Handbolti

Hugsaði lítið og stressaði sig minna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Díana Dögg í landsleik gegn Frökkum í fyrra.
Díana Dögg í landsleik gegn Frökkum í fyrra. Vísir/EPA

„Þetta er ótrúlega stórt og mjög skemmtilegt. Það er gott að vera loksins búin að ná þessum sigri,“ segir Díana Dögg Magnúsdóttir, sem átti stóran þátt í 27-24 sigri Íslands á Úkraínu á EM í Innsbruck í gær.

Um er að ræða fyrsta sigur Íslands á Evrópumóti en hann varð harðunninn seinni hlutann þar sem þær úkraínsku komust ef til vill fullvel inn í leikinn sem Ísland hafði stýrt frá upphafi.

„Þetta var ákveðinn léttir. Úr því sem komið var líka í leiknum. Þetta var orðinn þungur róður þegar leið á leikinn og ótrúlegur léttir að klára þetta“ segir Díana Dögg.

Díana kom afar sterk inn af bekknum á seinni hluta leiksins þegar félagar hennar voru ef til vill orðnar full ragar við að sækja á markið skapaði hún mikinn usla, skoraði þrjú og lagði upp eitt til á lokakaflanum. En hvað var hún að hugsa þegar hún kemur inn á?

„Ég er nú ekki að hugsa neitt. Ég ætla bara að gera mitt. Þetta er kannski minn leikur að koma bara á fullu. Þá annað hvort að koma mér einhvern veginn í gegn eða að sprengja upp varnirnar svo leikmenn þurfi að ráðast á mig og ég gefi boltann áfram,“ segir Díana sem sammælist því að mörk hennar hafi verið mikilvæg.

„Þau komu á mikilvægum tímapunkti þegar þær voru farnar að saxa aðeins og mikið á. Þá er gott að geta leyst aðeins hnútinn,“ segir Díana Dögg.

Klippa: Díana Dögg hugsaði lítið og stressaði sig minna

Einhverjar fundu fyrir stressi þegar þær úkraínsku söxuðu á íslenska forskotið en Díana var ekki þar á meðal.

„Ég er held ég ekki þekkt fyrir það í þessu liði að vera eitthvað stressuð. Maður er kannski spenntur fyrir leiki og eitthvað. En frekar er ró og yfirvegun yfir mér. Það er ekkert mál að taka þessar lokaákvarðanir, ég get alveg tekið það í mínar hendur.“

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.

Fram undan hjá íslenska liðinu er hreinn úrslitaleikur við Þýskaland um það hvort liðanna fer áfram í milliriðil í Vínarborg. Leikurinn er klukkan 19:30 annað kvöld og verður íslenska liðinu fylgt vel eftir á Vísi fram að leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×