Baugsmálið Geti ekki borið ábyrgð á Birni Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að framsóknarmenn geti ekki borið ábyrgð á Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Forsaga málsins sé sú að Björn Bjarnason hafi gefið saksóknaraembættinu þá línu á bloggsíðu sinni í dag að halda áfram með Baugsmálið þó að aðeins standi eftir átta af 40 ákæruliðum í Baugsmálinu. „Framsóknarflokkurinn á ekki að líða mönnum að gera svona,“ sagði Kristinn í Íslandi í bítið í morgun. Innlent 23.10.2005 15:03 Tekur ábyrgð á dómsmálaráðherra Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist fyllilega taka ábyrgð á dómsmálaráðherra þrátt fyrir ummæli hans á heimasíðu um að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í Baugsmálinu. Þetta kom fram á fundi sem forsætisráðherra hélt með blaðamönnum efti hádegið í dag. Innlent 23.10.2005 15:03 Bera ekki ábyrgð á ráðherra Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flokkurinn geti ekki borið ábyrgð á dómsmálaráðherra, sem tjái sig með þeim hætti sem Björn Bjarnason gerir á heimasíðu sinni um niðurstöður Hæstaréttar í Baugsmálinu. En þar segir Björn að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta orð í málinu. Innlent 23.10.2005 15:03 Blanda saman fjárdrætti og lánum „Þessi dómur hæstaréttar er mjög harðorður og hlýtur að vekja ýmsar spurningar,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. „Mér þykir það sérkennilegt þegar ég les það að menn blandi saman fjárdrætti og ólöglegum lánum. Í mínum huga er himinn og haf milli þarna á milli,“ segir Halldór. Innlent 23.10.2005 15:03 Ekki ástæða til afsagna Ríkislögreglustjóri telur ekki ástæðu til að yfirmenn hjá embættinu segi af sér vegna Baugsmálsins, en segist þó hafa íhugað það. Þeir átta ákæruliðir sem eftir standa eftir dóm Hæstaréttar snúast um efnahagsreikninga og tollsvik sem nema rúmlega tveimur milljónum króna. Innlent 23.10.2005 15:03 Krafan þingfest í næstu viku Lögbannskrafa á tölvupóst tengdan Jónínu Benediktsdóttur, sem <em>Fréttablaðið</em> birti brot úr, verður að öllum líkindum þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Þó sé hins vegar óljóst hvenær málið verður tekið til meðferðar þar sem lögmenn Fréttablaðsins geta beðið um frest til að leggja fram greinargerð. Innlent 23.10.2005 15:02 Lögbannið ógnun við blaðamenn Alþjóðasamtök blaðamanna sendu í gær frá sér viðvörun til íslenskra yfirvalda þar sem segir að frelsi fjölmiðla geti verið stefnt í hættu með afskiptum yfirvalda af fjölmiðlum. Lögbann og innrás á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins sé ógnun við blaðamenn og tilraun til að stöðva umfjöllun um mikilvægt þjóðfélagslegt mál. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 15:02 Afskipti lykilmanna umhugsunarverð Valgerður Sverrisdóttir segir að lykilmenn í Sjálfstæðisflokknum hafi tengst aðdraganda Baugsmálsins. Ummæli Styrmis Gunnarssonar um skattayfirvöld hafi ekki komið á óvart því hann aðhyllist pólitísk afskipti af eftirlitsstofnunum. Innlent 23.10.2005 15:02 Brýtur Styrmir eigin reglur? Össur Skarphéðinsson, þingmaður, sakar ritstjóra Morgunblaðsins, Styrmi Gunnarsson, um að brjóta eigin reglur þegar kemur að birtingu á upplýsingum úr einkabréfum fólks. Þingmaðurinn kallar eftir skýringum. Össur Skarphéðinsson þingmaður var gestur í þættinum Silfur Egils sem hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð2 í dag, þar sem talið barst að tölvupóstsendingum og fjölmiðlum. Innlent 23.10.2005 15:01 Greinir á Lögmenn 365 miðla