Deilur innan FH vegna láns til knattspyrnudeildar: „Sverðin voru á lofti en nú er búið að slíðra þau“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. desember 2019 16:00 Frá leik með FH í sumar. vísir/daníel Stjórn Barna- og unglingaráðs (BUR) knattspyrnudeildar FH hefur sagt sig frá störfum fyrir deildina. Ágreiningurinn snýst um sex milljóna króna lán sem knattspyrnudeildin fékk frá BUR. Tvö bréf hafa verið send til foreldra iðkenda í FH vegna málsins og er tóninn í því fyrra öllu hvassari. Í því fyrra er talað um skoðanaágreining við formann og framkvæmdastjórn knattspyrnudeildar og formann félagsins, trúnaðarbrest og „óásættanleg vinnubrögð þeirra síðustu vikur,“ eins og það er orðað. Í seinna bréfinu kemur fram að aðilar málsins hafi sest niður um helgina og reynt að finna sameiginlega lausn. „Formaður FH, varaformaður FH, hluti stjórnar knattspyrnudeildar FH og fráfarandi stjórn barna og unglingaráðs hefur fundað um málið og eru að vinna sameiginlega að sátt um ágreining aðila. Allir eru staðráðnir í því að tryggja að starfið fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara haldist óbreytt. Með von um farsæla niðurstöðu,“ segir í bréfinu. Undir það rita stjórn knattspyrnudeildar, fráfarandi stjórn BUR sem og formaður og varaformaður FH. Arnar Hjálmsson, einn þeirra sem sat í stjórn BUR, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og vísaði á formann FH, Viðar Halldórsson. „Afsögn þessara fjögurra úr BUR er vegna ágreinings um sex milljónir sem knattspyrnudeildin, sem BUR heyrir undir, vildi fá að láni. Þau voru óhress með það. En meirihluti knattspyrnudeildar samþykkti að lánið yrði veitt,“ sagði Viðar. „Fólk hefur síðan sest niður eins og sást í seinni yfirlýsingunni. Sverðin voru á lofti en nú er búið að slíðra þau.“ Viðar segir að skipuð hafi verið ný stjórn BUR til bráðabirgða. Næsti aðalfundur knattspyrnudeildar er í febrúar á næsta ári. Að hans sögn eru milljónirnar sex ekki há upphæð í stóra samhengingu. „Við erum að tala um sex milljónir í félagi þar sem fjármálaleg umsvif á þessu ári voru um 1,6 milljarður. Þetta er frekar lítill hluti,“ sagði Viðar og bætti við að umsvif FH hafi verið þónokkuð mikil á þessu ári vegna byggingu knatthússins Skessunnar. „Að mínu mati urðu óþarfa læti en það er öllum heimilt að hafa sínar skoðanir og koma þeim á framfæri. Það má ekki gera lítið úr skoðunum fólks þótt allir séu ekki alltaf sammála,“ sagði Viðar að lokum. Mikil umræða hefur verið um fjárhaggskröggur meistaraflokks karla hjá FH undanfarna mánuði. Í frétt 433.is kemur fram að launakostnaður meistaraflokks karla hafi lækkað um rúmlega 20% frá því síðasta tímabili lauk. Hafnarfjörður Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira
Stjórn Barna- og unglingaráðs (BUR) knattspyrnudeildar FH hefur sagt sig frá störfum fyrir deildina. Ágreiningurinn snýst um sex milljóna króna lán sem knattspyrnudeildin fékk frá BUR. Tvö bréf hafa verið send til foreldra iðkenda í FH vegna málsins og er tóninn í því fyrra öllu hvassari. Í því fyrra er talað um skoðanaágreining við formann og framkvæmdastjórn knattspyrnudeildar og formann félagsins, trúnaðarbrest og „óásættanleg vinnubrögð þeirra síðustu vikur,“ eins og það er orðað. Í seinna bréfinu kemur fram að aðilar málsins hafi sest niður um helgina og reynt að finna sameiginlega lausn. „Formaður FH, varaformaður FH, hluti stjórnar knattspyrnudeildar FH og fráfarandi stjórn barna og unglingaráðs hefur fundað um málið og eru að vinna sameiginlega að sátt um ágreining aðila. Allir eru staðráðnir í því að tryggja að starfið fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara haldist óbreytt. Með von um farsæla niðurstöðu,“ segir í bréfinu. Undir það rita stjórn knattspyrnudeildar, fráfarandi stjórn BUR sem og formaður og varaformaður FH. Arnar Hjálmsson, einn þeirra sem sat í stjórn BUR, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og vísaði á formann FH, Viðar Halldórsson. „Afsögn þessara fjögurra úr BUR er vegna ágreinings um sex milljónir sem knattspyrnudeildin, sem BUR heyrir undir, vildi fá að láni. Þau voru óhress með það. En meirihluti knattspyrnudeildar samþykkti að lánið yrði veitt,“ sagði Viðar. „Fólk hefur síðan sest niður eins og sást í seinni yfirlýsingunni. Sverðin voru á lofti en nú er búið að slíðra þau.“ Viðar segir að skipuð hafi verið ný stjórn BUR til bráðabirgða. Næsti aðalfundur knattspyrnudeildar er í febrúar á næsta ári. Að hans sögn eru milljónirnar sex ekki há upphæð í stóra samhengingu. „Við erum að tala um sex milljónir í félagi þar sem fjármálaleg umsvif á þessu ári voru um 1,6 milljarður. Þetta er frekar lítill hluti,“ sagði Viðar og bætti við að umsvif FH hafi verið þónokkuð mikil á þessu ári vegna byggingu knatthússins Skessunnar. „Að mínu mati urðu óþarfa læti en það er öllum heimilt að hafa sínar skoðanir og koma þeim á framfæri. Það má ekki gera lítið úr skoðunum fólks þótt allir séu ekki alltaf sammála,“ sagði Viðar að lokum. Mikil umræða hefur verið um fjárhaggskröggur meistaraflokks karla hjá FH undanfarna mánuði. Í frétt 433.is kemur fram að launakostnaður meistaraflokks karla hafi lækkað um rúmlega 20% frá því síðasta tímabili lauk.
Hafnarfjörður Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti Fleiri fréttir Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti