Rafíþróttir

Áskorendamótið hefst á morgun: Sæti á Stórmeistaramótinu í boði

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Áskorendamótið í CS:GO hefst á morgun.
Áskorendamótið í CS:GO hefst á morgun. RÍSÍ

Áskorendamótið í CS:GO hefst á morgun þar sem fjögur lið geta unnið sér inn þátttökurétt á Stórmeistaramótinu.

Fjögur neðstu lið Ljósleiðaradeildarinnar taka þátt á Áskorendamótinu, en ásamt þeim mæta fjögur efstu liðin á Opna mótinu til leiks. Liðin sem taka þátt eru XY, Fylkir, SAGA og Kórdrengir úr Ljósleiðaradeildinni og Samviskan, Tan5ion, Haukar og BadCompany úr Opna mótinu.

Snið mótsins er tvöföld útsláttarkeppni; öll lið hefja leik í efra leikjatré, en ef þau tapa viðureign fara þau í neðra leikjatré, ef þau tapa þar eru þau úr leik. Allar viðureignir eru best-af-3.

Fyrirkomulag Áskorendamótsins.RÍSÍ

Fyrsta umferð fer fram annað kvöld klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Liðin sem vinna í fyrstu umferð leika svo um sæti á Stórmeistaramótinu klukkan 21:00, en neðra leikjatréð verður klárað á sunnudagskvöldið.

Stórmeistaramótið hefst svo laugardaginn 23. apríl þar sem bestu lið landsins mæta til leiks, en það verður einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport.






×