Argentína skildi Rússland eftir | Stórsigur Þjóðverja Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. janúar 2015 17:48 Johannes Sellin skoraði 11 mörk fyrir Þýskaland í dag. vísir/getty Argentínumenn gerðu sér lítið fyrir og unnu þriggja marka sigur, 27-30, á Rússum í lokaleik sínum í D-riðli Heimsmeistaramótsins í handbolta í Katar. Með sigrinum tryggði Argentína sér sæti í 16-liða úrslitum á kostnað Rússlands. Þar mætir Argentína annað hvort Svíþjóð eða Frakklandi. Rússar voru yfir framan af leik en Argentínumenn jöfnuðu og leiddu með einu marki í hálfleik, 16-17. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var staðan 23-23. Þá fóru Argentínumenn á flug, skoruðu fjögur mörk í röð og náðu heljartaki á leiknum sem þeir létu ekki af hendi. Hornamaðurinn Federico Pizarro fór á kostum í liði Argentínu og skoraði níu mörk úr 11 skotum. Diego Simonet var einnig sterkur með sjö mörk og Federico Vieyra skoraði sex. Daniil Shishkarev skoraði sjö mörk fyrir Rússland sem er á leið í Forsetabikarinn. Þjóðverjar áttu ekki í miklum vandræðum með Sádí-Arabíu í sama riðli. Þýska liðið var miklu sterkara og leiddi með tíu mörkum í hálfleik, 8-18. Lærisveinar Dags Sigurðssonar bættu við forskotið í seinni hálfleik og unnu að lokum 17 marka sigur, 19-36. Hornamennirnir Johannes Sellin og Matthias Musche nýttu tækifærið í dag vel og skoruðu 11 mörk hvor. Línumaðurinn Erik Schmidt kom næstur með átta mörk. Mojtaba Alsalem var markahæstur í liði Sádí-Arabíu með fjögur mörk. Sádarnir töpuðu öllum sínum leikjum og fara í Forsetabikarinn ásamt Rússum. Þjóðverjar unnu D-riðilinn með níu stig og mæta Egyptum í 16-liða úrslitunum. HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Fleiri fréttir Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Sjá meira
Argentínumenn gerðu sér lítið fyrir og unnu þriggja marka sigur, 27-30, á Rússum í lokaleik sínum í D-riðli Heimsmeistaramótsins í handbolta í Katar. Með sigrinum tryggði Argentína sér sæti í 16-liða úrslitum á kostnað Rússlands. Þar mætir Argentína annað hvort Svíþjóð eða Frakklandi. Rússar voru yfir framan af leik en Argentínumenn jöfnuðu og leiddu með einu marki í hálfleik, 16-17. Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var staðan 23-23. Þá fóru Argentínumenn á flug, skoruðu fjögur mörk í röð og náðu heljartaki á leiknum sem þeir létu ekki af hendi. Hornamaðurinn Federico Pizarro fór á kostum í liði Argentínu og skoraði níu mörk úr 11 skotum. Diego Simonet var einnig sterkur með sjö mörk og Federico Vieyra skoraði sex. Daniil Shishkarev skoraði sjö mörk fyrir Rússland sem er á leið í Forsetabikarinn. Þjóðverjar áttu ekki í miklum vandræðum með Sádí-Arabíu í sama riðli. Þýska liðið var miklu sterkara og leiddi með tíu mörkum í hálfleik, 8-18. Lærisveinar Dags Sigurðssonar bættu við forskotið í seinni hálfleik og unnu að lokum 17 marka sigur, 19-36. Hornamennirnir Johannes Sellin og Matthias Musche nýttu tækifærið í dag vel og skoruðu 11 mörk hvor. Línumaðurinn Erik Schmidt kom næstur með átta mörk. Mojtaba Alsalem var markahæstur í liði Sádí-Arabíu með fjögur mörk. Sádarnir töpuðu öllum sínum leikjum og fara í Forsetabikarinn ásamt Rússum. Þjóðverjar unnu D-riðilinn með níu stig og mæta Egyptum í 16-liða úrslitunum.
HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Fleiri fréttir Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik