Rafíþróttir

Atlantic aftur á sigurbraut

Hjörvar Ólafsson skrifar
ADHD og Bjarni, leikmenn SAGA og Atlantic.
ADHD og Bjarni, leikmenn SAGA og Atlantic.

Leikurinn fór fram á Nuke og hófu Saga-menn leikinn á að sigra skammbyssulotuna í sókn. Byrjunin var þeim áfram í hag, en eftir 6 lotur var staðan 2-4. Atlantic náðu þó að taka leikinn föstum höndum og sigruðu hvorki meira né minna allar lotur sem eftir lifðu hálfleiks. Brnr leiddi fellutöfluna og var með yfir 20 fellur í fyrri hálfleik.

Atlantic fóru því með höfuðið hátt í seinni hálfleik eftir afgerandi yfirburði í vörninni.

Staðan í hálfleik: 11-4

Seinni hálfleikur fór af stað eins og sá fyrri endaði og Atlantic tóku skammbyssulotuna. Saga náðu þó að vinna sig til baka í leikinn og minnkuðu muninn í 14-10 með góðum kafla í seinni hálfleik.

Atlantic náðu þó að stöðva viðsnúning Saga-manna og fundu þeir loks sigurlotuna í 26. lotu eftir tæpa lokalotu.

Lokatölur: 16-10

Slæmt gengi Saga heldur áfram en þeir hafa aðeins 4 stig og prýða 8 sæti deildarinnar nú þar sem Atlantic færist fyrir ofan þá í töfluna. Atlantic finnur því loks sinn annan sigur á tímabilinu og eru nú komnir upp í 4 stig og jafna Saga ásamt ÍA og FH.






×