og Jónínu Benediktsdóttur greinir verulega á um það hvort lögbann, sem sýslumaður setti á gögn í fórum blaðamanna Fréttablaðsins, hafi verið lögmætt. Lögmaður Jónínu Benediktsdóttur telur að lögbannið sé fyllilega eðlilegt. Innlent 23.10.2005 15:01 Yfirvöld á hættulegri braut Fræðimenn eru sammála um að mjög ríkar ástæður verði að búa að baki lögbanni á birtingu upplýsinga sem fjölmiðlar búa yfir. Lektor við Háskólann á Akureyri segir yfirvöld á hættulegri braut í málinu. Innlent 23.10.2005 15:01 Tilraun til yfirklórs "Mér finnst þetta vera tilraun til yfirklórs," segir Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður, um skýringar Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, á birtingu blaðsins á tölvupósti sínum í maí árið 1998. Styrmir sér ekkert athugavert við birtingu póstsins frá Gunnlaugi. Innlent 23.10.2005 15:01 Ekki hægt að sjá hver sendi gögn Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri <em>Fréttablaðsins</em>, segir ekki hægt að sjá af tölvupóstum, sem fulltrúar Sýslumannsins í Reykjavík lögðu hald á í hádeginu, hver hefði látið <em>Fréttablaðið</em> hafa þá. Ef svo væri hefði blaðið eytt þeim frekar en að afhenda þá segir Sigurjón. Tölvupóstarnir sem um ræðir eru þeir sem <em>Fréttablaðið</em> hefur byggt fréttir sínar af aðdraganda Baugsrannsóknarinnar á. Innlent 23.10.2005 15:01 Tjáningarfrelsi eða persónuvernd? Sýslumaðurinn í Reykjavík fór inn á skrifstofu Fréttablaðins í dag og lagði hald á tölvupóst Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hafði undir höndum.Lagt var bann við birtingu úr bréfunum að kröfu Jónínu. Dómstólar þurfa nú að kveða upp úr um hvort sé mikilvægara, tjáningarfrelsi fjölmiðla eða persónuvernd. Innlent 23.10.2005 16:58 Fulltrúar sýslumanns á Fréttablaði Fulltrúar frá Sýslumanninum í Reykjavík komu á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins skömmu fyrir hádegi og lögðu fram lögbann á birtingu gagna að beiðni Jónínu Benediktsdóttur. Lagt var hald á birt og óbirt gögn í tengslum við fréttir blaðsins af samskiptum Jónínu Benediktsdóttur við Styrmi Gunnarsson og fleiri í tenglum við málareksturinn gegn Baugi. Innlent 23.10.2005 15:01 BÍ mótmælir aðgerð sýslumannsins Stjórn Blaðamannafélags Íslands mótmælir þeirri aðgerð sýslumannsins í Reykjavík að krefja blaðamenn á <em>Fréttablaðinu</em> um gögn sem sýslumaður telur þá hafa undir höndum. Eins og greint var frá fyrr í dag komu fulltrúar sýslumanns á ritstjórn Fréttablaðsins rétt fyrir hádegi með lögbannsúrskurð á frekari birtingu upplýsinga úr nafnlausum tölvupóstum. Innlent 23.10.2005 16:58 Valgerður þingaði með Jónínu Ben. Jónína Benediktsdóttir átti fund um Jón Gerald og Baug með ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, Valgerði Sverrisdóttur, þremur vikum áður en Davíð Oddsson fundaði með Hreini Loftssyni, stjórnarformann Baugs, í London. Valgerður segist ekki hafa rætt þennan fund efnislega við nokkurn ráðherra. Innlent 23.10.2005 15:00 Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:00 Morgunblaðið birti einkapósta Einkatölvupóstar Össurar Skarphéðinssonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síðum Morgunblaðsins. Blaðið birti jafnframt bréfaskipti Norðurljósa og Landsbankans vegna fjárhagsstöðu Norðurljósa. Ritstjóri Morgunblaðsins hefur undanfarið gagnrýnt Fréttablaðið fyrir að birta tölvupósta manna. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 15:00 Fimm dómarar í Baugsmáli Hæstiréttur hefur þegar hafið skoðun á því hvort frávísun héraðsdóms í Baugsmálinu svokallaða sé réttmæt. Forseti Hæstaréttar hefur ákveðið að fimm dómarar muni dæma í kærumálinu varðandi ákvörðun héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá öllum fjörutíu ákæruliðum í Baugsmálinu svokallaða. Innlent 23.10.2005 15:00 Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00 Bregðist við fréttum Fréttablaðs Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta <em>Fréttablaðsins</em> sem byggja á tölvupóstum sem það hefur komist yfir. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Sturla segir í bréfi sem hann hefur ritað stofnuninni að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóti ríkrar verndar í stjórnarskrá og fjarskiptalögum. Innlent 23.10.2005 15:00 Hreinn vísar ummælum Styrmis á bug Baugur ætlar að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gjörðum Styrmis Gunnarssonar, Jónínu Benediktsdóttur, Jóns Geralds Sullenbergers, Jóns Steinars Gunnlaugssonar og Kjartans Gunnarssonar. Þá er félagið að meta réttarstöðu sína hvað varðar meiðyrði í þess garð. Innlent 23.10.2005 15:00 Enn ekki skipað í Hæstaréttardóm Enn hefur dómurinn sem fjalla mun um Baugsmálið í Hæstarétti ekki verið skipaður, en það verður gert á allra næstu dögum, að sögn skrifstofustjóra Hæstaréttar. Það er forseti Hæstaréttar, Markús Sigurbjörnsson, sem ákveður hversu fjölmennur dómurinn skuli vera og hverjir skipi hann. Innlent 23.10.2005 15:00 Þurfti ekki aðstoð Morgunblaðsins Jón Gerald Sullenberger segist hafa haft efni á því að greiða fyrir þýðingu á skjali sem Morgunblaðið þýddi fyrir hann ókeypis. Hann hafi ekki þurft á fjárhagslegri aðstoð Morgunblaðsins að halda. Innlent 23.10.2005 15:00 Dægurtexti í meintu hótunarbréfi Tryggvi Jónsson, þá forstjóri Baugs, vitnar í vinsælan dægurlagatexta Spilverks þjóðanna í meintu hótunarbréfi til Jóns Geralds Sullenbergers sem vísað er til í frétt Morgunblaðsins í gær. Bréfið var sent í tölvupósti 25. júlí 2002 og lagði Jón Gerald það fram í málaferlum við fyrirtækið í Bandaríkjunum árið 2003. Innlent 23.10.2005 15:00 Segir fjölmiðla Baugs misnotaða Davíð Oddsson segist horfa á með hryllingi hvernig Baugsmiðlarnir hafi verið misnotaðir, en hann telji að ekki séu dæmi um slíkt í hinum vestræna heimi. Davíð var spurður út í Baugsmál þegar hann kom út af síðasta ríkisstjórnarfundi sínum í morgun. Innlent 23.10.2005 14:59 Spyr hvort eignatengsl réðu ferð Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, harðlega fyrir að hafa látið hjá líða að fjalla um samráð olíufélaganna þegar hann fékk upplýsingar um það nokkru áður en rannsókn Samkeppnisstofnunar hófst. Innlent 23.10.2005 16:58 Undrandi og hneykslaður "Ég er bæði undrandi og hneykslaður á mörgu því sem hefur komið fram síðustu daga," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um framvindu Baugsmálsins og fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. Innlent 23.10.2005 15:00 Hafi greitt Jóni 120 milljónir Forráðamenn Baugs greiddu Jóni Gerald Sullenberger 120 milljónir króna til þess að losna út úr málaferlum sem þeir sjálfir höfðu efnt til í Bandaríkjunum gegn Jóni að því er Styrmir Gunnarsson, ritstjóri <em>Morgunblaðsins</em>, upplýsir í grein um málið i blaðinu í dag. Innlent 23.10.2005 14:59 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 9 ›
