Rafíþróttir

Verð­launa­hóf Ljós­leiðara­deildarinnar fer fram í fyrsta skipti í kvöld

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þeir fimm sem tilnefndir eru sem leikmaður ársins.
Þeir fimm sem tilnefndir eru sem leikmaður ársins.

Leikmenn og lið sem hafa skarað fram úr á tímabilinu í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO verða verðlaunaðir að loknum úrslitaleik Stórmeistaramótsins milli Atlantic Esports og Þórs í kvöld. Verður þetta í fyrsta skipti sem verðlaunahóf af þessu tagi er haldið í kringum Ljósleiðaradeildina.

Það má með sanni segja að efnt verði til veislu á Arena Gaming í kvöld þegar úrslitin ráðast á Stórmeistaramótinu. Dagskráin hefst á slaginu klukkan 17:00 og verður eitthvað um að vera langt fram eftir kvöldi.

Úrslitaleikurinn sjálfur hefst svo klukkan 19:00, en að honum loknum verða þeir leikmenn og lið sem þóttu skara fram úr á tímabilinu heiðraðir með verðlaunum.

Alls verða veitt verðlaun í níu flokkum og eru þrír leikmenn, eða þrjú lið, tilnefnd í hverjum flokki, nema í einum flokk þar sem fimm leikmenn berjast um titilinn „Leikmaður ársins.“

Tilnefningarnar má sjá hér fyrir neðan, en þrátt fyrir að úrslitaleikurinn sjálfur verði í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi verður verðlaunaafhendingin aðeins sýnd í persónu á Arena Gaming. Kynnir kvöldsins á verðlaunaafhendingunni verður JóiSpói24, sem er að öllum líkindum lang þekktasti „streamer“ landsins.

Klippa: Red Bull Award Show

Tilnefningar

Bjartasta vonin: Moshii, Bl1ck, Pabo

In Game Leader: Blazter, Th0r, Bjarni

Support ársins: Furious, Detinate, Clvr

Rifler ársins: Brnr, Eddezennn, Peterrr

AWP ársins: Th0r, Ravle, Ofvy

Entry ársins: Minidegreez, Bl1ck, Eddezennn

Play ársins: Bjarni, Mozart, Furious

Lið ársins: Atlantic Esports, Þór, Dusty

Leikmaður ársins: Th0r, Bl1ck, Blazter, Peterrr, Brnr






×