Frakkar gerðu lítið úr Hvít-Rússum Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. janúar 2016 18:40 Luka Karabatic var frábær í vörninni í kvöld. vísir/epa Heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka pökkuðu Hvíta-Rússlandi saman, 34-23, í fyrsta leik milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í dag. Þrátt fyrir stórsigur segja lokatölurnar nánast ekkert um gang leiksins því Frakkland hefði auðveldlega getað unnið leikinn með meira en 20 mörkum hefði það keyrt hraðann og spilað á sínum bestu mönnum allan tímann. Frakkar komust í 4-0 áður en Hvít-Rússar skoruðu fyrsta markið eftir tæpar sjö mínútur, en staðan eftir 14 mínútur var 10-4 fyrir meistarana. Þá skiptu Frakkarnir upp um gír, skoruðu átta mörk í röð og komust í 18-4. Í hálfleik munaði 15 mörkum, 20-5. Franska liðið var að spila ótrúlegan handbolta, þá sérstaklega varnarleik en leikmenn Hvíta-Rússlands litu út eins og byrjendur á móti Frökkunum. Nicola Karabatic gerði það sem hann vildi í sóknarleiknum og skoraði níu mörk úr níu skotum og þá varði Thierry Omeyer tíu skot í fyrri hálfleik. Frakkar sendu eðlilega „varaliðið“ inn í seinni hálfleikinn til að hvíla sínar helstu stjörnur enda leikurinn fyrir löngu unninn. Franski varnarveggurinn hélt fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik þar til Hvít-Rússar gengu á lagið gegn mátulega áhugalausum Frökkunum og skoruðu ellefu mörk á næstu tíu mínútum. Fleiri mörk en þeir skoruðu fyrstu 40 mínútur leiksins. Eftir að fá 67 prósent markvörslu í fyrri hálfleik frá Omeyer varði Vincent Gerard, markvörður Montpellier, aðeins sjö skot og var með 33 prósent hlutfallsmarkvörslu. Nicola Karabatic endaði markahæstur hjá Frökkunum með níu mörk þrátt fyrir að spila bara fyrri hálfleikinn en næstur kom Nedim Remili með fimm mörk. Hjá Hvíta-Rússlandi var Aliaksei Khadkevich markahæstur með níu mörk úr fjórtán skotum en í markinu varði Viachaslau Saldatsenka þrettán skot og var með 31 prósent hlutfallsmarkvörslu. Frakkar eru nú með fjögur stig í milliriðli eitt líkt og Noregur og Pólland. Þau mætast á morgun þegar Frakkar og Króatar eigast við en í kvöld mætast Makedónía og Króatía. EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Heims, Evrópu- og Ólympíumeistarar Frakka pökkuðu Hvíta-Rússlandi saman, 34-23, í fyrsta leik milliriðils eitt á Evrópumótinu í handbolta í dag. Þrátt fyrir stórsigur segja lokatölurnar nánast ekkert um gang leiksins því Frakkland hefði auðveldlega getað unnið leikinn með meira en 20 mörkum hefði það keyrt hraðann og spilað á sínum bestu mönnum allan tímann. Frakkar komust í 4-0 áður en Hvít-Rússar skoruðu fyrsta markið eftir tæpar sjö mínútur, en staðan eftir 14 mínútur var 10-4 fyrir meistarana. Þá skiptu Frakkarnir upp um gír, skoruðu átta mörk í röð og komust í 18-4. Í hálfleik munaði 15 mörkum, 20-5. Franska liðið var að spila ótrúlegan handbolta, þá sérstaklega varnarleik en leikmenn Hvíta-Rússlands litu út eins og byrjendur á móti Frökkunum. Nicola Karabatic gerði það sem hann vildi í sóknarleiknum og skoraði níu mörk úr níu skotum og þá varði Thierry Omeyer tíu skot í fyrri hálfleik. Frakkar sendu eðlilega „varaliðið“ inn í seinni hálfleikinn til að hvíla sínar helstu stjörnur enda leikurinn fyrir löngu unninn. Franski varnarveggurinn hélt fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik þar til Hvít-Rússar gengu á lagið gegn mátulega áhugalausum Frökkunum og skoruðu ellefu mörk á næstu tíu mínútum. Fleiri mörk en þeir skoruðu fyrstu 40 mínútur leiksins. Eftir að fá 67 prósent markvörslu í fyrri hálfleik frá Omeyer varði Vincent Gerard, markvörður Montpellier, aðeins sjö skot og var með 33 prósent hlutfallsmarkvörslu. Nicola Karabatic endaði markahæstur hjá Frökkunum með níu mörk þrátt fyrir að spila bara fyrri hálfleikinn en næstur kom Nedim Remili með fimm mörk. Hjá Hvíta-Rússlandi var Aliaksei Khadkevich markahæstur með níu mörk úr fjórtán skotum en í markinu varði Viachaslau Saldatsenka þrettán skot og var með 31 prósent hlutfallsmarkvörslu. Frakkar eru nú með fjögur stig í milliriðli eitt líkt og Noregur og Pólland. Þau mætast á morgun þegar Frakkar og Króatar eigast við en í kvöld mætast Makedónía og Króatía.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik