Guðmundur: Hlakka til að byrja Henry Birgir Gunnarsson í Linköping skrifar 14. janúar 2011 14:15
Það hefur mikið mætt á Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara síðustu daga enda undirbúningur fyrir HM stuttur og margt sem þarf að gera á þessum stutta tíma. Guðmundur er þó ánægður með hvernig til hefur tekist að undirbúa liðið og fer nokkuð slakur inn í mótið. "Mér líður vel. Við höfum undirbúið okkur eins vel og kostur er. Strákarnir eru einbeittir og við fengum góða æfingaleiki gegn Þjóðverjum sem gengu vel og það er því engin ástæða til þess að vera með óþarfa áhyggjur. Auðvitað er það samt þannig að það voru æfingaleikir en nú hefst alvaran og þar verðum við að standa okkur," sagði Guðmundur og bendir á að strákarnir þurfi að spila vel í dag til þess að leggja Ungverja enda séu þeir með gott lið. Guðmundur segist sofa ágætlega á nóttunni þó stressið sé óneitanlega nokkuð mikið svona skömmu fyrir mót. "Ég er fullur tilhlökkunnar að byrja mótið. Þetta er svipað og þegar maður er búinn að læra undir próf. Maður vill drífa sig í prófið," sagði Guðmundur léttur. "Ég sef pottþétt vel í nótt. Ég sef samt ekki alltaf vel og sérstaklega þegar illa gengur."
Scroll-HM2011 Skroll-Íþróttir Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Markvörður City: „Liverpool ekki besti hluti Bretlands“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Ísland í þriðja styrkleikaflokki fyrir undankeppni HM Fótbolti Hugsaði lítið og stressaði sig minna Handbolti Fleiri fréttir Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum „Gæsahúð allsstaðar“ Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik