Rafíþróttir

Tilþrifin: Hugo stillir upp þremur í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
hugo

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Hugo í liði Atlantic sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Hugo og félagar í Atlantic unnu góðan sigur gegn Breiðabliki í gær og liðið er þar með loksins búið að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu. Liðsmenn Atlantic eru ríkjandi Stórmeistarar og því líklega orðið löngu tímabært að ná í sinn fyrsta sigur.

Hugo sýndi frábær tilþrif þegar staðan var jöfn, 10-10, og lítið eftir af leiknum. Hann mætti þá fjórum leikmönnum Breiðabliks einn síns liðs og náði að fella þrjá þeirra áður en hann var sjálfur tekinn niður.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






×