Geti ekki borið ábyrgð á Birni Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að framsóknarmenn geti ekki borið ábyrgð á Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Forsaga málsins sé sú að Björn Bjarnason hafi gefið saksóknaraembættinu þá línu á bloggsíðu sinni í dag að halda áfram með Baugsmálið þó að aðeins standi eftir átta af 40 ákæruliðum í Baugsmálinu. „Framsóknarflokkurinn á ekki að líða mönnum að gera svona,“ sagði Kristinn í Íslandi í bítið í morgun. Innlent 23.10.2005 15:03
Tekur ábyrgð á dómsmálaráðherra Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist fyllilega taka ábyrgð á dómsmálaráðherra þrátt fyrir ummæli hans á heimasíðu um að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í Baugsmálinu. Þetta kom fram á fundi sem forsætisráðherra hélt með blaðamönnum efti hádegið í dag. Innlent 23.10.2005 15:03
Bera ekki ábyrgð á ráðherra Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flokkurinn geti ekki borið ábyrgð á dómsmálaráðherra, sem tjái sig með þeim hætti sem Björn Bjarnason gerir á heimasíðu sinni um niðurstöður Hæstaréttar í Baugsmálinu. En þar segir Björn að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta orð í málinu. Innlent 23.10.2005 15:03
Blanda saman fjárdrætti og lánum „Þessi dómur hæstaréttar er mjög harðorður og hlýtur að vekja ýmsar spurningar,“ segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. „Mér þykir það sérkennilegt þegar ég les það að menn blandi saman fjárdrætti og ólöglegum lánum. Í mínum huga er himinn og haf milli þarna á milli,“ segir Halldór. Innlent 23.10.2005 15:03
Ekki ástæða til afsagna Ríkislögreglustjóri telur ekki ástæðu til að yfirmenn hjá embættinu segi af sér vegna Baugsmálsins, en segist þó hafa íhugað það. Þeir átta ákæruliðir sem eftir standa eftir dóm Hæstaréttar snúast um efnahagsreikninga og tollsvik sem nema rúmlega tveimur milljónum króna. Innlent 23.10.2005 15:03
Krafan þingfest í næstu viku Lögbannskrafa á tölvupóst tengdan Jónínu Benediktsdóttur, sem <em>Fréttablaðið</em> birti brot úr, verður að öllum líkindum þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Þó sé hins vegar óljóst hvenær málið verður tekið til meðferðar þar sem lögmenn Fréttablaðsins geta beðið um frest til að leggja fram greinargerð. Innlent 23.10.2005 15:02
Lögbannið ógnun við blaðamenn Alþjóðasamtök blaðamanna sendu í gær frá sér viðvörun til íslenskra yfirvalda þar sem segir að frelsi fjölmiðla geti verið stefnt í hættu með afskiptum yfirvalda af fjölmiðlum. Lögbann og innrás á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins sé ógnun við blaðamenn og tilraun til að stöðva umfjöllun um mikilvægt þjóðfélagslegt mál. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 15:02
Afskipti lykilmanna umhugsunarverð Valgerður Sverrisdóttir segir að lykilmenn í Sjálfstæðisflokknum hafi tengst aðdraganda Baugsmálsins. Ummæli Styrmis Gunnarssonar um skattayfirvöld hafi ekki komið á óvart því hann aðhyllist pólitísk afskipti af eftirlitsstofnunum. Innlent 23.10.2005 15:02
Brýtur Styrmir eigin reglur? Össur Skarphéðinsson, þingmaður, sakar ritstjóra Morgunblaðsins, Styrmi Gunnarsson, um að brjóta eigin reglur þegar kemur að birtingu á upplýsingum úr einkabréfum fólks. Þingmaðurinn kallar eftir skýringum. Össur Skarphéðinsson þingmaður var gestur í þættinum Silfur Egils sem hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð2 í dag, þar sem talið barst að tölvupóstsendingum og fjölmiðlum. Innlent 23.10.2005 15:01
Greinir á Lögmenn 365 miðla og Jónínu Benediktsdóttur greinir verulega á um það hvort lögbann, sem sýslumaður setti á gögn í fórum blaðamanna Fréttablaðsins, hafi verið lögmætt. Lögmaður Jónínu Benediktsdóttur telur að lögbannið sé fyllilega eðlilegt. Innlent 23.10.2005 15:01
