimbledon Daniil Medvedev er kominn í efsta sæti heimslistans í tennis. Novak Djokovic hafði setið í efsta sæti listans til þessa á árinu en hann er nú í 3. sæti. Medvedev fær hins vegar ekki að keppa á Wimbledon síðar í þessum mánuði. Sport 13. júní 2022 15:01
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. Erlent 13. júní 2022 12:17
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. Erlent 13. júní 2022 07:45
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. Erlent 13. júní 2022 07:13
Mannréttindi og mannslíf mikilvægari en „pólitískar fantasíur gamals manns“ Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin. Innlent 12. júní 2022 21:20
Veitti innsýn í lífið í Rússlandi þessa dagana Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert. Innlent 12. júní 2022 15:03
Opna McDonald's aftur í Rússlandi undir nýju nafni Veitingastaðir McDonald‘s í Rússlandi voru opnaðir á nýjan leik í morgun eftir að stórfyrirtækið yfirgaf landið fyrr í vor vegna innrásarinnar í Úkraínu. Litlar breytingar hafa verið gerðar á veitingastöðunum eða matnum sem seldur er þar. Viðskipti erlent 12. júní 2022 09:50
ESB staðfestir Úkraínu væntanlega sem umsóknarríki í næstu viku Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gefur álit sitt á aðildarumsókn Úkraínu að sambandinu í lok næstu viku. Harðir bardagar geisa í austurhluta landsins þar sem Úkraínumenn er farið að skorta vopn. Erlent 11. júní 2022 19:21
Sagðir nota sextíu ára gamlar og ónákvæmar eldflaugar í Úkraínu Rússar hafa líklega skotið tugum áratuga gamalla eldflauga sem hannaðar voru til að bera kjarnorkuvopn og granda flugmóðurskipum á skotmörk í Úkraínu. Þær eru sagðar ónákvæmar og líklegar til að valda dauðsföllum meðal óbreyttra borgara. Erlent 11. júní 2022 11:22
Segir Rússa stefna að gjöreyðingu Donbas-héraðs Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa stefna að því að eyða öllum borgum í Donbas héraði. Erlent 11. júní 2022 09:20
Segir að Selenskí hafi ekki viljað hlusta í aðdraganda innrásarinnar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna segir að Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, hafi ekki viljað hlusta á aðvaranir um að Rússar væru að safna liði í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 11. júní 2022 08:14
Úkraínumenn segja skotfærin brátt á þrotum og setja traust sitt á Vesturlönd Yfirmaður í úkraínska hernum segir að framganga Úkraínumanna í stríðinu sé algjörlega háð því hvað Vesturlöndin láti þeim í té. Hann útilokar ekki að Rússar geri hlé á stríðinu til að reyna að sannfæra Vesturlönd um að slaka á viðskiptaþvingunum. Erlent 11. júní 2022 00:00
Vaktin: Segir Rússa hvorki hafa vilja né getu til að ráðast gegn Finnum og Svíum Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir rússnesk stjórnvöld ekki munu láta það gerast að „járntjald“ falli á efnahagslíf landsins líkt og þegar Sovétríkin voru og hétu. Þau mistök verða ekki endurtekin, segir hann. Erlent 10. júní 2022 07:59
Hækka stýrivexti í fyrsta sinn í ellefu ár Evrópski seðlabankinn hyggst færa stýrivexti sína upp um 0,25 prósentustig í júlí sem verður fyrsta hækkunin í ellefu ár. Þá boðar seðlabankinn aðra hækkun í september sem gæti reynst umfangsmeiri ef ekki tekst að koma böndum á verðbólguna. Viðskipti erlent 9. júní 2022 21:17
Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskrar fjölskyldu Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskar fjölskyldu sem var föst í hrikalegum aðstæðum í Maríupól í rúman mánuð, en er nú komin til Íslands. Innlent 9. júní 2022 08:00
Stefni á að innlima fjögur héruð í Úkraínu Orrustan um Severodonetsk er sú erfiðasta sem Úkraínumenn hafa háð frá því að innrás Rússa hófst og mun ráða örlögum Donbas, segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti. Rússar virðast nálægt því að ná Severodonetsk á sitt vald en ríkisstjóri Luhansk héraðs segir hersveitir Úkraínu myndu getað „hreinsað“ borgina á nokkrum dögum með langdrægum vopnum frá Vesturlöndum. Erlent 9. júní 2022 07:54
Varnarmálaráðherrar í Reykjavík: Samstíga um að Úkraína verði að vinna stríðið Varnarmálaráðherrar norður Evrópu sögðu á fundi í Reykjavík í dag algera samstöðu ríkja um að Putin verði að tapa stríðinu í Úkraínu. Varnarmálaráðherra Lettlands segir vestræna leiðtoga ekki eiga að velta fyrir sér hvernig Putin líði og undirbúa sig fyrir langt stríð. Erlent 8. júní 2022 19:27
Vesturlönd eiga ekki að hafa áhyggjur af líðan Putins Artis Pabriks varnarmálaráðherra Lettlands fer í engar grafgötur með að Vesturlönd eigi að bregðast af hörku við innrás Rússa í Úkraínu og varast undirróður hans sem miði að því að afvegaleiða Vesturlönd til málamiðlana. Erlent 8. júní 2022 16:59
Ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn var opnuð á Aflagranda Í gær var ný miðstöð fyrir úkraínska flóttamenn opnuð á Aflagranda. Húsnæðið sem starfsemin var áður í er sprungið utan af starfseminni. Um 300 manns komu saman í nýja húsnæðinu í kvöld. Innlent 8. júní 2022 08:00
Vaktin: Stríðið kosti Rússa 300 hermenn á dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir í viðtali við Financial Times að pattstaða í stríðinu við Rússa sé ekki valkostur og að Úkraína verði að hafa sigur á vígvellinum. Hann segir skort á vopnum hamla gagnsókn Úkraínuhers. Erlent 8. júní 2022 07:07
Vaktin: Segja sex hundruð Úkraínumenn í „pyndingarklefum“ í Kherson Vassily Nebenzia, sendifulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, gekk út af fundi öryggisráðsins í gær þegar forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sakaði Rússa um að nota matvælabirgðir sem „leyniflaugar“ gegn þróunarríkjum heims. Erlent 7. júní 2022 06:47
Úkraína stendur í þakkarskuld við Wales Oleksandr Petrakov, þjálfari úkraínska landsliðsins, bað þjóð sína afsökunar og segir Úkraínumenn standa í þakkarskuld við Wales á tilfinningaþrungnum fréttamannafundi eftir 1-0 tap Úkraínu í Wales í gær. Fótbolti 6. júní 2022 23:31
Enn einn rússneskur herforingi felldur Roman Kutuzov, rússneskur undirhershöfðingi, er sagður hafa verið felldur í árás á Donbas sem hann fór fyrir frá Donetsk-héraði. Rússneskir ríkismiðlar greina frá falli herforingjans og úkraínski herinn hefur einnig staðfest fall hans. Erlent 6. júní 2022 12:44
Selenskí að vígstöðvunum á meðan harðir bardagar geisa Harðir bardagar geisa nú við borgina Severodonetsk í austurhluta Úkraínu. Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti hermenn á austurvígstöðvunum til að stappa í þá stálinu í gær. Erlent 6. júní 2022 09:16
Lavrov kemst ekki til Serbíu eftir að nágrannaríkin lokuðu lofthelgi sinni Fyrirhugaðri ferð Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, til Serbíu hefur verið aflýst eftir að nágrannaríki Serbíu bönnuðu flugvél hans að ferðast um lofthelgi sína. Erlent 5. júní 2022 23:11
Pútín hótar Vesturlöndum með nýjum skotmörkum Vladimir Pútín Rússlandsforesti hótar að Rússir geri árásir á ný skotmörk innan Úkraínu ef Bandaríkin útvega Úkraínu langdrægar eldflaugar, segir í ríkismiðli Rússlands. Erlent 5. júní 2022 13:24