Rafíþróttir

Stórmeistaramótið: Fjögur lið á hættu­svæði og fjögur enn ósigruð

Snorri Már Vagnsson skrifar
(f.v.) Ofvirkur, Allee, RavlE og Pressi eru allir enn ósigraðir með sínum liðum á mótinu.
(f.v.) Ofvirkur, Allee, RavlE og Pressi eru allir enn ósigraðir með sínum liðum á mótinu.

Stórmeistaramótið í Counter-Strike hélt áfram í kvöld. Átta viðureignir fóru fram, en liðin sem hlutu ósigur í síðustu umferð mættu öðrum tapliðum og sigurliðin mættu öðrum sigurvegurum síðustu umferðar.

Toppliðin þrjú frá deildarkeppnni Ljósleiðaradeildarinnar; Þór, NOCCO Dusty og Ármann eru öll enn ósigruð ásamt liði Young Prodigies og munu liðin fjögur því mætast í næstu umferð.

Ljósleiðaradeildarliðin Saga og ÍA höfðu sömuleiðis sigra. Vallea og Hitech sigruðu sína leiki og eru því komin í milliriðil næstu umferðar.

Niðurstöður kvöldsins í heild sinni:

Þór 2-0 Aurora

NOCCO Dusty 2-0 ÍBV

Ármann 2-1 FH

Breiðablik 1-2 Young Prodigies

Saga 2-0 Fylkir

ÍA 2-1 Goodcompany

Fjallakóngar 0-2 Vallea

Hitech 2-0 Ulfr

Nánari upplýsingar um Stórmeistaramótið má nálgast á Frag.is






×