HK kom ekki upp orði gegn Fram í Kórnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. desember 2022 17:21 Steinunn Björnsdóttir var markahæst á vellinum með tíu mörk. vísir/diego Fram kjöldró HK, 16-35, þegar liðin áttust við í 9. umferð Olís-deildar kvenna í dag. Frammarar eru áfram í 4. sætinu og HK-ingar ennþá í áttunda og neðsta sætinu.
Leikurinn í Kórnum í dag var alls ekki spennandi. Fram tók strax völdin, skoraði fyrstu sex mörk leiksins og var ellefu mörkum yfir í hálfleik, 8-19. Í seinni hálfleik var aðeins spurning hversu stór sigurinn yrði og á endanum munaði nítján mörkum á liðunum, 16-35. Hafdís Renötudóttir var nánast ósigrandi í marki Fram og varði 23 skot, eða 60,5 prósent þeirra skota sem hún fékk á sig. Steinunn Björnsdóttir var markahæst í liði Fram og á vellinum með tíu mörk. Tamara Jovicevic skoraði sex mörk og Þórey Rósa Stefánsdóttir fimm. Ellefu leikmenn Fram komust á blað í leiknum. Hjá HK var fátt um fína drætti eins og lokatölurnar gefa til kynna. HK-ingar voru til að mynda aðeins með 29,1 prósent skotnýtingu og 16,7 prósent markvörslu. Katrín Hekla Magnúsdóttir var markahæst heimakvenna með fjögur mörk.
Olís-deild kvenna HK Fram Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Maté hættir með Hauka Körfubolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Steinlágu á móti neðsta liðinu Haukarnir með þrjú síðustu mörkin og eru í góðum málum Aðeins tvær hlupu hraðar en Dana Björg Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Eyjamenn minnast Kolbeins í dag með því að drekka Kollabjórinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik