Skoðun

Ríkis­stjórn verðmætasköpunar

Sigríður Mogensen skrifar

Ísland er útflutningsdrifið hagkerfi en áframhaldandi vöxtur útflutningstekna er forsenda þess að hægt sé að fjárfesta áfram í öflugu heilbrigðis- og velferðarkerfi, innviðum og menntun. Stjórnvöld spila stórt hlutverk í að skapa forsendur fyrir verðmætasköpun. Þar spilar margt inn í, löggjöf og regluverk, umgjörð erlendrar fjárfestingar, skilvirkni stofnana sem fara með eftirlit og leyfisveitingar með atvinnustarfsemi og hagsmunagæsla á alþjóðavettvangi, þá sérstaklega gagnvart EES-samningnum og Evrópusambandinu. Það skiptir líka máli að skilaboð stjórnvalda séu skýr og ráðuneyti og stofnanir gangi í takti við ráðherra og þeirra sýn og stefnu.

Lífskjör á Íslandi eru framúrskarandi í öllum alþjóðlegum samanburði á flesta mælikvarða. Sterkur og fjölbreyttur útflutningur er undirstaða hagsældar hér á landi. Það eru blikur á lofti varðandi útflutningshagsmuni Íslands en fram undan gætu verið tollahækkanir í Bandaríkjunum og Evrópu. Í því samhengi þarf að stunda virka hagsmunagæslu í samráði við okkar helstu samstarfsríki á alþjóðavettvangi. Þetta verður brýnt verkefni hjá næstu ríkisstjórn. Við eigum ríka hagsmuni af velgengni Evrópu sem efnahagssvæðis og þurfum að gæta hagsmuna okkar bæði til austurs og vesturs.

Á sama tíma eru tækifærin óþrjótandi, en það þarf að sækja þau. Það hefur svo sannarlega verið gert á síðustu árum. Samtök iðnaðarins áætla að útflutningstekjur hugverkaiðnaðar verði vel yfir 300 milljörðum króna í ár. Það eru mikil tímamót í íslensku efnahagslífi. Eitt af síðustu verkum Alþingis fyrir kosningar var viðhalda öflugu hvatakerfi fyrir fjárfestingar í nýsköpun og þar með styðja við áframhaldandi vöxt í hugverkaiðnaði. Þetta skiptir máli og skapar grundvöll fyrir stóraukna verðmætasköpun á næstu árum og aukna framleiðni í hagkerfinu. Framleiðni og lífskjör þjóða haldast í hendur.

Innan raða Samtaka iðnaðarins eru tvær af fjórum útflutningsstoðum Íslands, en ásamt hugverkaiðnaði eru samtökin málsvari orkusækins iðnaðar. Samanlagt nam útflutningur þessara tveggja greina um 700 milljörðum króna á síðasta ári. Aukið framboð af raforku skiptir máli fyrir verðmætasköpun um allt land og því mikilvægt að ný ríkisstjórn tryggi skilyrði fyrir aukna græna orkuöflun í landinu.

Mörg stór og aðkallandi verkefni bíða næstu ríkisstjórnar. Forsenda sterks ríkissjóðs sem hefur bolmagn í að fjárfesta í uppbyggingu mikilvægustu kerfa og innviða samfélagsins er verðmætasköpun. Stóra spurningin er því hvort næsta ríkisstjórn verði ríkisstjórn verðmætasköpunar og nái þar með raunverulegum árangri fyrir samfélagið allt.

Höfundur er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×