Rafíþróttir

Stelpurnar okkar komnar til Gauta­borgar

Snorri Már Vagnsson skrifar
Kvennalandslið Íslands í Counter Strike er komið til Gautaborgar
Kvennalandslið Íslands í Counter Strike er komið til Gautaborgar

Kvennalandslið Íslands í Counter-Strike fór í dag til Gautaborgar til að keppa í Norðurlandamóti í rafíþróttinni.

Mótið er átak í aukinni samvinnu Norðurlandanna í rafíþróttum, en ákveðið var að herða samstarf milli landanna eftir að Rafíþróttasamband Norðurlandanna var stofnað hérlendis snemma í nóvember. 

Tania Sofia "tania" Abranja Domingos Jónasdóttir

Sigurbjörg "Siu" Guðmundsdóttir Hannah

Eneka Aris "Eneka" Heiðarsdóttir

Jasmín Joan "Jazzycakes" Rosento

Árveig Lilja "nutella.com" Bjarnadóttir

Karitas Naomí "The Coffee Queen" Thorarensen Sigríðardóttir

Þjálfari liðsins, Ágúst Bjarki “bonglez” Davíðsson fer sömuleiðis með þeim, ásamt formanni Rafíþróttasambands Íslands, Evu Margréti Guðnadóttur.

Andstæðingar stelpnanna okkar verða Finnland, Noregur, Svíþjóð og Danmörk. Leikirnir fara fram 2-3 desember og munu frekari upplýsingar birtast á miðlum Rafíþróttasamtakanna þegar nær dregur.






×