Handbolti

Hrút­firska horn­a­konan ein sú marka­hæsta og öruggasta á EM

Sindri Sverrisson skrifar
Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst Íslands á EM.
Perla Ruth Albertsdóttir var markahæst Íslands á EM. Getty/Christina Pahnke

Perla Ruth Albertsdóttir var ein af markahæstu leikmönnum allrar riðlakeppninnar á EM í handbolta, og hún skoraði úr flestum vítum allra í þeim hluta mótsins.

Riðlakeppninni lauk í gær og þar með lauk einnig þátttöku Íslands sem tapaði fyrir Þýskalandi og komst því ekki áfram í milliriðla.

Liðin 24 á mótinu hafa þar með leikið þrjá leiki hvert um sig en nú hefur helmingur þeirra lokið keppni og hin tólf skiptast í tvo sex liða milliriðla.

Í riðlakeppninni skoraði Perla 21 mark úr 26 skotum, og var því með tæplega 81% nýtingu. Það er jafnframt besta nýtingin á meðal tuttugu markahæstu leikmanna mótsins til þessa.

Aðeins þrír leikmenn hafa skorað fleiri mörk en Perla, en markahæst er Stanko Tjasa frá Slóveníu með 24 mörk. Hún er með 68,6% nýtingu. Durdina Jaukovic frá Svartfjallalandi hefur skorað 23 mörk og Nathalie Hagman frá Svíþjóð hefur skorað 22 mörk.

Perla Rut Albertsdóttir var afar örugg á vítalínunni fyrir Ísland.Getty/Marco Wolf

Þrír leikmenn eru svo jafnir Perlu í 4. sætinu en það eru Tabea Schmid frá Sviss, Pernille Brandenborg frá Færeyjum og Andjela Janjusevic frá Serbíu.

Perla var eins og fyrr segir öryggið uppmálað á vítalínunni og hún skoraði þar flest mörk allra eða tólf, úr aðeins þrettán tilraunum.

Byrjaði sautján ára í handbolta

Eins og fram kom í viðtali við Perlu á RÚV var þessi kraftmikla hornakona orðin 17 ára þegar hún byrjaði að æfa handbolta. Hún er úr Hrútafirði en flutti á Selfoss eftir að hafa kynnst ástinni sinni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. 

Maðurinn hennar er Örn Þrastarson, handboltaþjálfari og nú íþróttastjóri Selfoss, sem þjálfaði Perlu. Örn er eldri bróðir Hauks Þrastarsonar landsliðsmanns, Hrafnhildar Hönnu fyrrverandi landsliðskonu, og Huldu Dísar sem er liðsfélagi Perlu hjá Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×