Sprenging hefur orðið í eftirspurn eftir flugmiðum frá Íslandi til Frakklands Jóhann K. Jóhannsson skrifar 23. júní 2016 18:45 Stóru flugfélögin Icelandair og WOW-air hafa kannað möguleikan á því að bæta við ferðum því áhuginn er slíkur. Vísir/GVA Sprenging hefur orðið í eftirspurn eftir flugmiðum frá Íslandi til Frakklands eftir að ljóst varð að Ísland hefði tryggt sér í 16 liða úrslitin á EM í gær. Mikið álag hefur verið á ferðaskrifstofum í dag og eru biðlistar eftir flug til Frakklands orðnir vel fullir. Stóru flugfélögin Icelandair og WOW-air hafa kannað möguleikan á því að bæta við ferðum því áhuginn er slíkur. „Það byrjaði strax eftir leikinn í gærkvöldi og hefur haldið áfram. Við sjáum þó að þetta virðist aðeins vera róast eftir að í ljós kom að margir áttu erfitt með að ná miðum á leikinn. Við erum að fljúga 30-50 flug á dag og mér telst til að á morgun og um helgina erum við að fljúga svona hundrað sinnum til borga í evrópu. Þeir sem ætla sér út ættu að nýta sér það heldur en frekar en að treysa á hugsanlegt leigflug sem kannski verður og kannski ekki.“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. En það eru ekki einungis fótboltaþyrstir íslendingar á klakanum sem vilja komast út því í Frakklandi er stór hópur fólks sem hefur hug á að framlengja dvöl sína að minnsta kosti þar til eftir leik á mánudag. „Þetta er mikið púsluspil og það er allt á fullu hjá okkur. Við komumst varla yfir að svara fólkinu sem er að hafa samband. En það er verið að reyna finna flug fyrir alla. Það er svona númer eitt, tvö og þrjú og hótelgistingu. Núna erum við að fá flug beint heim frá Nice á þriðjudaginn sem er svona hugsað til þeirra sem eru úti núna og og vilja vera áfram.“ segir Silja Rún Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri hjá Vita Sport. Og svo voru aðrir sem fóru óvenjulegar leiðir og leigðu flugvél til að tryggja ferð á leikinn. En hvernig gerir maður það? „Maður sendir bara upplýsingar hvert maður getur farið og hvort það sé hægt að búa til hóp. Þannig að þetta er bara hópferð með íslendinga og útskýrði þetta bara þannig. Mönnum bara leist vel á og komu með tilboð í vélina þannig að ég setti út á facebook í gær að ég væri með möguleikan á þessu og það hefur verið aldeilis áhuginn.“ segir Grétar Sigfinnur Sigurðarson, athafnamaður. Fréttir af flugi Mest lesið Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Innlent „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð Innlent Óviss með framtíð sína innan Pírata Innlent Fleiri fréttir Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða „Þannig fór um sjóferð þá“ Sjá meira
Sprenging hefur orðið í eftirspurn eftir flugmiðum frá Íslandi til Frakklands eftir að ljóst varð að Ísland hefði tryggt sér í 16 liða úrslitin á EM í gær. Mikið álag hefur verið á ferðaskrifstofum í dag og eru biðlistar eftir flug til Frakklands orðnir vel fullir. Stóru flugfélögin Icelandair og WOW-air hafa kannað möguleikan á því að bæta við ferðum því áhuginn er slíkur. „Það byrjaði strax eftir leikinn í gærkvöldi og hefur haldið áfram. Við sjáum þó að þetta virðist aðeins vera róast eftir að í ljós kom að margir áttu erfitt með að ná miðum á leikinn. Við erum að fljúga 30-50 flug á dag og mér telst til að á morgun og um helgina erum við að fljúga svona hundrað sinnum til borga í evrópu. Þeir sem ætla sér út ættu að nýta sér það heldur en frekar en að treysa á hugsanlegt leigflug sem kannski verður og kannski ekki.“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. En það eru ekki einungis fótboltaþyrstir íslendingar á klakanum sem vilja komast út því í Frakklandi er stór hópur fólks sem hefur hug á að framlengja dvöl sína að minnsta kosti þar til eftir leik á mánudag. „Þetta er mikið púsluspil og það er allt á fullu hjá okkur. Við komumst varla yfir að svara fólkinu sem er að hafa samband. En það er verið að reyna finna flug fyrir alla. Það er svona númer eitt, tvö og þrjú og hótelgistingu. Núna erum við að fá flug beint heim frá Nice á þriðjudaginn sem er svona hugsað til þeirra sem eru úti núna og og vilja vera áfram.“ segir Silja Rún Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri hjá Vita Sport. Og svo voru aðrir sem fóru óvenjulegar leiðir og leigðu flugvél til að tryggja ferð á leikinn. En hvernig gerir maður það? „Maður sendir bara upplýsingar hvert maður getur farið og hvort það sé hægt að búa til hóp. Þannig að þetta er bara hópferð með íslendinga og útskýrði þetta bara þannig. Mönnum bara leist vel á og komu með tilboð í vélina þannig að ég setti út á facebook í gær að ég væri með möguleikan á þessu og það hefur verið aldeilis áhuginn.“ segir Grétar Sigfinnur Sigurðarson, athafnamaður.
Fréttir af flugi Mest lesið Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Innlent „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð Innlent Óviss með framtíð sína innan Pírata Innlent Fleiri fréttir Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða „Þannig fór um sjóferð þá“ Sjá meira