Yfirvöld á hættulegri braut Fræðimenn eru sammála um að mjög ríkar ástæður verði að búa að baki lögbanni á birtingu upplýsinga sem fjölmiðlar búa yfir. Lektor við Háskólann á Akureyri segir yfirvöld á hættulegri braut í málinu. Innlent 23.10.2005 15:01
Tilraun til yfirklórs "Mér finnst þetta vera tilraun til yfirklórs," segir Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi þingmaður, um skýringar Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, á birtingu blaðsins á tölvupósti sínum í maí árið 1998. Styrmir sér ekkert athugavert við birtingu póstsins frá Gunnlaugi. Innlent 23.10.2005 15:01
Ekki hægt að sjá hver sendi gögn Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri <em>Fréttablaðsins</em>, segir ekki hægt að sjá af tölvupóstum, sem fulltrúar Sýslumannsins í Reykjavík lögðu hald á í hádeginu, hver hefði látið <em>Fréttablaðið</em> hafa þá. Ef svo væri hefði blaðið eytt þeim frekar en að afhenda þá segir Sigurjón. Tölvupóstarnir sem um ræðir eru þeir sem <em>Fréttablaðið</em> hefur byggt fréttir sínar af aðdraganda Baugsrannsóknarinnar á. Innlent 23.10.2005 15:01
Tjáningarfrelsi eða persónuvernd? Sýslumaðurinn í Reykjavík fór inn á skrifstofu Fréttablaðins í dag og lagði hald á tölvupóst Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hafði undir höndum.Lagt var bann við birtingu úr bréfunum að kröfu Jónínu. Dómstólar þurfa nú að kveða upp úr um hvort sé mikilvægara, tjáningarfrelsi fjölmiðla eða persónuvernd. Innlent 23.10.2005 16:58
Fulltrúar sýslumanns á Fréttablaði Fulltrúar frá Sýslumanninum í Reykjavík komu á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins skömmu fyrir hádegi og lögðu fram lögbann á birtingu gagna að beiðni Jónínu Benediktsdóttur. Lagt var hald á birt og óbirt gögn í tengslum við fréttir blaðsins af samskiptum Jónínu Benediktsdóttur við Styrmi Gunnarsson og fleiri í tenglum við málareksturinn gegn Baugi. Innlent 23.10.2005 15:01
BÍ mótmælir aðgerð sýslumannsins Stjórn Blaðamannafélags Íslands mótmælir þeirri aðgerð sýslumannsins í Reykjavík að krefja blaðamenn á <em>Fréttablaðinu</em> um gögn sem sýslumaður telur þá hafa undir höndum. Eins og greint var frá fyrr í dag komu fulltrúar sýslumanns á ritstjórn Fréttablaðsins rétt fyrir hádegi með lögbannsúrskurð á frekari birtingu upplýsinga úr nafnlausum tölvupóstum. Innlent 23.10.2005 16:58
Valgerður þingaði með Jónínu Ben. Jónína Benediktsdóttir átti fund um Jón Gerald og Baug með ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, Valgerði Sverrisdóttur, þremur vikum áður en Davíð Oddsson fundaði með Hreini Loftssyni, stjórnarformann Baugs, í London. Valgerður segist ekki hafa rætt þennan fund efnislega við nokkurn ráðherra. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugsmál: Búið að skipa dómara Fimm dómarar munu fjalla um Baugsmálið þegar frávísun Héraðsdóms í málinu verður tekin fyrir í Hæstarétti. Dómararnir eru Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir. Innlent 23.10.2005 15:00
Morgunblaðið birti einkapósta Einkatölvupóstar Össurar Skarphéðinssonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síðum Morgunblaðsins. Blaðið birti jafnframt bréfaskipti Norðurljósa og Landsbankans vegna fjárhagsstöðu Norðurljósa. Ritstjóri Morgunblaðsins hefur undanfarið gagnrýnt Fréttablaðið fyrir að birta tölvupósta manna. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 15:00
