Leik lokið: Makedónía - Ísland 22-24 | Ísland fer í milliriðil Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. janúar 2019 18:30 Gísli Þorgeir Kristjánsson vísir/epa
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er komið í milliriðil eftir torsóttan tveggja marka sigur á Makedóníu í lokaleik riðlakeppninnar í München í dag. Arnór Þór Gunnarsson skoraði fyrsta mark leiksins, hans fyrsta af 10 í leiknum, en svo átti Makedónía næstu fjögur mörk í leiknum. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik gekk mjög illa og þegar Ísland hafði skorað fjögur mörk voru þrjú þeirra úr skotum yfir allan völlinn. Varnarleikurinn stóð þó ágætlega í fyrri hálfleik en uppstilltur sóknarleikur var ekki góður. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 13-11. Guðmundur Guðmundsson hefur lagt upp með að þétta varnarleikinn enn frekar í hálfleiksræðu sinni en varnarleikurinn í seinni hálfleik var frábær. Gísli Þorgeir Kristjánsson átti frábæra innkomu í leikinn og hristi vel upp í sóknarleiknum, íslenska liðið fór að sækja á markið og sækja víti. Ísland komst í fyrsta skipti yfir síðan í stöðunni 1-0 á 44. mínútu þegar Arnar Freyr Arnarsson skoraði og kom Íslandi í 17-16. Leikurinn var í járnum út seinni hálfleikinn en íslenska liðið var skrefinu framar og kláraði leikinn að lokum með tveimur mörkum, 22-24. Ísland fer því í milliriðil en Makedónía situr eftir. Í milliriðli mætum við Frakklandi, Þýskalandi og Brasilíu en ekki liggur fyrir hvenær eða við hvern næsti leikur er. Nánari umfjöllun, viðtöl við landsliðsmenn og fleira kemur inn á Vísi í kvöld.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Tengdar fréttir Guðmundur: Hafði ekki húmor fyrir öllu sem að gerðist þarna Guðmundur Guðmundsson vill að menn vandi sig þegar að reynt er að kasta boltanum yfir allan völlinn. 17. janúar 2019 14:20 Strákarnir fá „tossamiða“ eftir leiki Íslensku landsiðsmennirnir geta ekki klikkað á viðtölum því allt er skrifað niður fyrir þá. 17. janúar 2019 11:21 Þetta vitum við um landslið Makedóníu sem mætir Íslandi á HM í dag Vísir skorað mótherja íslenska landsliðsins en Makedónía getur komið í veg fyrir að strákarnir okkar komist í milliriðil. 17. janúar 2019 11:00 Endurtekið efni frá HM 2017 Strákarnir okkar eru í nákvæmlega sömu sporum í dag og þeir voru á HM í Frakklandi 2017. Það er eiginlega með ólíkindum að nákvæmlega sama staða sé komin upp. 17. janúar 2019 12:30
Guðmundur: Hafði ekki húmor fyrir öllu sem að gerðist þarna Guðmundur Guðmundsson vill að menn vandi sig þegar að reynt er að kasta boltanum yfir allan völlinn. 17. janúar 2019 14:20
Strákarnir fá „tossamiða“ eftir leiki Íslensku landsiðsmennirnir geta ekki klikkað á viðtölum því allt er skrifað niður fyrir þá. 17. janúar 2019 11:21
Þetta vitum við um landslið Makedóníu sem mætir Íslandi á HM í dag Vísir skorað mótherja íslenska landsliðsins en Makedónía getur komið í veg fyrir að strákarnir okkar komist í milliriðil. 17. janúar 2019 11:00
Endurtekið efni frá HM 2017 Strákarnir okkar eru í nákvæmlega sömu sporum í dag og þeir voru á HM í Frakklandi 2017. Það er eiginlega með ólíkindum að nákvæmlega sama staða sé komin upp. 17. janúar 2019 12:30
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik