Enski boltinn

Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marc Guéhi lét ekki segjast og storkaði með því aganefnd ensku úrvalsdeildarinnar.
Marc Guéhi lét ekki segjast og storkaði með því aganefnd ensku úrvalsdeildarinnar. Getty/Julian Finney/Richard Pelham

Enski landsliðsmaðurinn Marc Guéhi var aftur fyrirliði Crystal Palace þegar liðið mætti Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann hlustaði hins vegar ekki á viðvörun aganefndar ensku úrvalsdeildarinnar.

Guéhi var varaður við eftir að hann skrifaði „Ég elska Jesú“ á fyrirliðabandið sitt í leik helgarinnar sem var á móti Newcastle United.

Öll félögin í deildinni fengu marglita fyrirliðabönd til að nota um helgina og var ætlunin að styðja með því við LGBTQ+ samfélagið og fjölbreytileikann.

Enska úrvalsdeildin ákvað að refsa ekki leikmanninum fyrir uppátæki sitt um helgina en varaði hann við að það væri ekki leyfilegt að vera með trúarleg skilaboð á búningi eða öðrum klæðnaði sínum í leikjum.

Guéhi gerði lítið úr þeim varnaðarorðum og skrifaði aftur Jesú á fyrirliðabandið fyrir leikinn sinn í gærkvöldi.

Í stað þess að skrifa „Ég elska Jesú“ þá skrifaði hann að þessu sinni „Jesú elskar þig“ á fyrirliðabandið.

Guéhi er mjög trúaður en það er ólíklegt að hann sleppi aftur jafnvel og síðast. Það má búast við sekt og jafnvel leikbanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×