Umfjöllun: Ísland - Egyptaland 30-27 | Góð byrjun í Bygma bikarnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2017 18:45 Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk. vísir/ernir Ísland vann þriggja marka sigur, 30-27, á Egyptalandi á Bygma Cup, æfingamóti í Danmörku, í dag. Þetta var fyrsti leikurinn af þremur á Bygma Cup. Íslendingar mæta Ungverjum á morgun og Dönum á sunnudaginn. Eftir viku hefur Ísland svo leik á HM í Frakklandi. Íslensku strákarnir byrjuðu báða hálfleikina illa í leiknum í dag en sýndu styrk og náðu að landa þriggja marka sigri. Aron Rafn Eðvarðsson átti stóran þátt í því en hann varði 17 skot (47%) eftir að hann kom í íslenska markið eftir um 10 mínútna leik. Íslenska vörnin var hripleik í upphafi leiks. Egyptar skoruðu að vild, alls níu mörk á fyrstu 11 mínútum leiksins. Íslendingar voru staðir í vörninni og náðu aldrei að brjóta. Þá var markvarslan engin. Sóknarleikurinn var sem betur fer í lagi þótt mistökin væru full mörg. Í stöðunni 4-8 fyrir Egypta tók Geir Sveinsson leikhlé og lét sína menn heyra það. Það virtist vekja íslensku strákana af værum blundi. Þeir þéttu vörnina og héldu m.a. hreinu í átta mínútur samfleytt um miðbik fyrri hálfleiks. Aron Rafn átti einnig flotta innkomu og varði sjö af þeim 13 skotum sem hann fékk á sig í fyrri hálfleik (54%). Geir rúllaði vel á íslenska liðinu í dag og allir leikmenn á skýrslu, fyrir utan Bjarka Má Gunnarsson, fengu að spila. Ungu strákarnir Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og Arnar Freyr Arnarsson fengu mikinn spiltíma og stóðust prófið. Þeir gerðu vissulega sín mistök en voru óhræddir og sýndu að þeir ætla sér með til Frakklands. Staðan í hálfleik var 13-14, Egyptum í vil. Með örlítið meiri yfirvegun hefði staða Íslands verið hagstæðari. Ómar Ingi jafnaði metin í 14-14 í upphafi seinni hálfleiks en Egyptar svöruðu með þremur mörkum í röð. Íslenska vörnin var þó fljót að finna taktinn á nýjan leik og Aron Rafn fór aftur að verja í markinu. Í sókninni brá fyrir laglegu spili og Ísland breytti stöðunni úr 17-19 í 20-19 um miðbik seinni hálfleiks. Egyptar komust yfir, 21-22, þegar 13 mínútur voru eftir. Það var í síðasta sinn sem þeir höfðu forystuna í leiknum. Íslenska liðið sýndi styrk á lokakaflanum og vann að lokum þriggja marka sigur, 30-27. Ómar Ingi og Ólafur Guðmundsson voru markahæstir í íslenska liðinu með sex mörk hvor. Bjarki Már Elísson og Guðjón Valur Sigurðsson skiptu hálfleikjunum á milli sín og skoruðu báðir fimm mörk úr vinstra horninu. Varnarleikur íslenska liðsins hefur að stærstum hluta verið góður eftir að Geir tók við því. Í leiknum í dag fékk Ísland hins vegar miklu fleiri mörk úr hraðaupphlaupum (10) en í síðustu leikjum. Það er afar jákvæð þróun og verður spennandi að sjá hvort það sama verður uppi á teningnum gegn Ungverjalandi í Skjern á morgun. HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Ísland vann þriggja marka sigur, 30-27, á Egyptalandi á Bygma Cup, æfingamóti í Danmörku, í dag. Þetta var fyrsti leikurinn af þremur á Bygma Cup. Íslendingar mæta Ungverjum á morgun og Dönum á sunnudaginn. Eftir viku hefur Ísland svo leik á HM í Frakklandi. Íslensku strákarnir byrjuðu báða hálfleikina illa í leiknum í dag en sýndu styrk og náðu að landa þriggja marka sigri. Aron Rafn Eðvarðsson átti stóran þátt í því en hann varði 17 skot (47%) eftir að hann kom í íslenska markið eftir um 10 mínútna leik. Íslenska vörnin var hripleik í upphafi leiks. Egyptar skoruðu að vild, alls níu mörk á fyrstu 11 mínútum leiksins. Íslendingar voru staðir í vörninni og náðu aldrei að brjóta. Þá var markvarslan engin. Sóknarleikurinn var sem betur fer í lagi þótt mistökin væru full mörg. Í stöðunni 4-8 fyrir Egypta tók Geir Sveinsson leikhlé og lét sína menn heyra það. Það virtist vekja íslensku strákana af værum blundi. Þeir þéttu vörnina og héldu m.a. hreinu í átta mínútur samfleytt um miðbik fyrri hálfleiks. Aron Rafn átti einnig flotta innkomu og varði sjö af þeim 13 skotum sem hann fékk á sig í fyrri hálfleik (54%). Geir rúllaði vel á íslenska liðinu í dag og allir leikmenn á skýrslu, fyrir utan Bjarka Má Gunnarsson, fengu að spila. Ungu strákarnir Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason og Arnar Freyr Arnarsson fengu mikinn spiltíma og stóðust prófið. Þeir gerðu vissulega sín mistök en voru óhræddir og sýndu að þeir ætla sér með til Frakklands. Staðan í hálfleik var 13-14, Egyptum í vil. Með örlítið meiri yfirvegun hefði staða Íslands verið hagstæðari. Ómar Ingi jafnaði metin í 14-14 í upphafi seinni hálfleiks en Egyptar svöruðu með þremur mörkum í röð. Íslenska vörnin var þó fljót að finna taktinn á nýjan leik og Aron Rafn fór aftur að verja í markinu. Í sókninni brá fyrir laglegu spili og Ísland breytti stöðunni úr 17-19 í 20-19 um miðbik seinni hálfleiks. Egyptar komust yfir, 21-22, þegar 13 mínútur voru eftir. Það var í síðasta sinn sem þeir höfðu forystuna í leiknum. Íslenska liðið sýndi styrk á lokakaflanum og vann að lokum þriggja marka sigur, 30-27. Ómar Ingi og Ólafur Guðmundsson voru markahæstir í íslenska liðinu með sex mörk hvor. Bjarki Már Elísson og Guðjón Valur Sigurðsson skiptu hálfleikjunum á milli sín og skoruðu báðir fimm mörk úr vinstra horninu. Varnarleikur íslenska liðsins hefur að stærstum hluta verið góður eftir að Geir tók við því. Í leiknum í dag fékk Ísland hins vegar miklu fleiri mörk úr hraðaupphlaupum (10) en í síðustu leikjum. Það er afar jákvæð þróun og verður spennandi að sjá hvort það sama verður uppi á teningnum gegn Ungverjalandi í Skjern á morgun.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik