Heimilin gætu sparað 130.000 15. júlí 2006 08:15 Hallgrímur Snorrason Formaður matvælaverðsnefndar forsætisráðherra. MYND/Hrönn
Hægt er að lækka matarreikning heimilanna um 130 þúsund krónur á ári og færa matvöruverð undir meðaltal Evrópusambandsríkjanna. Útreikningar nefndar forsætisráðherra benda til að með afnámi vörugjalds, niðurfellingu tolla, samræmingu virðisaukaskatts og afnámi tollverndar af búvöru sé slíku marki náð. Nefndinni var ætlað að fjalla um hátt matvælaverð og gera tillögur um lækkun þess en sökum ágreinings leggur hún ekki fram beinar tillögur til aðgerða. Nefndarformaðurinn, Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri, hefur á hinn bóginn skilað forsætisráðherra skýrslu þar sem störf hennar og viðfangsefni eru rakin. Í skýrslunni kemur fram að afnám vörugjalds, niðurfelling tolla, samræming virðisaukaskatts og lækkun virðisaukaskatts af veitingaþjónustu myndi þýða fimmtíu þúsund króna lækkun matarreiknings heimilanna á ári. Fullt afnám tollverndar af búvöru myndi svo lækka þann sama reikning um rúmar áttatíu þúsund krónur til viðbótar. Þessar aðgerðir myndu ekki hafa afgerandi áhrif á afkomu ríkissjóðs, enda yrði tekjutapið ekki nema rúmlega 1,7 milljarðar króna. Er þá tekið tillit til veltuaukningar vegna skattalækkana. Í skýrslunni er fundið að skatta- og tollakerfi matvara og á það bent að virðisaukaskattsþrepin séu tvö, að sumar vörur beri vörugjöld en aðrar ekki og að auki séu vörugjöldin mishá. Þá leggist tollur á sumar vörur sem aftur er mishár. Í ofanálag fylgi kerfi undanþága. Heilt yfir sé kerfið því flókið og ógagnsætt.
Innlent Mest lesið Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent Biden náðar son sinn Erlent Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Veður „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum Sjá meira