Hætti mínútum eftir að hafa komið Tékkum á EM og Íslandi í umspilið Tékkar tryggðu sér sæti á Evrópumótinu í fótbolta í gærkvöldi og það ætti að vera rík ástæða þar á bæ til að fagna þessum góða árangri. Þjálfari tékkneska liðsins ákvað hins vegar að hætta með liðið strax eftir leik. Fótbolti 21. nóvember 2023 07:30
Svona gæti umspilið fyrir EM litið út Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er komið í umspil um sæti á EM 2024 sem fram fer í Þýskaland. Vinna þarf tvo umspilsleiki til að verða ein af þjóðunum 24 sem tekur þátt í mótinu. Fótbolti 20. nóvember 2023 22:25
Ítalía á EM | Kane bjargaði stigi í Norður-Makedóníu Ítalía er komið á EM 2024 í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Úkraínu. Þá kom Harry Kane af bekknum og bjargaði stigi í Norður-Makedóníu. Fótbolti 20. nóvember 2023 21:55
Tékkneskur sigur og Ísland í umspil um sæti á EM Tékkland vann Moldóvu 3-0 í úrslitaleik um sæti á EM karla í knattspyrnu sumarið 2024. Leikurinn skipti öllu máli fyrir okkur Íslendinga því sigur Tékka þýðir að Ísland fer í umspilið um sæti á mótinu. Fótbolti 20. nóvember 2023 21:45
Mbappé á undan öllum hetjunum í þrjú hundruð mörkin Kylian Mbappé skoraði sitt þrjú hundraðasta mark á fótboltaferlinum þegar Frakkland vann 14-0 metsigur á Gíbraltar í undankeppni EM. Fótbolti 20. nóvember 2023 17:00
Liverpool stjarnan fagnaði EM sætinu með því að skála í stúkunni Dominik Szoboszlai átti flottan leik í gær þegar Ungverjar tryggðu sér sigur í sínum riðli í undankeppni EM en þeir höfðu þremur dögum fyrr tryggt sér sæti á Evrópumótinu í fótbolta næsta sumar. Fótbolti 20. nóvember 2023 13:00
Völdu byrjunarliðið fyrir umspilið: Orri fremstur en ósammála um markmanninn Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson fengu það verkefni að velja byrjunarlið íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir EM-umspilið sem það fer væntanlega í mars á næsta ári. Fótbolti 20. nóvember 2023 10:30
„Margir góðir vinir mínir búa enn í Grindavík eða eiga fjölskyldu þar“ Landsliðsfyrirliðinn Alfreð Finnbogason á rætur að rekja til Grindavíkur og var spurður út í sinn gamla heimabæ eftir tap Íslands í Portúgal í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu. Fótbolti 20. nóvember 2023 07:30
Áfall fyrir ungu stjörnuna hjá Barcelona og spænska landsliðinu Spænski landsliðsmaðurinn Gavi sleit krossband í leik Spánar og Georgíu í undankeppni EM í gær. Fótbolti 20. nóvember 2023 06:34
Telur Ísland geta byggt á þessu fyrir mögulegt umspil „Við höfum verið að reyna mismunandi hluti en ég tel okkur hafa fundið kerfið og hvernig við viljum spila,“ sagði Åge Hareide eftir 2-0 tap Íslands gegn Portúgal í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM karla í knattspyrnu. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:50
Skotland og Noregi gerðu jafntefli í stórskemmtilegum leik Leikjum dagsins í undankeppni EM karla í knattspyrnu er nú lokið. Skotland og Noregur gerðu 3-3 jafntefli, Spánn vann 3-1 sigur á Georgíu á meðan Slóvakía og Lúxemborg unnu útisigra í riðli Íslands. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:35
Umfjöllun: Portúgal - Ísland 2-0 | Tap gegn fullkomna liðinu og óvíst hvað tekur við Ísland lék í kvöld sinn síðasta leik í undankeppninni fyrir EM 2024 í fótbolta er liðið sótti Portúgal heim. Heimamenn unnu 2-0 sigur og áttu því fullkomna undankeppni en þeir unnu alla tíu leiki sína. Ísland endaði í 4. sæti J-riðils með tíu stig. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:30
Jóhann Berg: „Þetta er eitt skref fram á við“ Íslenska landsliðið tapaði 2-0 ytra gegn Portúgal í síðasta leik sínum í undankeppni EM 2024. Liðið bætti þó heildarframmistöðu sína mjög eftir slakan leik gegn Slóvakíu síðastliðinn fimmtudag. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:23
Sjáðu mörkin sem fullkomnuðu fullkomna undankeppni Portúgals Portúgal lagði Ísland 2-0 í lokaleik liðanna í undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Portúgal vann alla tíu leiki sína í undankeppninni og lýkur henni því með fullt hús stiga. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:20
Jón Dagur um Ronaldo: „Hann ýtti mér eitthvað“ „Við vorum helvíti þéttir. Auðvitað fengu þeir einhverja sénsa í endann en frammistaðan, sérstaklega varnarleikurinn, er eitthvað sem við getum byggt á,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson, kantmaður Íslands, eftir 2-0 tapið gegn Portúgal í lokaleik undankeppni EM í fótbolta í kvöld. Fótbolti 19. nóvember 2023 22:06
„Þurfum að halda í það sem við erum góðir í“ „Mér fannst þetta mjög fínt, vörðumst vel og vorum þéttir,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, varnarmaður Íslands, um 2-0 tap liðsins gegn Portúgal ytra í lokaleik undankeppni EM 2024. Þrátt fyrir tap sagði Guðlaugur Victor að það væru nokkrir ljósir punktar í frammistöðu kvöldsins. Fótbolti 19. nóvember 2023 21:59
Einkunnir Íslands gegn Portúgal: Hákon Rafn framúrskarandi þrátt fyrir mistök í markinu Ísland tapaði síðasta leik sínum í undankeppni EM 2024 gegn Portúgal ytra, 2-0. Heilt yfir átti íslenska liðið fínan leik og spilaði mun betur en í síðasta leik gegn Slóvakíu. Tveir menn enduðu jafnir með hæstu einkunn, Hákon Rafn og Arnór Sigurðsson. Báðir áttu þeir frábæran leik, en lækkuðu aðeins í einkunn eftir mistök sem leiddu að marki. Fótbolti 19. nóvember 2023 21:56
Tapið í Portúgal á Twitter: „Þetta er markmaður númer 1 hjá okkur“ Ísland tapaði 2-0 gegn Portúgal í lokaleik liðanna í undankeppni EM 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 20:50
Lukaku skoraði fernu í fyrri hálfleik Belgía rúllaði Aserbaísjan upp í lokaleik þjóðanna í undankeppni EM 2024. Þá vann Svíþjóð 2-0 sigur á Eistlandi. Fótbolti 19. nóvember 2023 19:21
Byrjunarlið Íslands í Portúgal: Sex breytingar Byrjunarlið Íslands fyrir lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu er klárt. Fótbolti 19. nóvember 2023 18:49
Þrír sendir heim fyrir leikinn mikilvæga gegn Moldóvu Tékkland og Moldóva mætast á mánudag í leik sem sker úr um hvor þjóðin kemst á EM 2024 í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi. Tékkland verður án þriggja nokkuð sterkra leikmanna en þremenningarnir voru sendir heim fyrir agabrot. Fótbolti 19. nóvember 2023 17:49
Ungverjaland og Serbía á EM Ungverjaland og Serbía eru komin á Evrópumót karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 16:11
Bruno sér hættuna við lið Íslands sem hefur að engu að keppa Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United og portúgalska landsliðsins, segist eiga von á erfiðum leik við Ísland líkt og hann og liðsfélagar hans upplifðu í Reykjavík fyrr á árinu. Leikurinn verði góð prófraun fyrir Portúgal sem hefur unnið alla sína leik í undankeppni EM til þessa. Fótbolti 19. nóvember 2023 15:31
Upphitun fyrir Portúgal – Ísland: Á ferð með Gumma Ben í Tuk Tuk um götur Lissabon Íslenska karlalandsliðið í fótbolta heimsækir Portúgal á José Alvalade leikvanginum í Lissabon í kvöld. Um er að ræða lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024. Fótbolti 19. nóvember 2023 14:42
Óvissa uppi varðandi þátttöku Arnórs í kvöld Óvíst er hvort Arnór Ingvi Traustason muni geta tekið þátt í leik Íslands við Portúgal í Lissabon í kvöld í lokaumferð undankeppni EM 2024 í fótbolta. Fótbolti 19. nóvember 2023 14:31
„Tækifæri fyrir okkur að sanna að við getum gert góða hluti saman“ Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta segir lokaleik liðsins í undankeppni EM 2024 í kvöld, gegn toppliði Portúgal á útivelli, vera kjörið tækifæri fyrir leikmenn liðsins til þess að sanna að þeir geti gert góða hluti saman. Ísland mætir til leiks með þungt tap fyrir Slóvakíu á bakinu og enga möguleika á að komast upp úr riðlinum. Sigur Portúgal í kvöld mun sjá til þess að liðið vinnur riðilinn með fullt hús stiga. Fótbolti 19. nóvember 2023 13:16
Martinez ber virðingu fyrir Íslandi: Nefnir tvo leikmenn sem hafa hrifið hann Roberto Martinez, landsliðsþjálfari portúgalska karlalandsliðsins í fótbolta, segir sitt lið bera virðingu fyrir íslenska landsliðinu en liðin mætast í lokaumferð undankeppni EM 2024 í Lisabon í kvöld. Á sínum degi geti íslenska landsliðið veitt hvaða liði sem er leik. Fótbolti 19. nóvember 2023 13:00
Aron Einar ekki með gegn Portúgal í kvöld Aron Einar Gunnarsson er ekki í leikmannahópi Íslands sem tilkynntur var fyrir leikinn gegn Portúgal í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 19. nóvember 2023 11:08
Tók Ísland skref aftur á bak? | „Þá vonandi tökum við tvö fram á við" Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta segist vona að liðið taki tvö skref fram á við gegn Portúgal eftir svekkjandi frammistöðu og þungt tap gegn Slóvakíu, í undankeppni EM á dögunum, sem túlkað var sem skref aftur á bak fyrir liðið. Það sé undir öllum leikmönnum liðsins komið að sýna að þeir séu betri en það sem þeir sýndu í Slóvakíu. Fótbolti 19. nóvember 2023 10:00
Frakkar skoruðu fjórtán og settu met Frakkland vann einstaklega þægilegan sigur á Gíbraltar í undankeppni EM. Gestirnir misstu menn af velli snemma leiks og þó staðan hafi þá þegar verið 3-0 var ekki hægt að sjá fyrir hvað myndi gerast í París. Fótbolti 18. nóvember 2023 21:47