Rafíþróttir

Til­þrifin: E7r býður upp á þrjá fyrir einn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
canvas

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það e7t í liði ÍBV sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

E7r og félagar hans í ÍBV þurftu að sætta sig við tap gegn Sögu í gærkvöldi og situr liðið því enn á botni deildarinnar. Eyjamenn eru enn í leit að sínum fyrsta sigri, en liðið háði harða baráttu í leik gærkvöldsins.

Þrátt fyrir tapið var það Eyþór Traustason, eða e7r, sem átti tilþrif kvöldsins í gær. Hann felldi þá tvo andstæðinga sína með stuttu millibili áður en hann felldi svo þann þriðja með handsprengju.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: E7r býður upp á þrjá fyrir einn





×