Danir klófestu fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2015 17:46 Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska liðið. Vísir/Eva Björk Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk. HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk.
HM 2015 í Katar Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik