Rafíþróttir

Þórsarar á­fram í toppslagnum eftir sigur gegn Breiða­blik

Snorri Már Vagnsson skrifar
Allee og Wnkr mættust í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike í kvöld.
Allee og Wnkr mættust í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike í kvöld.

Þór mættu Breiðabliki í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike fyrr í kvöld.

Leikurinn var spilaður á Inferno og hófu Þór leika í vörn.

Blikar byrjuðu leikinn með betri fætinum og sigruðu skammbyssulotuna eftir frábæra frammistöðu Viruzar. Leikurinn var þó fljótur að snúast í þeirra höndum, en Þórsarar sigruðu sex lotur í röð, staðan þá 6-1. Blikar leyfðu þeim rauðu þó ekki að stinga af og sigruðu tvær næstu lotur, 6-3.

Þór héldu þó haus fram að hálfleik og sigruðu allar loturnar sem eftir voru.

Staðan í hálfleik: Þór 9-3 Breiðablik

Blikar byrjuðu seinni hálfleik líkt og þann fyrri og sigruðu skammbyssulotuna. Þórsarar áttu þó stutt í mark og reyndist það þeim lítil þolraun að ljúka leiknum. Sigurlotur Blika urðu ekki fleiri og Þór stóðu eftir með sigurinn.

Lokatölur: Þór 13-4 Breiðablik

Breiðablik er áfram í miðjuslag deildarinnar með 14 stig en Þór fylgja hælum NOCCO Dusty og eru jafnir þeim með 24 stig, en Dusty sigraði sinn leik fyrr í kvöld.






×