Fimm dómarar í Baugsmáli Hæstiréttur hefur þegar hafið skoðun á því hvort frávísun héraðsdóms í Baugsmálinu svokallaða sé réttmæt. Forseti Hæstaréttar hefur ákveðið að fimm dómarar muni dæma í kærumálinu varðandi ákvörðun héraðsdóms Reykjavíkur að vísa frá öllum fjörutíu ákæruliðum í Baugsmálinu svokallaða. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugur undirbýr skaðabótamál Stjórnendur Baugs Group undirbúa skaðabótamál og ætla að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gerðum fimm einstaklinga vegna aðdraganda Baugsmálsins. Þetta eru þau Styrmir Gunnarsson, Jónína Benediktsdóttir, Jón Gerald Sullenberger, Jón Steinar Gunnlaugsson og Kjartan Gunnarsson. Innlent 23.10.2005 15:00
Bregðist við fréttum Fréttablaðs Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta <em>Fréttablaðsins</em> sem byggja á tölvupóstum sem það hefur komist yfir. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Sturla segir í bréfi sem hann hefur ritað stofnuninni að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóti ríkrar verndar í stjórnarskrá og fjarskiptalögum. Innlent 23.10.2005 15:00
Hreinn vísar ummælum Styrmis á bug Baugur ætlar að kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gjörðum Styrmis Gunnarssonar, Jónínu Benediktsdóttur, Jóns Geralds Sullenbergers, Jóns Steinars Gunnlaugssonar og Kjartans Gunnarssonar. Þá er félagið að meta réttarstöðu sína hvað varðar meiðyrði í þess garð. Innlent 23.10.2005 15:00
Enn ekki skipað í Hæstaréttardóm Enn hefur dómurinn sem fjalla mun um Baugsmálið í Hæstarétti ekki verið skipaður, en það verður gert á allra næstu dögum, að sögn skrifstofustjóra Hæstaréttar. Það er forseti Hæstaréttar, Markús Sigurbjörnsson, sem ákveður hversu fjölmennur dómurinn skuli vera og hverjir skipi hann. Innlent 23.10.2005 15:00
Þurfti ekki aðstoð Morgunblaðsins Jón Gerald Sullenberger segist hafa haft efni á því að greiða fyrir þýðingu á skjali sem Morgunblaðið þýddi fyrir hann ókeypis. Hann hafi ekki þurft á fjárhagslegri aðstoð Morgunblaðsins að halda. Innlent 23.10.2005 15:00
Dægurtexti í meintu hótunarbréfi Tryggvi Jónsson, þá forstjóri Baugs, vitnar í vinsælan dægurlagatexta Spilverks þjóðanna í meintu hótunarbréfi til Jóns Geralds Sullenbergers sem vísað er til í frétt Morgunblaðsins í gær. Bréfið var sent í tölvupósti 25. júlí 2002 og lagði Jón Gerald það fram í málaferlum við fyrirtækið í Bandaríkjunum árið 2003. Innlent 23.10.2005 15:00
Segir fjölmiðla Baugs misnotaða Davíð Oddsson segist horfa á með hryllingi hvernig Baugsmiðlarnir hafi verið misnotaðir, en hann telji að ekki séu dæmi um slíkt í hinum vestræna heimi. Davíð var spurður út í Baugsmál þegar hann kom út af síðasta ríkisstjórnarfundi sínum í morgun. Innlent 23.10.2005 14:59
Spyr hvort eignatengsl réðu ferð Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, harðlega fyrir að hafa látið hjá líða að fjalla um samráð olíufélaganna þegar hann fékk upplýsingar um það nokkru áður en rannsókn Samkeppnisstofnunar hófst. Innlent 23.10.2005 16:58
Undrandi og hneykslaður "Ég er bæði undrandi og hneykslaður á mörgu því sem hefur komið fram síðustu daga," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um framvindu Baugsmálsins og fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. Innlent 23.10.2005 15:00
Hafi greitt Jóni 120 milljónir Forráðamenn Baugs greiddu Jóni Gerald Sullenberger 120 milljónir króna til þess að losna út úr málaferlum sem þeir sjálfir höfðu efnt til í Bandaríkjunum gegn Jóni að því er Styrmir Gunnarsson, ritstjóri <em>Morgunblaðsins</em>, upplýsir í grein um málið i blaðinu í dag. Innlent 23.10.2005 14:59