Rafíþróttir

Dusty úr leik eftir annað tap dagsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dusty er úr leik í BLAST.
Dusty er úr leik í BLAST.

Íslenska rafíþróttaliðið Dusty er úr leik á BLAST Premier mótinu. Dusty tapaði gegn sænska liðinu Lilmix í seinni leik liðsins í dag og er því úr leik eftir að hafa tapað báðum leikjum dagsins.

Dusty mátti þola naum tap gegn danska liðinu Ecstatic fyrr í dag, 13-16. Spiluð var svokölluð „Double elimination“ umferð þannig Dusty mætti Lilmix, tapliðinu frá hinni viðureign morgunsins.

Dusty þurfti á sigri að halda gegn Lilmix til að koma sér í ákvörðunarleikinn gegn danska liðinu Masonic, en liðið lenti strax í vandræðum.

Lilmix vann fyrstu sjö loturnar í leiknum og liðsmenn Dusty því strax komnir með bakið upp við vegg. Lilmix jók forskot sitt fljótlega í 13-2 og Dusty þurfti því á kraftaverki að halda til að snúa leiknum við.

Liðsmenn Dusty vöknuðu loksins til lífsins á þessum tímapunkti og unnu þrjár lotur í röð. Það var þó langt frá því að vera nóg til að ógna forskoti sænska liðsins af einhverju viti og Lilmix vann að lokum sannfærandi sigur, 16-6.

Lilmix mætur nú danska liðinu Masonic í ákvörðunarleik riðilsins, en viðureignina má sjá í opinni dagskrá á Stöð 2 eSport með því að smella hér.






×