Rafíþróttir

Tilþrifin: ShiNe hendir kjarnorkusprengju í lið Ten5ion

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
shine

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það shiNe í liði ÍBV sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Eyjamenn töpuðu nokkuð örugglega gegn Ten5ion er fjórða umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike kláraðist í gær og situr liðið því enn á botni deildarinnar án stiga.

Einn leikmaður liðsins, shiNe, sýndi þó frábær tilþrif í viðureign gærkvöldsins þegar hann henti handsprengju inn í lið Ten5ion og felldi þrjá andstæðinga í einu. „Kjarnorkusprengja“ eins og Tómas Jóhannsson, sem lýsti viðureigninni, komst svo skemmtilega að orði.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: ShiNe hendir kjarnorkusprengju í lið Ten5ion





×