Umfjöllun: Danmörk - Spánn 24-25 | Cañellas hetja Spánverja gegn Dönum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. janúar 2015 14:13 Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins. Vísir/Eva Björk Joan Cañellas var hetja Spánverja þegar þeir slógu Dani út í 8-liða úrslitum á HM í Katar í Lusail Sports Arena í kvöld. Lokatölur 24-25, Spáni í vil. Staðan var jöfn þegar lokamínútan gekk í garð. Valero Rivera kom Spánverjum yfir, 23-24, með sínu tíunda marki í leiknum. Danir brunuðu í sókn og Mads Mensah Larsen jafnaði metin með góðu skoti. Manolo Cadenas, þjálfari Spánar, tók þá leikhlé þegar 19 sekúndur voru eftir. Heimsmeistararnir stilltu upp í sókn sem lauk með því að Cañellas skoraði sigurmarkið, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Spánverjar fögnuðu vel og innilega en þeirra bíður leikur gegn Evrópumeisturum Frakka í undanúrslitum. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Danir voru á undan að skora framan af leik þar sem hornamaðurinn Anders Eggert fór mikinn en hann skoraði sex mörk í fyrri hálfleik. Í stöðunni 8-7 fyrir Dani kom góður kafli hjá Spánverjum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir, 8-10. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleik á meðan Danir skoruðu þrjú. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þrívegis tveimur mörkum yfir á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins. Mikkel Hansen var öflugur á þessum kafla en þessi mikla skytta skoraði fimm af sjö fyrstu mörkum Dana í seinni hálfleik. Mensah gerði hin tvö en Spánverjum gekk illa eiga við þá félaga. En líkt og í fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá heimsmeisturunum um miðjan seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 18-16 og í 18-20 og voru komnir með gott tak á leiknum. Danir gáfust hins vegar ekki upp og eftir leikhlé Guðmundar skoruðu þeir þrjú mörk í röð og komust yfir, 23-22, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Spánverjar náðu að jafna í 23-23 og við tók sá æsilegi lokakafli sem áður var lýst. Rivera var markahæsti í liði Spánar með tíu mörk en Cañellas kom næstur með fimm mörk. Þá skoraði Rául Entrerríos fjögur mörk. Eggert og Hansen voru markahæstir í liði Danmerkur með sex mörk hvor. Hansen skoraði hins vegar ekki mark síðustu 20 mínútur leiksins. Mensah skoraði fjögur mörk, öll í seinni hálfleik. Danir, sem töpuðu sínum fyrsta leik á HM í kvöld, mæta Slóvenum á föstudaginn í leik um réttinn til að leika um 5. sætið. Lærisveinar Guðmundar leika svo annað hvort um 5. eða 7. sætið á laugardaginn. HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Joan Cañellas var hetja Spánverja þegar þeir slógu Dani út í 8-liða úrslitum á HM í Katar í Lusail Sports Arena í kvöld. Lokatölur 24-25, Spáni í vil. Staðan var jöfn þegar lokamínútan gekk í garð. Valero Rivera kom Spánverjum yfir, 23-24, með sínu tíunda marki í leiknum. Danir brunuðu í sókn og Mads Mensah Larsen jafnaði metin með góðu skoti. Manolo Cadenas, þjálfari Spánar, tók þá leikhlé þegar 19 sekúndur voru eftir. Heimsmeistararnir stilltu upp í sókn sem lauk með því að Cañellas skoraði sigurmarkið, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Spánverjar fögnuðu vel og innilega en þeirra bíður leikur gegn Evrópumeisturum Frakka í undanúrslitum. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi frá fyrstu mínútu og aldrei munaði meira en tveimur mörkum á liðunum. Danir voru á undan að skora framan af leik þar sem hornamaðurinn Anders Eggert fór mikinn en hann skoraði sex mörk í fyrri hálfleik. Í stöðunni 8-7 fyrir Dani kom góður kafli hjá Spánverjum sem skoruðu þrjú mörk í röð og komust tveimur mörkum yfir, 8-10. Þeir skoruðu hins vegar aðeins eitt mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleik á meðan Danir skoruðu þrjú. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þrívegis tveimur mörkum yfir á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins. Mikkel Hansen var öflugur á þessum kafla en þessi mikla skytta skoraði fimm af sjö fyrstu mörkum Dana í seinni hálfleik. Mensah gerði hin tvö en Spánverjum gekk illa eiga við þá félaga. En líkt og í fyrri hálfleiks kom góður kafli hjá heimsmeisturunum um miðjan seinni hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 18-16 og í 18-20 og voru komnir með gott tak á leiknum. Danir gáfust hins vegar ekki upp og eftir leikhlé Guðmundar skoruðu þeir þrjú mörk í röð og komust yfir, 23-22, þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Spánverjar náðu að jafna í 23-23 og við tók sá æsilegi lokakafli sem áður var lýst. Rivera var markahæsti í liði Spánar með tíu mörk en Cañellas kom næstur með fimm mörk. Þá skoraði Rául Entrerríos fjögur mörk. Eggert og Hansen voru markahæstir í liði Danmerkur með sex mörk hvor. Hansen skoraði hins vegar ekki mark síðustu 20 mínútur leiksins. Mensah skoraði fjögur mörk, öll í seinni hálfleik. Danir, sem töpuðu sínum fyrsta leik á HM í kvöld, mæta Slóvenum á föstudaginn í leik um réttinn til að leika um 5. sætið. Lærisveinar Guðmundar leika svo annað hvort um 5. eða 7. sætið á laugardaginn.
HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik