Hvergi gerst að eldislaxar útrými villtum laxastofnum Helena Rós Sturludóttir skrifar 8. október 2023 12:47 Frá mótmælum gegn sjókvíaeldi á Austurvelli sem fóru fram í gær. VALGARÐ GÍSLASON Lektor í fiskeldi við háskólann á Hólum segir umræðu og fullyrðingar um sjókvíaeldi einkennast af rangfærslum og upphrópunum. Hvergi hafi það gerst að eldislaxar útrými villtum laxi.
Um tvö þúsund manns fjölmenntu á Austurvelli í gær til að mótmæla sjókvíaeldi. Ólafur Sigurgeirsson, lektor í fiskeldi við Háskólann á Hólum, segir ýmsar fullyrðingar í umræðunni um sjókvíaeldi hér á landi ekki standast, sem dæmi að það fylli alla firði af drullu og skít. „Ef að fólk hefði fyrir því að kanna málið þá má sjá á vef norsku Umhverfisstofnunar að 94 prósent af fjörðum Noregs eru metnir í mjög góðu eða góðu ástandi. Svo þetta dæmi stenst ekki,“ segir Ólafur. Þá hafi það hvergi gerst að eldislaxar útrými villtum laxastofnum. „Það er líka órökrétt vegna þess að það er búið að breyta eldislaxi í húsdýr sem er að eftir tólf til fjórtán kynslóðakynbætur hefur afar litla möguleika til að komast af í villtri náttúru,“ segir hann. Vissulega sleppi eldislaxar úr haldi, gangi upp ár og reyni að æxlast við villtan lax. Sagan og rannsóknarniðurstöður sýni hins vegar að afkomendur blendinga eða hreinir eldislaxar hafi skerta hæfni til að komast af í náttúrunni. Sem dæmi nefnir Ólafur slysasleppingu 22 þúsund eldislaxa í Nýfundna landi árið 2013. „Þar voru 20 þúsund villtir laxar og þeir æxluðust saman en afkomendurnir, það er að segja blendingarnir og hreinu eldislaxarnir, hurfu smátt og smátt að lang mestu leyti á fyrsta ári. Seiðin gáfu eftir í samkeppninni.“ Að sögn Ólafs væri nær lagi að fólk einblíni frekar á eigin aðgerðir og umhverfisáhrif ásamt því að skoða hvers vgna laxinn sé ekki að skila sér í meiri mæli úr hafi.
Fiskeldi Sjókvíaeldi Tengdar fréttir Sagðist hataður af fiskeldisfyrirtækjum og skammaður af mótmælendum Fjölmenn mótmæli gegn sjókvíaeldi á Íslandi fóru fram á Austurvelli í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra þakkaði mótmælendum fyrir mætingu en fékk kaldar kveðjur til baka. Bubbi Morthens sagði Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra eina ráðherrann sem væri að standa sig. 7. október 2023 20:21 Ef þið megið veiða og sleppa þá megum við setja tug milljóna norskra eldislaxa í ótryggar opnar sjókvíar út um allt land! Það er óhætt að segja að sjókvíaeldisiðnaðurinn á Íslandi hefur átt undir mikið högg að sækja undanfarið. Nýjasta mengunarslys norska sjókvíaeldisfyrirtækisins Artic Fish hefur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér og í dag er með öllu óljóst hversu alvarlegar afleiðingarnar verða. Það mun koma í ljós við erfðafræðirannsóknir á komandi árum. 5. október 2023 16:00 Eldisfyrirtæki þurfa að eiga viðskipti sín á milli um svæði fyrir árið 2028 Læra á af reynslu Norðmanna og Færeyinga af fiskeldi. Þess vegna mun einungis eitt eldisfyrirtæki fá að vera með starfsemi á hverju svæði fyrir sig. Fyrirtækin hafa til ársins 2028 til að eiga viðskipti sín á milli til að leysa úr stöðunni, upplýsti skrifstofustjóri hjá matvælaráðuneytinu. 4. október 2023 10:37 Götóttar kvíar og enn lekara regluverk Á Louisiana safninu í Danmörku er þetta risastóra verk eftir afríska listamenn - netamöskvar með gati í miðjunni. Því miður tengir maður strax við umhverfisslysið í Patreksfirði þar sem hátt í 4000 laxar sluppu út um gat á sjókví. 25. september 2023 07:00 Krefjast tafarlausra aðgerða Umhverfisstofnunar vegna brota Arctic Sea Farm Samtökin Náttúrugrið hafa sent kröfu á Umhverfisstofnun um tafarlausar aðgerðir vegna ætlaðs brots Arctic Sea Farm, sem samtökin segja eitt alvarlegasta umhverfisbrot sem upp hefur komið hér á landi. 26. september 2023 12:28 Mest lesið Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi Innlent Biden náðar son sinn Erlent Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent „Ég ætla að standa mig betur“ Innlent Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Veður „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Innlent Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Halla fær formenn flokkanna á sinn fund Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Leita einstaklings sem grunaður er um líkamsárás Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sigmundi „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum Sjá meira
Sagðist hataður af fiskeldisfyrirtækjum og skammaður af mótmælendum Fjölmenn mótmæli gegn sjókvíaeldi á Íslandi fóru fram á Austurvelli í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra þakkaði mótmælendum fyrir mætingu en fékk kaldar kveðjur til baka. Bubbi Morthens sagði Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra eina ráðherrann sem væri að standa sig. 7. október 2023 20:21
Ef þið megið veiða og sleppa þá megum við setja tug milljóna norskra eldislaxa í ótryggar opnar sjókvíar út um allt land! Það er óhætt að segja að sjókvíaeldisiðnaðurinn á Íslandi hefur átt undir mikið högg að sækja undanfarið. Nýjasta mengunarslys norska sjókvíaeldisfyrirtækisins Artic Fish hefur haft skelfilegar afleiðingar í för með sér og í dag er með öllu óljóst hversu alvarlegar afleiðingarnar verða. Það mun koma í ljós við erfðafræðirannsóknir á komandi árum. 5. október 2023 16:00
Eldisfyrirtæki þurfa að eiga viðskipti sín á milli um svæði fyrir árið 2028 Læra á af reynslu Norðmanna og Færeyinga af fiskeldi. Þess vegna mun einungis eitt eldisfyrirtæki fá að vera með starfsemi á hverju svæði fyrir sig. Fyrirtækin hafa til ársins 2028 til að eiga viðskipti sín á milli til að leysa úr stöðunni, upplýsti skrifstofustjóri hjá matvælaráðuneytinu. 4. október 2023 10:37
Götóttar kvíar og enn lekara regluverk Á Louisiana safninu í Danmörku er þetta risastóra verk eftir afríska listamenn - netamöskvar með gati í miðjunni. Því miður tengir maður strax við umhverfisslysið í Patreksfirði þar sem hátt í 4000 laxar sluppu út um gat á sjókví. 25. september 2023 07:00
Krefjast tafarlausra aðgerða Umhverfisstofnunar vegna brota Arctic Sea Farm Samtökin Náttúrugrið hafa sent kröfu á Umhverfisstofnun um tafarlausar aðgerðir vegna ætlaðs brots Arctic Sea Farm, sem samtökin segja eitt alvarlegasta umhverfisbrot sem upp hefur komið hér á landi. 26. september 2023 12:28