Eldgos og jarðhræringar Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. Innlent 1.10.2024 20:20 Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35 Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50 Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári. Innlent 30.9.2024 20:38 Stór skjálfti í Goðabungu Jarðskjálfti sem mældist 3,7 stig reið yfir í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan sex í morgun. Innlent 30.9.2024 07:39 Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Tveir skjálftar yfir 3 að stærð riðu yfir á Reykjanesskaga klukkan 17:40 og 17:43 í dag. Enginn gosórói mælist á svæðinu að sögn Veðurstofunnar. Innlent 29.9.2024 18:29 Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í Skálm. Rafleiðni mælist um 263 µS/cm. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að hlaupið sé mikið minna en hlaupið sem olli skemmdum á Þjóðveginum í sumar. Innlent 28.9.2024 20:19 „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi á jöfnum hraða. Verkfræðingur í innviðahópi almannavarna segir mikilvægt að undirbúa sig fyrir það að mögulega muni hraun renna yfir Reykjanesbrautina og í átt að Vogum. Mikil verðmæti séu fólgin í því að halda brautinni opinni. Innlent 28.9.2024 12:17 Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til upplýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum. Innlent 26.9.2024 19:00 Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. Innlent 24.9.2024 14:02 Risaflóðbylgja í grænlenskum firði mældist um allan heim Óútskýrðar hræringar sem greindust á jarðskjálftamælum um alla jörð í fyrra stöfuðu frá risavaxinni flóðbylgju sem velktist um í firði á Austur-Grænlandi í níu daga. Hnattræn hlýnun er sögð ástæða berghlaupsins út í fjörðinn sem kom bylgjunni af stað. Erlent 12.9.2024 23:55 Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16 til 17 milljörðum króna. Tjón á heimilum í bænum hefur verið metið á 6,5 milljarða króna en enn á eftir að ná utan um tjón á öðrum innviðum, til að mynda atvinnuhúsnæði, hafnarmannvirkjum og veitum. Innlent 12.9.2024 06:28 Hlaupið í rénun Jökulhlaup sem staðið hefur yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun. Innlent 10.9.2024 14:05 „Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02 Lýsa yfir óvissustigi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Innlent 9.9.2024 13:09 Hlaup hafið að nýju í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í ánni Skálm. Innviði eru ekki talin í hættu að svo stöddu en ekki er talið útilokað að rennslu og vatnshæð í ánni aukist. Innlent 9.9.2024 09:43 Skoða að breyta Hópinu í safn Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Innlent 8.9.2024 19:25 Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. Innlent 8.9.2024 12:35 Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7.9.2024 12:13 Af hættustigi niður á óvissustig Almannavarnastig hefur verið fært af hættustigi niður á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Það er Ríkislögreglustjóri sem ákveður þetta í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 6.9.2024 11:14 Eldgosinu er lokið og landris hafið í Svartsengi Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell sem hófst þann 22. ágúst er nú lokið en engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum á svæðinu í um hálfan sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Innlent 6.9.2024 09:49 Telja að eldgosinu sé lokið Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segja að svo virðist sem eldgosinu á Reykjanesskaga sé lokið. Verulega hafi dregið úr krafti gossins síðustu daga og í dag hafi ekki sést til glóðar þegar flogið var yfir eldstöðvarnar. Innlent 5.9.2024 21:00 Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. Innlent 5.9.2024 20:20 Gasmengun berst yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld Gasmengun mun berast yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld