Umfjöllun: Ísland - Ungverjaland 27-30 | Kaflaskipt í tapi fyrir Ungverjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2017 18:45 Guðjón Valur Sigurðsson og strákarnir eiga erfiðan leik fyrir höndum í dag. vísir/anton brink Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi, 27-30, í öðrum leik sínum í Bygma bikarnum í Skjern í dag. Ungverjar voru með frumkvæðið nær allan tímann og Íslendingar komust aðeins tvisvar sinnum yfir í leiknum. Íslenska liðið spilaði vel á köflum en slæmur endir á fyrri hálfleik og byrjun á þeim seinni reyndist dýr. Ungverjar unnu síðustu 12 mínútur fyrri hálfleiks og fyrstu 10 mínúturnar í þeim seinni samtals 14-8. Þrátt fyrir að lenda mest sex mörkum undir, 18-24, gafst íslenska liðið ekki upp og vann sig aftur inn í leikinn, ekki síst fyrir tilstuðlan Björgvin Páls Gústavssonar sem varði mjög vel í seinni hálfleik. Kollegi hans í ungverska markinu, hinn fertugi Nándor Fazekas, reyndist Íslendingum hins vegar erfiður en hann varði frá Ómari Inga Magnússyni úr dauðafæri í stöðunni 26-27. Ungverjar nýttu sér það, skoruðu þrjú af fjórum síðustu mörkum leiksins og unnu að lokum þriggja marka sigur, 27-30. Janus Daði Smárason átti stórleik í íslensku sókninni og skoraði sjö mörk úr átta skotum. Ómar Ingi kom næstur með sex mörk, þar af fjögur úr vítum. Varnarleikurinn var aðal hausverkur íslenska liðsins í fyrri hálfleik, og þá sérstaklega seinni hluta hans. Geir Sveinsson prófaði ýmsar samsetningar í vörninni en Ungverjar áttu svör við þeim öllum. Ungverjar voru duglegir að keyra í bakið á íslenska liðinu, bæði í annarri bylgju í hraðaupphlaupum og með hraðri miðju, sem skilaði mörgum mörkum. Á meðan skoraði Ísland aðeins tvö hraðaupphlaupsmörk í fyrri hálfleik. Rúnar Kárason og Ólafur Guðmundsson byrjuðu í skyttustöðunum en fundu sig engan veginn. Rúnar skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum en það var eina markið frá þeim Ólafi í fyrri hálfleiknum. Sem betur fer var Janus Daði sjóðheitur en hann skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum á fyrstu 18 mínútum leiksins. Janus jafnaði metin í 10-10 með sínu fimmta marki en þá seig á ógæfuhliðina. Ungverjar stigu á bensíngjöfina, kláruðu fyrri hálfleikinn með 8-5 kafla og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 15-18. Byrjunin á seinni hálfleik var afleit hjá íslenska liðinu sem tapaði boltanum fjórum sinnum á fyrstu 10 mínútunum. Ólafur tapaði tveimur af þessum boltum auk þess sem hann fékk á sig víti og tveggja mínútna brottvísun í kjölfarið. Eins fínan leik og Hafnfirðingurinn átti gegn Egyptum í gær, þá var hann úti á túni í dag. Gergely Harsányi kom Ungverjum sex mörkum yfir, 18-24, þegar 20 mínútur voru eftir. Þá tók Geir leikhlé sem hafði góð áhrif á íslenska liðið. Varnarleikurinn, með Bjarka Má Gunnarsson og Arnar Frey Arnarsson í miðjunni, var mjög öflugur á lokakaflanum og Björgvin Páll var frábær í markinu. Þá átti Gunnar Steinn Jónsson fína innkomu í sóknina eins og gegn Egyptum. Ísland vann síðustu 20 mínútur leiksins 12-6 en það dugði því miður ekki til. Lokatölur 27-30, Ungverjalandi í vil. HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi, 27-30, í öðrum leik sínum í Bygma bikarnum í Skjern í dag. Ungverjar voru með frumkvæðið nær allan tímann og Íslendingar komust aðeins tvisvar sinnum yfir í leiknum. Íslenska liðið spilaði vel á köflum en slæmur endir á fyrri hálfleik og byrjun á þeim seinni reyndist dýr. Ungverjar unnu síðustu 12 mínútur fyrri hálfleiks og fyrstu 10 mínúturnar í þeim seinni samtals 14-8. Þrátt fyrir að lenda mest sex mörkum undir, 18-24, gafst íslenska liðið ekki upp og vann sig aftur inn í leikinn, ekki síst fyrir tilstuðlan Björgvin Páls Gústavssonar sem varði mjög vel í seinni hálfleik. Kollegi hans í ungverska markinu, hinn fertugi Nándor Fazekas, reyndist Íslendingum hins vegar erfiður en hann varði frá Ómari Inga Magnússyni úr dauðafæri í stöðunni 26-27. Ungverjar nýttu sér það, skoruðu þrjú af fjórum síðustu mörkum leiksins og unnu að lokum þriggja marka sigur, 27-30. Janus Daði Smárason átti stórleik í íslensku sókninni og skoraði sjö mörk úr átta skotum. Ómar Ingi kom næstur með sex mörk, þar af fjögur úr vítum. Varnarleikurinn var aðal hausverkur íslenska liðsins í fyrri hálfleik, og þá sérstaklega seinni hluta hans. Geir Sveinsson prófaði ýmsar samsetningar í vörninni en Ungverjar áttu svör við þeim öllum. Ungverjar voru duglegir að keyra í bakið á íslenska liðinu, bæði í annarri bylgju í hraðaupphlaupum og með hraðri miðju, sem skilaði mörgum mörkum. Á meðan skoraði Ísland aðeins tvö hraðaupphlaupsmörk í fyrri hálfleik. Rúnar Kárason og Ólafur Guðmundsson byrjuðu í skyttustöðunum en fundu sig engan veginn. Rúnar skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum en það var eina markið frá þeim Ólafi í fyrri hálfleiknum. Sem betur fer var Janus Daði sjóðheitur en hann skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum á fyrstu 18 mínútum leiksins. Janus jafnaði metin í 10-10 með sínu fimmta marki en þá seig á ógæfuhliðina. Ungverjar stigu á bensíngjöfina, kláruðu fyrri hálfleikinn með 8-5 kafla og leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 15-18. Byrjunin á seinni hálfleik var afleit hjá íslenska liðinu sem tapaði boltanum fjórum sinnum á fyrstu 10 mínútunum. Ólafur tapaði tveimur af þessum boltum auk þess sem hann fékk á sig víti og tveggja mínútna brottvísun í kjölfarið. Eins fínan leik og Hafnfirðingurinn átti gegn Egyptum í gær, þá var hann úti á túni í dag. Gergely Harsányi kom Ungverjum sex mörkum yfir, 18-24, þegar 20 mínútur voru eftir. Þá tók Geir leikhlé sem hafði góð áhrif á íslenska liðið. Varnarleikurinn, með Bjarka Má Gunnarsson og Arnar Frey Arnarsson í miðjunni, var mjög öflugur á lokakaflanum og Björgvin Páll var frábær í markinu. Þá átti Gunnar Steinn Jónsson fína innkomu í sóknina eins og gegn Egyptum. Ísland vann síðustu 20 mínútur leiksins 12-6 en það dugði því miður ekki til. Lokatölur 27-30, Ungverjalandi í vil.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Markvörður City: „Liverpool ekki besti hlutinn af Bretlandi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik