Ástin á götunni Ballack þarf að ákveða sig Uli Hönnes, knattspyrnustjóri Bayern Munchen, hefur gefið miðjumanni sínum Michael Ballack rúman einn mánuð til að ákveða hvort framtíð sín liggi hjá félaginu eða annarsstaðar. Sport 13.10.2005 19:44 Wenger æfur út af Arsene Wenger skammaði sína menn eftir tapið gegn Chelsea í gær og í fjölmiðlum sagðist hann hafa vitað að úrslit leiksins réðust á mistökum, eins og kom á daginn þegar Drogba skoraði með sköflungnum fram hjá Jens Lehmann. Sport 13.10.2005 19:44 Óttast um meiðsli Ljungberg Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist hafa nokkrar áhyggjur af hnémeiðslum Svíans Freddie Ljungberg, sem hann hlaut í leiknum gegn Chelsea í gær. Sport 13.10.2005 19:44 Rúrik aftur til Charlton Rúrík Gíslason, leikmaður fyrstu deildarliðs HK fór í gær til reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Charlton Athletic í annað skipti. Hann mun æfa með aðalliði félagsins en fyrir hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður. Rúrik, 17 ára hefur leikið 11 deildaleiki í framlínu HK en á þó enn eftir að gera mark. Sport 13.10.2005 19:44 Tilboð Aston Villa samþykkt Tilboði Aston Villa uppá 6.5 milljónir punda í tékkneska framherja Liverpool, Milan Baros hefur verið samþykkt og samkvæmt nýjustu fréttum hefur leikmaðurinn samið um kaup og kjör og á eingöngu eftir að standast í læknisskoðun. Sport 13.10.2005 19:44 Jarosik til Birmingham Tékkneski landsliðsmaðurinn Jiri Jarosik er genginn til liðs við Birmingham að láni frá Englandsmeisturum Chelsea. Jarosik, 27 ára, lék 20 leiki fyrir Chelsea á síðasta leiktímabili. Sport 13.10.2005 19:44 Vonbrigði í Ungverjalandi Eftir tvo sigra á Chile og Kongó í upphafi heimsmeistaramóts U-21 landsliða í Ungverjalandi hafa allir þrír leikir Íslands gegn stærri þjóðum tapast, nú síðast gegn Egyptum í gær, 30-25. Sport 13.10.2005 19:44 Beckham hrósað í hástert Hæstráðendur hjá spænska stórliðinu Real Madrid eru mjög ósáttir við leikmenn liðsins að David Beckham undanskildnum. " Leikmenn félagsins verða að læra að vera fulltrúar klúbbsins líkt og Beckham," sagði fjölmiðlafulltrúi félagsins. Sport 13.10.2005 19:44 Auðveldur sigur á Hvít-Rússum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann auðveldan 3-0 sigur á Hvít-Rússum á Laugardalsvelli í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM2007. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvívegis í dag og Margét Lára Viðarsdóttir eitt. Næsti leikur Íslands verður á sunnudaginn gegn Svíum ytra en þær eru taldar vera með sterkasta liðið í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43 Breiðablik og KS skildu jöfn Einn leikur var í gær í 1. deild karla í knattspyrnu. Breiðablik og KS gerðu 1-1 jafntefli. Hans Fróði Hansson skoraði mark Breiðabliks í fyrri hálfleik en Agnar Þór Sveinsson, fyrirliði KS, jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Breiðablik er með 39 stig í fyrsta sæti en KS er í tíunda og neðsta sæti með 12 stig. Sport 13.10.2005 19:43 Chelsea hafði sigur gegn Arsenal Chelsea vann Arsenal 1-0 í stórleik annarrar umferðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og skoraði Didier Drogba sigurmarkið á 73. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt út af á 59. mínútu fyrir nýliðann Michael Essien sem þótti sýna mjög góðan leik. Sport 13.10.2005 19:43 Lyon efst í Frakklandi Olympique Lyon hefur forystu í frönsku 1. deildinni eftir 1-0 sigur á Nancy í gærkvöldi. Claudio Cacapa skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lyon er með 10 stig eftir fjórar umferðir en Lens, Bordeaux og Paris St. Germain eru með 9 stig. Parísarmenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og mæta Troyes í kvöld og geta þá endurheimt fyrsta sætið. Sport 13.10.2005 19:43 Mörkunum rignir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir var að koma Íslandi í 3-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli, aðeins 2 mínútum efir mark Margrétar Láru. Dóra er þar með búin að skora tvívegis í leiknum. Yfirburðir Íslands eru algerir og ráða stelpurnar auðveldlega gangi leiksins. Sport 13.10.2005 19:43 Margét Lára kemur Íslandi í 2-0 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi í 2-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli. Markið sem kom á 56. mínútu var einstaklega gæsilegt og er tólfta mark Margrétar í 16 leikjum með landsliðinu. Sport 13.10.2005 19:43 Inter meistari meistaranna Internazionale í Mílano sigraði Juventus í framlengdum leik í ítölsku meistarakeppninni. Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skoraði sigurmarkið á 6. mínútu í framlengingu. Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:43 Drogba kemur Chelsea yfir Didier Drogba hefur komið Chelsea yfir gegn Arsenal í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið kom á 73. mínútu og var þó nokkur heppnisstimpill yfir því. Sport 13.10.2005 19:43 Ajax lagði Roosendaal Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar, sem lék með landsliði sínu gegn Íslendingum á Laugardalsvelli á miðvikudag, skoraði fyrra mark Ajax sem sigraði Roosendaal 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Svíinn Markus Roosenberg skoraði seinna markið. Þetta var fyrsti leikur Ajax í deildinni Sport 13.10.2005 19:43 Everton lagði Bolton Marcus Bent tryggði Everton 0-1 útisigur á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði hann á 52. mínútu og dugði Everton til að næla í sín fyrstu stig í deildinni á tímabilinu en liðið er með 3 stig eftir tvo leiki. Kl. 15:00 hefst stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge í London. Sport 13.10.2005 19:43 Barcelona vann Konungsbikarinn Real Betis sigraði Barcelona með tveimur mörkum gegn einu í seinni leik liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og því 4-2 samtals. Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið á 15. mínútu en Dani skoraði síðan tvívegis á fimm mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Sport 13.10.2005 19:43 Byrjunarliðið gegn Hvít-Rússum Nú klukkan 14 hófst á Laugardalsvelli leikur Íslands og Hvíta Rússlands í undankeppni HM 2007 í knattspyrnu kvenna og hefur Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið Íslands en Ásthildur Helgadóttir er snúin til baka eftir erfið meiðsli og er hún fyrirliði liðsins í dag. Sport 13.10.2005 19:43 Carvalho skilinn eftir í stúkunni Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho var skilinn útundan og ekki hafður í 16 manna leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho knattspyrnustjóri er ekki þekktur fyrir að taka hlutina neinum vettlingatökum og notaði tækifærið í dag og útskyrði fjarveru varnarmannsins í ræðu sinni fyrir leikinn í dag. Sport 13.10.2005 19:43 Eiður byrjar inni á gegn Arsenal Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:43 Eiður út fyrir Essien Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið skipt af velli fyrir nýliðann Michael Essien í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Essien sem kom frá Lyon á 26 milljónir punda er að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið og var skipt inn fyrir Eið á 59. mínútu. Staðan í leinum sem hófst kl. 15 er ennþá markalaus. Sport 13.10.2005 19:43 Kári kom inn á hjá Djurgården Kári Árnason lék síðustu 8 mínúturnar í liði Djurgården sem endurheimti toppsætið með sigri á Kalmar, 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad sem steinlá fyrir Gefle, 1-4. Sport 13.10.2005 19:43 Ísland komið yfir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir hefur komið Íslandi yfir gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 1-0. Mark Dóru kom á 31. mínútu eftir sendingu frá Ólínu Viðarsdóttur. Leikurinn hófst kl. 14:00 og hefur íslenska liðið verið með meiri yfirburði þó Hvít Rússarnir hafi átt skot í neðanverða þverslá íslenska marksins snemma í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43 Jói Kalli búinn að skora Jóhannes Karl Guðjónsson hefur skorað fyrir Leicester gegn Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta þar sem staðan er 2-2. Jóhannes skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 60. mínútu. Sport 13.10.2005 19:43 Heiðar kom inn á hjá Fulham Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Charlton sem sigraði nýliða Wigan 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Charlton hefur þar með unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni á tímabilinu. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður í liði Fulham sem tapaði 2-1 fyrir Blackburn. Sport 13.10.2005 19:43 Notts County gerði jafntefli Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 3. deildinni gerði 1-1 jafntefli við Stockport í dag. Mark County var sjálfsmark og kom strákunum hans Guðjóns yfir í leiknum á 14. mínútu en heimamenn jöfnuðu á 35. mínútu. Notts County er í 5. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir og hefur ekki enn tapaði leik. Sport 13.10.2005 19:43 Stjarnan á toppinn í 2. deild Stjarnan laumaði sér á topp 2. deildar karla í fótbolta í dag þegar Garðabæjarliðið sótti 3-5 útisigur til Seyðisfjarðar gegn Hugin. Stjarnan er nú komin í 30 stig með tveggja stiga forskot á Leikni sem reyndar á leik til góða gegn botnliði Leiftri/Dalvík í dag kl. 16. Sport 13.10.2005 19:43 Lundúnaslagur á Brúnni í dag Fyrsti risaslagur ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili fer fram í dag en þá mætast Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal. Liðin mættust fyrir tveimur vikum síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn en þá var það Didier Drogba sem stal senunni og skoraði bæði mörk Chelsea sem hrósaði sigri í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43 « ‹ 311 312 313 314 315 316 317 318 319 … 334 ›
Ballack þarf að ákveða sig Uli Hönnes, knattspyrnustjóri Bayern Munchen, hefur gefið miðjumanni sínum Michael Ballack rúman einn mánuð til að ákveða hvort framtíð sín liggi hjá félaginu eða annarsstaðar. Sport 13.10.2005 19:44
Wenger æfur út af Arsene Wenger skammaði sína menn eftir tapið gegn Chelsea í gær og í fjölmiðlum sagðist hann hafa vitað að úrslit leiksins réðust á mistökum, eins og kom á daginn þegar Drogba skoraði með sköflungnum fram hjá Jens Lehmann. Sport 13.10.2005 19:44
Óttast um meiðsli Ljungberg Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist hafa nokkrar áhyggjur af hnémeiðslum Svíans Freddie Ljungberg, sem hann hlaut í leiknum gegn Chelsea í gær. Sport 13.10.2005 19:44
Rúrik aftur til Charlton Rúrík Gíslason, leikmaður fyrstu deildarliðs HK fór í gær til reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Charlton Athletic í annað skipti. Hann mun æfa með aðalliði félagsins en fyrir hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður. Rúrik, 17 ára hefur leikið 11 deildaleiki í framlínu HK en á þó enn eftir að gera mark. Sport 13.10.2005 19:44
Tilboð Aston Villa samþykkt Tilboði Aston Villa uppá 6.5 milljónir punda í tékkneska framherja Liverpool, Milan Baros hefur verið samþykkt og samkvæmt nýjustu fréttum hefur leikmaðurinn samið um kaup og kjör og á eingöngu eftir að standast í læknisskoðun. Sport 13.10.2005 19:44
Jarosik til Birmingham Tékkneski landsliðsmaðurinn Jiri Jarosik er genginn til liðs við Birmingham að láni frá Englandsmeisturum Chelsea. Jarosik, 27 ára, lék 20 leiki fyrir Chelsea á síðasta leiktímabili. Sport 13.10.2005 19:44
Vonbrigði í Ungverjalandi Eftir tvo sigra á Chile og Kongó í upphafi heimsmeistaramóts U-21 landsliða í Ungverjalandi hafa allir þrír leikir Íslands gegn stærri þjóðum tapast, nú síðast gegn Egyptum í gær, 30-25. Sport 13.10.2005 19:44
Beckham hrósað í hástert Hæstráðendur hjá spænska stórliðinu Real Madrid eru mjög ósáttir við leikmenn liðsins að David Beckham undanskildnum. " Leikmenn félagsins verða að læra að vera fulltrúar klúbbsins líkt og Beckham," sagði fjölmiðlafulltrúi félagsins. Sport 13.10.2005 19:44
Auðveldur sigur á Hvít-Rússum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann auðveldan 3-0 sigur á Hvít-Rússum á Laugardalsvelli í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM2007. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvívegis í dag og Margét Lára Viðarsdóttir eitt. Næsti leikur Íslands verður á sunnudaginn gegn Svíum ytra en þær eru taldar vera með sterkasta liðið í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43
Breiðablik og KS skildu jöfn Einn leikur var í gær í 1. deild karla í knattspyrnu. Breiðablik og KS gerðu 1-1 jafntefli. Hans Fróði Hansson skoraði mark Breiðabliks í fyrri hálfleik en Agnar Þór Sveinsson, fyrirliði KS, jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Breiðablik er með 39 stig í fyrsta sæti en KS er í tíunda og neðsta sæti með 12 stig. Sport 13.10.2005 19:43
Chelsea hafði sigur gegn Arsenal Chelsea vann Arsenal 1-0 í stórleik annarrar umferðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og skoraði Didier Drogba sigurmarkið á 73. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt út af á 59. mínútu fyrir nýliðann Michael Essien sem þótti sýna mjög góðan leik. Sport 13.10.2005 19:43
Lyon efst í Frakklandi Olympique Lyon hefur forystu í frönsku 1. deildinni eftir 1-0 sigur á Nancy í gærkvöldi. Claudio Cacapa skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lyon er með 10 stig eftir fjórar umferðir en Lens, Bordeaux og Paris St. Germain eru með 9 stig. Parísarmenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og mæta Troyes í kvöld og geta þá endurheimt fyrsta sætið. Sport 13.10.2005 19:43
Mörkunum rignir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir var að koma Íslandi í 3-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli, aðeins 2 mínútum efir mark Margrétar Láru. Dóra er þar með búin að skora tvívegis í leiknum. Yfirburðir Íslands eru algerir og ráða stelpurnar auðveldlega gangi leiksins. Sport 13.10.2005 19:43
Margét Lára kemur Íslandi í 2-0 Margrét Lára Viðarsdóttir hefur komið Íslandi í 2-0 gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli. Markið sem kom á 56. mínútu var einstaklega gæsilegt og er tólfta mark Margrétar í 16 leikjum með landsliðinu. Sport 13.10.2005 19:43
Inter meistari meistaranna Internazionale í Mílano sigraði Juventus í framlengdum leik í ítölsku meistarakeppninni. Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron skoraði sigurmarkið á 6. mínútu í framlengingu. Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:43
Drogba kemur Chelsea yfir Didier Drogba hefur komið Chelsea yfir gegn Arsenal í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið kom á 73. mínútu og var þó nokkur heppnisstimpill yfir því. Sport 13.10.2005 19:43
Ajax lagði Roosendaal Suður-Afríkumaðurinn Steven Pienaar, sem lék með landsliði sínu gegn Íslendingum á Laugardalsvelli á miðvikudag, skoraði fyrra mark Ajax sem sigraði Roosendaal 2-0 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Svíinn Markus Roosenberg skoraði seinna markið. Þetta var fyrsti leikur Ajax í deildinni Sport 13.10.2005 19:43
Everton lagði Bolton Marcus Bent tryggði Everton 0-1 útisigur á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði hann á 52. mínútu og dugði Everton til að næla í sín fyrstu stig í deildinni á tímabilinu en liðið er með 3 stig eftir tvo leiki. Kl. 15:00 hefst stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge í London. Sport 13.10.2005 19:43
Barcelona vann Konungsbikarinn Real Betis sigraði Barcelona með tveimur mörkum gegn einu í seinni leik liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og því 4-2 samtals. Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið á 15. mínútu en Dani skoraði síðan tvívegis á fimm mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Sport 13.10.2005 19:43