og á morgun frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð. Vegna ríkjandi suðvestanáttar berst gosmengunin til norðausturs og suðvestanátt er í kortunum næstu daga. Innlent 5.9.2024 16:14 „Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5.9.2024 14:18 Vísbendingar um að land rísi enn á ný GPS mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hefur dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Innlent 5.9.2024 14:03 Gekk yfir nýstorknað hraun á leið frá gígnum Ferðamaðurinn sem sást aðeins nokkra metra frá spúandi eldgíg á Reykjanesi í gær gekk yfir nýstorknað hraun sem gaf sig undan fótum hans á leið sinni til baka. Stutt er niður á glóandi hraun við slíkar aðstæður. Innlent 4.9.2024 14:43 Gekk upp að eldgígnum og veifaði dróna Leiðsögumaður sem náði drónamynd af erlendum ferðamanni rétt upp við virkan gíg á Reykjanesi furðar sig á að lögregla geti ekkert gert í atvikum sem þessum. Hann segir ferðamanninn hafa verið nálægt því að falla ofan í hraun á leið sinni til baka. Innlent 4.9.2024 10:13 Skjálfti að stærð fimm í Bárðarbungu Jarðskjálfti af stærð 5,0 reið yfir í Bárðarbunguöskju á fimmta tímanum í dag. Nokkur virkni hefur verið þar síðustu daga en engin merki um gosóróa. Fáir eftirskjálftar hafa mælst. Innlent 3.9.2024 16:50 Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3.9.2024 12:52 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 132 ›
Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. Innlent 1.10.2024 20:20
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári. Innlent 30.9.2024 20:38
Stór skjálfti í Goðabungu Jarðskjálfti sem mældist 3,7 stig reið yfir í Mýrdalsjökli rétt fyrir klukkan sex í morgun. Innlent 30.9.2024 07:39
Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Tveir skjálftar yfir 3 að stærð riðu yfir á Reykjanesskaga klukkan 17:40 og 17:43 í dag. Enginn gosórói mælist á svæðinu að sögn Veðurstofunnar. Innlent 29.9.2024 18:29
Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í Skálm. Rafleiðni mælist um 263 µS/cm. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að hlaupið sé mikið minna en hlaupið sem olli skemmdum á Þjóðveginum í sumar. Innlent 28.9.2024 20:19
„Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi á jöfnum hraða. Verkfræðingur í innviðahópi almannavarna segir mikilvægt að undirbúa sig fyrir það að mögulega muni hraun renna yfir Reykjanesbrautina og í átt að Vogum. Mikil verðmæti séu fólgin í því að halda brautinni opinni. Innlent 28.9.2024 12:17
Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boðar til upplýsingafundar með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu. Á fundinum munu meðal annars fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum. Innlent 26.9.2024 19:00
Landris og kvikusöfnun heldur áfram Landris í Svartsengi heldur áfram á svipuðum hraða og verið hefur og hefur kvikusöfnun sömuleiðis haldið áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Lítil jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina að undanförnu. Innlent 24.9.2024 14:02
Risaflóðbylgja í grænlenskum firði mældist um allan heim Óútskýrðar hræringar sem greindust á jarðskjálftamælum um alla jörð í fyrra stöfuðu frá risavaxinni flóðbylgju sem velktist um í firði á Austur-Grænlandi í níu daga. Hnattræn hlýnun er sögð ástæða berghlaupsins út í fjörðinn sem kom bylgjunni af stað. Erlent 12.9.2024 23:55
Heildartjón á mannvirkjum áætlað allt að 16 til 17 milljarðar Heildartjón á mannvirkjum í Grindavík gæti numið allt að 16 til 17 milljörðum króna. Tjón á heimilum í bænum hefur verið metið á 6,5 milljarða króna en enn á eftir að ná utan um tjón á öðrum innviðum, til að mynda atvinnuhúsnæði, hafnarmannvirkjum og veitum. Innlent 12.9.2024 06:28
Hlaupið í rénun Jökulhlaup sem staðið hefur yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun. Innlent 10.9.2024 14:05
„Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02
Lýsa yfir óvissustigi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Innlent 9.9.2024 13:09
Hlaup hafið að nýju í Skálm Lítið jökulhlaup er hafið í ánni Skálm. Innviði eru ekki talin í hættu að svo stöddu en ekki er talið útilokað að rennslu og vatnshæð í ánni aukist. Innlent 9.9.2024 09:43
Skoða að breyta Hópinu í safn Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Innlent 8.9.2024 19:25
Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein. Innlent 8.9.2024 12:35
Hraun gæti náð að Reykjanesbraut á skömmum tíma í næsta gosi Eldfjallafræðingur telur líkur á að hraun nái að Reykjanesbrautinni á nokkrum klukkutímum komi til nýss eldgoss á Reykjanesskaga. Mögulega þurfi að hefja vinnu við að vernda innviði norðan við síðustu gosstöðvar. Innlent 7.9.2024 12:13
Af hættustigi niður á óvissustig Almannavarnastig hefur verið fært af hættustigi niður á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Það er Ríkislögreglustjóri sem ákveður þetta í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 6.9.2024 11:14
Eldgosinu er lokið og landris hafið í Svartsengi Eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell sem hófst þann 22. ágúst er nú lokið en engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum á svæðinu í um hálfan sólarhring. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Innlent 6.9.2024 09:49
Telja að eldgosinu sé lokið Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segja að svo virðist sem eldgosinu á Reykjanesskaga sé lokið. Verulega hafi dregið úr krafti gossins síðustu daga og í dag hafi ekki sést til glóðar þegar flogið var yfir eldstöðvarnar. Innlent 5.9.2024 21:00
Fylla upp í sprungur í von um að hægt verði að opna Grindavík aftur Vinna við sprungufyllingar í Grindavík gengur vel, þó að verkið vinnist seint, að sögn verktaka. Hann er fullviss um að eftir að fyllt verður í sprungur og hættusvæði girt af verði hægt að flytja aftur í bæinn. Innlent 5.9.2024 20:20
Gasmengun berst yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld Gasmengun mun berast yfir höfuðborgarsvæðið í kvöld og á morgun frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð. Vegna ríkjandi suðvestanáttar berst gosmengunin til norðausturs og suðvestanátt er í kortunum næstu daga. Innlent 5.9.2024 16:14
„Guðs mildi að þetta hafi stoppað þarna“ „Það er alveg með hreinum ólíkindum að koma að þessu. Hún hefur ekki hreyfst girðingin, en hraunið vafði sér eiginlega utan um hornið þarna,“ segir Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður og Grindvíkingur, um hraun sem stoppaði við hús í Grindavík í janúar á þessu ári. Innlent 5.9.2024 14:18
Vísbendingar um að land rísi enn á ný GPS mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Á sama tíma hefur dregið úr flæði frá eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Það bendir til þess að innflæði í kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi sé meira en flæði úr eldgosinu á yfirborðinu. Innlent 5.9.2024 14:03
Gekk yfir nýstorknað hraun á leið frá gígnum Ferðamaðurinn sem sást aðeins nokkra metra frá spúandi eldgíg á Reykjanesi í gær gekk yfir nýstorknað hraun sem gaf sig undan fótum hans á leið sinni til baka. Stutt er niður á glóandi hraun við slíkar aðstæður. Innlent 4.9.2024 14:43
Gekk upp að eldgígnum og veifaði dróna Leiðsögumaður sem náði drónamynd af erlendum ferðamanni rétt upp við virkan gíg á Reykjanesi furðar sig á að lögregla geti ekkert gert í atvikum sem þessum. Hann segir ferðamanninn hafa verið nálægt því að falla ofan í hraun á leið sinni til baka. Innlent 4.9.2024 10:13
Skjálfti að stærð fimm í Bárðarbungu Jarðskjálfti af stærð 5,0 reið yfir í Bárðarbunguöskju á fimmta tímanum í dag. Nokkur virkni hefur verið þar síðustu daga en engin merki um gosóróa. Fáir eftirskjálftar hafa mælst. Innlent 3.9.2024 16:50
Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3.9.2024 12:52