Könnuðust ekki við að styðja Ástþór 24. maí 2012 15:36 Ástþór Magnússon.
Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi hefur framkvæmt hefur leitt í ljós að minnsta kosti tíu einstaklingar kannast ekki við að hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Hlöðvessyni, formanni yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi, kom þetta í ljós eftir að kjörstjórninni hafði meðal annars borist ábendingar frá almenningi. Stikkprufurnar eru framkvæmdar með þeim hætti að það er hringt í ákveðið úrtak þeirra sem skrifa sig á listann. Í þessu tilfelli var hringt í tíu einstaklinga, og enginn þeirra kannaðist við að hafa skrifað sig á listann að sögn Páls. „Nái hann að skila inn nægilegum fjölda undirskrifta munum við ekki taka afstöðu til nafnanna sem slíkra," útskýrir Páll sem bendir á að það sé innanríkisráðuneytið sem fái málið inn á sitt borð og fái nokkurt svigrúm til þess að kanna hvort listarnir séu löglegir. Ástþóri var gefinn frestur til dagsins í dag til þess að skila inn tilhlýðilegum fjölda meðmælanda. Ekki er ljóst hvort sama vandamál hafi komið upp í öðrum kjördæmum. Páll segir að enginn annar frambjóðandi hafi reynst vera með einstalinga á lista sem könnuðust ekki við að hafa skrifað nafn sitt á listann.
Forsetakosningar 2012 Mest lesið Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Innlent Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Innlent „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ Innlent Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Innlent Óviss með framtíð sína innan Pírata Innlent Fleiri fréttir Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Sjá meira