Byrjunarliðið gegn Hvít-Rússum Nú klukkan 14 hófst á Laugardalsvelli leikur Íslands og Hvíta Rússlands í undankeppni HM 2007 í knattspyrnu kvenna og hefur Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið Íslands en Ásthildur Helgadóttir er snúin til baka eftir erfið meiðsli og er hún fyrirliði liðsins í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho skilinn eftir í stúkunni Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho var skilinn útundan og ekki hafður í 16 manna leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho knattspyrnustjóri er ekki þekktur fyrir að taka hlutina neinum vettlingatökum og notaði tækifærið í dag og útskyrði fjarveru varnarmannsins í ræðu sinni fyrir leikinn í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Eiður byrjar inni á gegn Arsenal Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:43
Eiður út fyrir Essien Eiði Smára Guðjohnsen hefur verið skipt af velli fyrir nýliðann Michael Essien í leik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Essien sem kom frá Lyon á 26 milljónir punda er að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið og var skipt inn fyrir Eið á 59. mínútu. Staðan í leinum sem hófst kl. 15 er ennþá markalaus. Sport 13.10.2005 19:43
Kári kom inn á hjá Djurgården Kári Árnason lék síðustu 8 mínúturnar í liði Djurgården sem endurheimti toppsætið með sigri á Kalmar, 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta nú síðdegis. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad sem steinlá fyrir Gefle, 1-4. Sport 13.10.2005 19:43
Ísland komið yfir í Laugardalnum Dóra María Lárusdóttir hefur komið Íslandi yfir gegn Hvít Rússum á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 1-0. Mark Dóru kom á 31. mínútu eftir sendingu frá Ólínu Viðarsdóttur. Leikurinn hófst kl. 14:00 og hefur íslenska liðið verið með meiri yfirburði þó Hvít Rússarnir hafi átt skot í neðanverða þverslá íslenska marksins snemma í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43
Jói Kalli búinn að skora Jóhannes Karl Guðjónsson hefur skorað fyrir Leicester gegn Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta þar sem staðan er 2-2. Jóhannes skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 60. mínútu. Sport 13.10.2005 19:43
Heiðar kom inn á hjá Fulham Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Charlton sem sigraði nýliða Wigan 1-0 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Charlton hefur þar með unnið báða fyrstu leiki sína í deildinni á tímabilinu. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður í liði Fulham sem tapaði 2-1 fyrir Blackburn. Sport 13.10.2005 19:43
Notts County gerði jafntefli Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 3. deildinni gerði 1-1 jafntefli við Stockport í dag. Mark County var sjálfsmark og kom strákunum hans Guðjóns yfir í leiknum á 14. mínútu en heimamenn jöfnuðu á 35. mínútu. Notts County er í 5. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir og hefur ekki enn tapaði leik. Sport 13.10.2005 19:43
Stjarnan á toppinn í 2. deild Stjarnan laumaði sér á topp 2. deildar karla í fótbolta í dag þegar Garðabæjarliðið sótti 3-5 útisigur til Seyðisfjarðar gegn Hugin. Stjarnan er nú komin í 30 stig með tveggja stiga forskot á Leikni sem reyndar á leik til góða gegn botnliði Leiftri/Dalvík í dag kl. 16. Sport 13.10.2005 19:43
Lundúnaslagur á Brúnni í dag Fyrsti risaslagur ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili fer fram í dag en þá mætast Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal. Liðin mættust fyrir tveimur vikum síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn en þá var það Didier Drogba sem stal senunni og skoraði bæði mörk Chelsea sem hrósaði sigri í leiknum. Sport 13.10.2005 19:43